Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. marz 1973. TÍMINN 5 Síðustu fangarnir fluttir Nýlega voru siðustu fangarnir fluttir úr kvennafangelsinu La Roquette i Paris, en ætlunin er að rifa fangelsið. Siðustu 160 fangarnir voru fluttir á brott i byrjun marzmánaðar. og voru þeir fluttir i lögreglubilum undir ströngu eftirliti. Akvörðunar- staðurinn var annað fangelsi skammt fyrir utan Paris. Þetta kvennafangelsi var byggt árið 1831, og ekki hefur verið látið uppi til hvers eigi að nota land- areignina, sem fangelsið stend- ur á, en allt i kring um hana er hár og rambyggilegur stein- veggur. Aðeins eitt fangelsi er nú i notkun i Paris sjálfri, og er það La Sante karlafangelsið, en i þvi eru 4000 fangar. I Hver vill vera eins og Britt? Þvi eru engin takmörk sett, hvað Britt Ekland hin sænska hengir utan á sig, eins og sjá má á þessari mynd. Britt var eitt sinn gift Peter Sellers og býr enn i London, þótt þau Peter séu löngu skilin. Hér sjáið þið skrautið, sem Britt bar siðast þegar hún brá sér i skemmtiferð til New York, en myndin var tekin i þann mund er hún steig upp i flugvélina. Um hálsinn hanga alls konar perlur, og þeir eru ófáir hringirnir á fingrum frúarinnar, og ekki er dónalegt Vikingabeltið, sem hún ber um sig miðja. Á herðunum er hún svo með mink. Dverggígur á tunglinu Þessi tilkomumikli tunglgigur er i raun og veru svo litill, að hann sést aðeins i smásjá — þvermál hans er aðeins þrir hundruðustuhlutar úr milli- metra. Geimfararnir á Appolló 16 höfðu þetta sjaldgæfa sýnis- horn tneð sér heim frá tunglinu,- og það er nú geymt i Max- Planck k jarnorkueðlisfræði- stofnuninni i Heidelberg. Þetta tveggja fermillimetra stóra sýnishorn með dverggignum er strangt tekið ekki tunglgrjót, heldur loftsteinn úr nikkeljárni, sem fyrir um 3000 árum kom upp á tunglinu. Dverggigur þessi varð til, þegar annar enn Drykkjusýki meðal barna alvarlegt vandamál í Danmörku Danir leituðu á árinu 1972 að- stoðar Norðmanna og Svia við að reyna að hafa hemil á drykkjusýki (alkoholisma ) meðal harna. Vandamál þetta er stórkost- legra i Danmörku en annars staðar á Norðurlöndum vegna þess, hve áfengislöggjöfin þar i landi er rúm og sterkt öl almenn neyzluvara. minni loftsteinn lenti með 40.000 km hraða á klst. á fyrri loftsteininn. Myndin var tekin ipeð elektróniskri smásjá, sem ernærri þúsund sinnum næmari en venjulegri smásjá. Leikkonur hreint eitur /V Söngvarinn Eddie Fischer, sem var eitt af átrúnaðargoðum bandarisku þjóðarinnar á sjötta áratugnum, er búinn að gefa út endurminningar sinar. 1 bókinni gefur hann mönnum mjög ágæt ráð og eitt þeirra hljóðar á þessa leið: Sneiðið hjá leikkon- um, þvi þær eru hreinustu eitur- nöðrur. Þær geta ekkert gefið, heldur taka bara við. Þær vilja láta dýrka sig. Eddie ætti sann- arlega að vita, um hvað hann er að tala, þvi hann hefur verið giftur þremur leikkonum: Debbie Reynolds, Elizabeth Taylor og Connie Stevens. Nú Ný London Bridge Föstudaginn 16. marz opnaði Elisabet Bretadrottning nýja brú yfir Thames, sem kemur i stað gömlu London Bridge og ber sama nafn. Hér sést hún koma til athafnarinnar og stigur i land á þeim slóðum, þar sem fisksalar hafa lengi haft aðsetur sitt. heldur hann sig við venjulega stúlku, konuna sina, hana Idu Björn-Hansen. Ekki fylgir sög- unni hverrar þjóðar hún er, en nafniö bendir til þess aö hún sé upprunnin á Norðurlöndum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.