Fréttablaðið - 17.12.2003, Qupperneq 14
14 17. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Suður-Ameríka
KIRKJUKLUKKUM HRINGT
Hanna Ibrahim Salman hringir kirkjuklukk-
unum í Fæðingarkirkjunni, sem talið er að
sé byggð á þeim stað þar sem Jesús Krist-
ur fæddist, í Betlehem. Bróðir hans deildi
hringjaraskyldum með honum þar til hann
lést í umsátri ísraelskra hersveita sem sátu
um kirkjuna þar sem Palestínumenn höfð-
ust við, fyrir ári síðan.
Eftirlaunaréttur:
Önnur þjóð
á Alþingi
STJÓRNMÁL Pétur Sigurðsson, for-
seti Alþýðusambandsins, segir að
samþykkt Alþingis hljóti að auð-
velda verkalýðshreyfingunni að
fá samræmdan lífeyrissrétt fyrir
allan almenning.
„Nú hlýtur að vera stefnt að
þessum sjálfsagða jöfnuði. Síðan
auðveldar þetta líka fjármála-
ráðherranum að standa við þau
orð sín frá því fyrir tveimur
árum að jafna lífeyrisrétt allra
launþega sem vinna hjá ríkinu.
Einkennilegt hjá þeim að koma
fram með frumvarpið á þessum
tíma. Það segir manni að þetta lið
við Austurvöll sé önnur þjóð.
Væntanlega hafa þeir velt fyrir
sér kröfugerð verkalýðsfélag-
anna sem voru sniðnar þannig að
ekki var farið fram á miklar
hækkanir vegna þess að talið var
að efnahagslífið þoli þær ekki.
Við hljótum að hafa farið alltof
varlega í þessum efnum,“ segir
Pétur. ■
Vatnajökulsþjóðgarður
stofnaður innan 5 ára
Í nýrri þingsályktunartillögu umhverfisráðherra er lagt til að á næstu fimm árum verði unnið
að friðlýsingu fjórtán svæða á landinu. Einnig að á tímabilinu verði áfram unnið að stofnun
Vatnajökulsþjóðgarðs.
UMHVERFISMÁL Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra hefur lagt
fram þingsályktunartillögu á Al-
þingi sem kveður á um að unnið
verði að náttúruverndaráætlun
fyrir landið allt á fimm ára fresti
og hún lögð fyrir þingið. Lagt er
til að á næstu fimm árum verði
unnið að friðlýsingu fjórtán
svæða á landinu til að stuðla að
traustari vernd íslenskrar náttúru
og framkvæma þannig alþjóðlega
samninga um náttúruvernd hér á
landi. Í náttúruverndaráætlun
fyrir árin 2004–2008 er gert ráð
fyrir að tekið verði tillit til mikil-
vægis svæðanna fyrir náttúru-
vernd, ógna sem steðja að sem og
óska heimamanna, en markmiðið
er meðal annars að uppfylla
skyldur Íslands á alþjóðavett-
vangi.
Meðal þeirra svæða sem nátt-
úruverndaráætlunin á að taka til
eru búsvæði fugla á svæðum við
Álftanes, Skerjafjörð, Guð-
laugstungur, Vestmannaeyjar og
Öxarfjörð. Einnig er gert ráð fyr-
ir friðlýsingu á svæðum þar sem
er að finna sjaldgæfar plöntu-
tegundir, gróðurfar og jarðfræði-
minjar, meðal annars við Látra-
strönd, Loðmundarfjörð og Geysi
í Haukadal.
Umhverfisráðherra leggur til
að þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfr-
um verði stækkaður um allt að 78
ferkílómetra þannig að hann myndi
samfellda heild um gljúfrin og að
þjóðgarðurinn í Skaftafelli verði
stækkaður um 730 ferkílómetra
svo hann nái yfir allan Skeiðarár-
sand til sjávar. Þá kemur fram í
þingsályktunartillögunni að unnið
verði áfram að stofnun Vatnajök-
ulsþjóðgarðs og verndarsvæða
sem tengjast honum eða verða
jafnvel hluti af honum, en svæði
sem tengjast eru Kverkfjöll,
Krepputunga, Eyjabakkar, Breiða-
merkursandur og Skaftárelda-
hraun.
