Fréttablaðið - 21.10.2002, Qupperneq 24
Þá fer að líða að því að maður getikeypt hlutabréf í Heilagri þrenn-
ingu. Biskupinn tjáði kirkjuþingi að
snurða sé hlaupin á þráðinn í hjóna-
bandi Ríkis og Kirkju og skilnaður
að borði og sæng sé orðin staðreynd
- og þá er venjulega stutt í lögskiln-
að. Svo bregðast krosstré sem önnur
tré. Þá er næsta mál á dagskrá að
skipta eignum og ákveða lífeyri svo
að kirkjan standi ekki uppi slypp og
snauð í sömu sporum og þegar
postulinn Páll var að hóa saman fólki
á fyrsta hluthafafundinn.
OFARLEGA á blaði yfir eignir
Þjóðkirkjunnar er jörðin Valþjófs-
staður en hennar höfuðkostur er
hversu mikið vatn hún gefur af sér
sem hægt er að leiða gegnum túrbín-
ur til að búa til rafmagn. Að vísu
rýrnar vatnið ekki að ráði við að
buna gegnum túrbínurnar og reynd-
ar hefur þetta sama Valþjófsstaða-
vatn ýmist gufað upp ellegar runnið
ókeypis til sjávar frá því löngu fyrir
upphaf Íslandsbyggðar - án þess að
Landsvirkjun kæmi þar nærri eða sá
heiðni guð Mammon.
EN ÞJÓÐKIRKJAN h.f. mun samt
vilja fá afnotaréttinn af þessu vatni
goldinn dýru verði. Enda þótt vatn
sem fellur af himnum ofan sé Guðs
gjöf til jarðarbúa þá er Valþjófs-
staðavatnið prívatgjöf Almættisins
til Þjóðkirkjunnar og eiginlega vígt
vatn. Það lítur því út fyrir að hin ný-
fráskilda Þjóðkirkja h.f. verði sæmi-
lega loðin um lófana þegar hún
stendur uppi sem einstæð móðir og
hlutafélag. Þá verður biskupinn
stjórnarformaður og forstjóri,
vígslubiskupar verða framkvæmda-
stjórar, prófastarnir deildarstjórar
og venjulegir prestar verða fulltrúar.
Í Kauphöllinni og hjá NASDAQ bíða
svo fjárfestarnir spenntir eftir því
að fá loks tækifæri til að fjárfesta í
verðmætum sem hvorki mölur né
ryð fá grandað.
KANNSKI er það báðum aðilum
fyrir bestu að leiðir skilji, en engu að
síður hljóta mörg börn þessara for-
eldra að spyrja: Afhverju þurfti
þessu farsæla hjónabandi að ljúka
með skilnaði? Var virkilega ekki
hægt að finna góðan prest til að tala
á milli þeirra? „Mala domestica
graviora sunt lachrimis,“ segir gam-
al mál: Heimilisböl er þyngra en tár-
um taki.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Hvað gera þeir
sem verða
útundan
Þeir skipta
um símafyrirtæki
islandssimi.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
S
1
0/
20
02
800 1111
við samruna á
fjarskiptamarkaðnum?
Hlutabréf í
Heilagri
þrenningu
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
BÓN
ÞVOTTUR
&
Vatnagörðum 16 • Sími: 553 9988
Grensásvegi 11 • Sími: 553 8988
(Bak við Dominos)