Fréttablaðið - 21.10.2002, Side 23
23MÁNUDAGUR 21. október 2002
... þér í hag !
Sömu góðu brautirnar og einkennt
hafa Alno innréttingar síðastliðin ár
Sömu góðu lausnirnar og
einkennt hafa Alno innréttingar
síðastliðin ár
Þú færð góðar
innréttingar
fyrir minna verð
Gildir til 2. desember
2002
MISMUNANDI ÚTLIT
LÆGRA VERÐ
Sýningain
nréttinga
r
Allt að 40%
afsláttur
Vegna
breytinga
eru nokk
rar
s
ýningainn
réttingar
til sölu
11
98
/
T
A
K
T
ÍK
NÓBELSSKÁLDIÐ
Ungverski rithöfundurinn Imre Kertesz árit-
ar verk sín í bókaverslun í Búdapest á
föstudaginn. Landar hans hafa flokkast að
honum enda er hann fyrsti Ungverjinn
sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels.
Hann kom til landsins á miðvikudag, í fyrs-
ta sinn frá því tilkynnt var að hann hlyti
verðlaunin í ár. Hann vinnur að næstu
skáldsögu sinni í Berlín, en Þjóðverjar hafa
styrkt hann til verksins.
Predikararnir á Omega gefahvergi eftir. Nýlega rakti
sjónvarpsstjórinn, Eiríkur Sigur-
björnsson, sögu
um mann sem
ætlaði að verða
fyrstur til að út-
varpa á Íslandi.
Hann hafði keypt
sendi og annað
sem við átti. Ætl-
un mannsins var
að útvarpa heilagri ritningu. Ei-
ríkur sjónvarpsstjóri sagði að
djöfullinn hefði komið í veg fyr-
ir það. Nokkuð spennandi. Fólki
brá þegar sagan fékk endi, en
djöfullinn var að mati Eiríks
enginn annar en Alþingi Íslend-
inga, sem setti lög um að Ríkis-
útvarpið, sem þá var í starthol-
unum, hefði einkarétt á útvarps-
sendingum. Vissulega óþægileg
lög og eflaust röng, en nokkuð
mikið sagt að djöfullinn hafi ver-
ið að verki.
Egill Helgason heldur áfram ísilfrinu. Í gær fékk hann
Hannes Hólmstein Gissurarson í
drottningarviðtal að hætti Davíðs
Oddssonar. Egill
var óstyrkur og
sagði þetta gert
vegna þess að
Svanur Kristjáns-
son hafi áður ver-
ið í viðtali. Hljóm-
aði ekki traust.
Að hætti Hannesar fór hann
háðslegum orðum um andstæð-
inga sína í pólitík. Ekkert nýtt.
Það vekur athygli hversu velfer á með Ólafi Ragnari
Grímssyni forseta og Björgólfi
Guðmundssyni. Þeir sjást saman
við hin ýmsu tækifæri. Það eru
miklar breytingar. Fyrir
nokkrum árum var kalt á milli
þeirra. Ólafur Ragnar fór á Al-
þingi hörðum orðum um
Björgólf og aðra þáverandi Haf-
skipsmenn. Þegar Ólafur Ragnar
var kjörinn í embætti forseta
barðist hópur manna gegn hon-
um. Meðal þeirra sem fremst
fóru var einmitt Björgólfur.
FÓLK Í FRÉTTUM
Síkáta bókaforlagið Bjartur hef-ur tekið upp þann góða sið að
verðlauna „mann mánaðarins“ fyr-
ir einhver þau uppátæki sem geta
talist athyglisverð og ef til vill
ekki síður til eftirbreytni. Það
dróst fram úr hófi að tilkynna um
niðurstöðuna úr vali september-
mánaðar en Bjartur hefur nú loks-
ins kunngjört þau, nokkrum vikum
og á þriðja þúsund símtölum sein-
na en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Nafnbótina hlaut að þessu sinni Ei-
ríkur Guðmundsson fyrir „frábær-
lega skemmtilega útvarpsþætti um
Thomas Mann.“ Verðlaunin eru
ekki af verri endanum; árskort í
Vesturbæjarlaugina og rauðvín frá
fjallahéruðum Portúgal.
Annars segja gárungarnir aðBjörgólfur Guðmundsson eigi
ein stór viðskipti eftir. Það væri
við hæfi að hann keypti Eimskip,
sitt gamla fjandvinafélag, og
breytti nafni þess í Hafskip. Þá
myndi sannast enn og aftur að sá
hlær best sem síðast hlær.
FÓLK Í FRÉTTUM