Ríkisstjórnin ákvað árið 2000 að
stofna Vatnajökulsþjóðgarð sem í
fyrstu næði eingöngu til jökulhett-
unnar og mikil áhersla hefur verið
lögð á að kynna málið í nærliggj-
andi sveitum og samráð haft við
sveitarfélög og aðra hagsmunaað-
ila. Í greinargerð segir að með
stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sé
verið að stíga eitt stærsta skref í
náttúruvernd hér á landi, en hann
yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu
og einstakt svæði á heimsvísu,
enda hvílir þar stærsti jökull Evr-
ópu ofan á einu öflugasta eldvirkn-
issvæði jarðar.
bryndis@frettabladid.is
Tíu ára drengur lést:
Drepinn af
Bengal-tígri
NORÐUR-KARÓLÍNA, AP Tíu ára gamall
bandarískur drengur lést þegar 180
kílógramma Bengal-tígur réðst á
hann og dró hann inn í búr sitt. Villi-
dýrið var í eigu móðursystur fórn-
arlambsins.
Clayton James Eller var að moka
snjó skammt frá afgirtu svæði tíg-
ursins hjá heimili frænkunnar í
Millers Creek í Norður-Karólínu.
Þegar dýrið kom auga á Eller skreið
það í gegnum lítið op á girðingunni
og réðst á hann. Eiginmaður móður-
systurinnar hljóp til þegar hann
heyrði skelfingaróp drengsins.
Hann náði í byssu til að skjóta dýrið
en þá var Eller þegar látinn. ■
Tóbakssala í Hafnarfirði:
Sex seldu
unglingum
tóbak
ÆSKULÝÐSMÁL Hafnarfjarðarbær
lét gera könnun í byrjun desem-
ber hvort sölustaðir seldu ung-
lingum tóbak. Í 19% tilfella gátu
unglingarnir keypt tóbak á sex
sölustöðum af þrjátíu og einum.
Áður hafa um 14 ára gamlir
unglingar verið sendir á sölu-
staði ásamt starfsmanni félags-
miðstöðvar. Aldurstakmark
hækkaði upp í 18 ár fyrir
nokkrum misserum og í síðustu
könnun seldi enginn 14 ára gömlu
barni tóbak. Af því þótti forvarn-
arnefnd Hafnarfjarðar eðlilegt
að senda eldri unglinga. Tveir 16
ára gamlir krakkar fóru á sölu-
staði. ■
INDÍÁNUM BJARGAÐ ÚR ÁNAUÐ
Lögreglan í Perú bjargaði tólf
ashinka-indíánum sem skæru-
liðasamtökin „Skínandi stígur“
höfðu hneppt í ánauð. Á meðal
gíslanna voru lítil börn. Um
fimmtíu sérþjálfaðir lögreglu-
menn brenndu búðir uppreisn-
armannanna í Amazon-frum-
skóginum og fluttu indíánana á
brott.
GÍSLUM FLJÓTLEGA SLEPPT
Talsmenn Þjóðfrelsishers Kól-
umbíu hafa lýst því yfir að þeir
ætli á næstu dögum að láta
lausa úr haldi fimm erlenda
ferðamenn sem þeir rændu um
miðjan september. Uppreisnar-
mennirnir segjast vilja koma í
veg fyrir að gíslarnir, fjórir
Ísraelar og Breti, verði óvart
drepnir af kólumbíska hernum.
SKÆRULIÐAFORINGI HANDTEK-
INN Yfirvöld í Kólumbíu segj-
ast hafa handtekið háttsettan
félaga Byltingarsveita Kól-
umbíu, FARC, sem talinn er
hafa myrt japanskan kaupsýslu-
mann sem hafði verið haldið í
gíslingu í þrjú ár. Wilmer Marin
Cano, sem er betur þekktur
undir nafninu Hugo, er grunað-
ur um að hafa myrt fjölda ann-
arra gísla og átt aðild að
hryðjuverkaárásum.
PÉTUR SIGURÐSSON
Samþykkt Alþingis sýnir að
verkalýðshreyfingin hefur farið of
varlega í kröfugerð sinni.
VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR
Með stofnun þjóðgarðsins er verið að stíga eitt stærsta skref í náttúruvernd hér á landi en hann yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu
og einstakt svæði á heimsvísu.
UMHVERFISRÁÐHERRA LEGGUR TIL AÐ NÁTTÚRUVERNDAR-
ÁÆTLUNIN TAKI TIL EFTIRFARANDI SVÆÐA
Búsvæði fugla: Sjaldgæfar plöntur, gróðurfar og jarðfræðiminjar:
Álftanes - Akrar - Löngufjörur Látraströnd - Náttfaravíkur
Álftanes - Skerjafjörður Njarðvík - Loðmundarfjörður
Austara-Eylendið Vatnshornskógur í Skorradal
Guðlaugstungur - Ásgeirstungur Geysir í Haukadal
Látrabjarg - Rauðasandur Reykjanes - Eldvörp - Hafnaberg
Vestmannaeyjar
Öxarfjörður
ÓLÖGLEG TÓBAKSSALA
Í HAFNARFIRÐI
Kannanir æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar og
forvarnarnefndar Hafnarfjarðar 1996–2003
%