Fréttablaðið - 17.12.2003, Page 27

Fréttablaðið - 17.12.2003, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 17. desember 2003 www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma Mörkinni 3 • s: 588 0640 Opið mán.- föst. kl. 11 til 18 laugard. kl. 11 - 15 www.casa.is Frábærar jólagjafir Á PÉTURSTORGI Lokið við að skreyta jólatré á Péturs- torginu. Í baksýn er Péturskirkjan. Jólasaga af Netinu: Kraftaverka- maðurinn Flest höfum við fengið sögurog misgáfulega speki í tölvu- pósti. Hér er ein slík saga sögð ritgerð eftir barn í grunnskóla: Sá sem er frægastur úr Biblí- unni er Jesús. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll hótel voru full. Mamma hans hét María og stjúpi hans Jósef. Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift einhverjum Gabríel, sem var floginn burt. Þegar Jesús var nýfæddur áttu þrír jóla- sveinar leið fram hjá fjósinu. Þegar þeir sáu barnið, náðu þeir í jólagjafir og reykelsi en það veitti sannarlega ekki af þar sem þau höfðu ferðast allan dag- inn á asna, af því að það átti að telja þau. Jesús var skírður seinna, því í þá daga voru börn ekki skírð fyrr en þau voru búin að læra að synda, því þau voru nefnilega alveg færð í kaf. Þegar Jesús var tólf ára kunni hann Biblíuna utan að. Hann gat galdrað þegar hann var bara smástrákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem uppi hefur verið. Jesús gekk um og lagði gátur fyrir fólk sem það átti að reyna að leysa. Hann gat líka gengið í gegnum vatn og eld, án þess að það kæmi við hann. Hann gat líka gengið á vatninu. Það var á Genezaretvatni, þar sem hann gekk út að fiskibáti til að kaupa fisk. Pabbi minn segir að það hafi verið ís á vatninu, en hann trúir ekki heldur á Guð og Jesú. Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina. Einu sinni mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu úti á miðri götu. Jesús sagði: „Tak sæng þína og gakk.“ Maðurinn gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar. Svo var það ekkja sem átti son, en ég bara skil ekki hvernig hún gat átt hann fyrst hún var ekkja. Jesús tók son ekkjunnar í kraftaverkameðferð og við það varð hann mjög vitur. Eitt af því merkilegasta sem Jesús gerði var að stjórna borð- haldinu í eyðimörkinni. Það var þegar fimm þúsund manneskjur stóðualeinar úti í eyðimörkinni án þess að eiga vott eða þurrt. Þá gerði Jesús kraftaverk og all- ir fóru saddir í rúmið. Jesús gat ekki alltaf komið fram í eigin persónu. Stundum var hann dul- búinn sem hirðir, og einu sinni kom hann fram undir fölsku nafni. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.