Fréttablaðið - 09.05.2005, Síða 12
Fyrir tæpum áratug var eitt af helstu
viðfangsefnum lögreglunnar í Reykjavík
að hafa afskipti af börnum og ungling-
um sem söfnuðust saman í miðborg-
inni að næturlagi um helgar. Skiptu
ungmennin hundruðum og létu þau
nokkuð að sér kveða í bjartri sum-
arnóttinni innan um eldra fólk sem var
ýmist á leið á eða af öldurhúsum.
Nú er öldin önnur og að sögn kunn-
ugra er fátítt að sjá ungmenni í mið-
borginni á þessum tíma sólarhringsins.
„Ég vil þakka þetta börnunum og ung-
lingunum. Þetta er fyrirmyndarfólk í
dag og mynstur og áherslur hafa gjör-
breyst frá því sem var,“ segir Geir Jón
Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
„Forvarnarstarfið sem unnið er á veg-
um lögreglu, íþróttafélaga, skóla og
fleiri aðila hefur líka skilað sér. Það er
opnari umræða um svona lagað og það
hvernig fólk á að haga sér.“
Geir Jón segir að þessum breytingum fylgi
að landi sjáist ekki lengur en tekur um
leið fram að sorglegt sé að stækkandi
hópur ungs fólks neyti fíkniefna. „Það er
samt mikill minnihluti ungs fólks en mikið
áhyggjuefni engu að síður.“
En þó að börnin og unglingarnir safnist
ekki saman í miðborginni eins og áður er
ekki þar með sagt að lögreglan þurfi ekki
að hafa afskipti af fólki á svæðinu að næt-
urlagi. „Ástandið er öðruvísi, nú er það
fólk á aldrinum 20 til 30 ára sem er frekar
til vandræða. En bragurinn er með allt
öðrum hætti en var og þar blandast líka
inn í að afgreiðslutími veitingastaðanna
var gefinn frjáls.“
12 9. maí 2005 MÁNUDAGUR
Þýskur dýralæknir býður
íslenskum hestamönnum
upp á þá nýjung að
hnykkja hesta þeirra.
Í glæsilegu hesthúsi í Hafnar-
firði tekur á móti okkur fínleg
og brosmild kona í bláum sam-
festingi. Þýski dýralæknirinn
Susanne Braun heilsar á næst-
um lýtalausri íslensku og hlær
þegar hún er spurð að því hvað
hún sé að gera hér og af hverju
hún tali svona gott mál. „Ég
eignaðist íslenskan hest þegar
ég var 12 ára, elskaði allt sem
honum viðkom og vildi koma til
landsins þar sem hann ætti
heima,“ segir Susanne sem rak
búgarð með íslenskum hestum í
tólf ár ásamt þáverandi manni
sínum sem var Íslendingur.
Susanne er með sérpróf í
hestum en hún hefur einnig sér-
hæft sig í hnykkingum hesta
sem er lítt þekkt hér á landi
enda er hún sú eina sem stundar
það eins og er. Hún segist þó
vita af einhverjum dýralæknum
sem huga að námi í slíkum fræð-
um.
Þá leggur Susanne einnig
stund á nálastungur sem hún
lærði meðal annars í Kína.
Susanne segist finna fyrir
töluverðum áhuga fyrir hnykk-
ingum. Til sín leiti bæði tamn-
ingamenn sem þekkja hnykking-
ar erlendis frá og frístundafólk
sem hefur sjálft prófað hnykk-
ingar og vill gera hesti sínum
gott.
Hnykking hjálpar hestum
sem eiga í erfiðleikum með til-
teknar hreyfingar, segir Sus-
anne. Orsökina sé að leita til
margra þátta, til dæmis gamals
slyss eða vandamála sem fórst
fyrir að laga strax. Þá geti
einnig slæm reiðmennska, járn-
ing eða vondur hnakkur leitt til
þess að hestur festist í baki,
skekki sig og fái misjafna
vöðvafyllingu. Slíkt hefur síðan
áhrif á ganglag hestsins. Sus-
anne segir mikið lagast eftir
fyrstu meðferð og oft dugi hún
til. Reiðmaðurinn fái þó leið-
beiningar um áframhaldandi
þjálfun og æfingar.
Susanne verður á Íslandi
fram að heimsmeistaramóti ís-
lenska hestsins sem haldið verð-
ur í Svíþjóð í sumar.
Eftir það segir hún ekkert
ákveðið. Hún geti vel ímyndað
sér að búa á Íslandi. Henni líði
vel hér og fólkið sé skemmti-
legt.
solveig@frettabladid.is
Haustakur
Hvannakur
Hjálmakur
Jafnakur
Krossakur
Kaldakur
Kornakur
Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærðir þeirra og nýtingu, einnig upplýsingar
um hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að við tilboðsgerð er að finna á
vefsíðu Akralands www.akraland.is
Þar er einnig að finna nauðsynleg gögn sem tilboðsgjafar þurfa að kynna sér,
s.s. tilboðsskilmála, tilboðsskrá og sölu- og skipulagsskilmála.
Komnar eru í sölu frábærar eignarlóðir í Akrahverfi, hverfið
er vel staðsett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ.
Þetta eru góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu með fljótfarnar umferð-
aræðar til allra átta.
Um er að ræða 49 lóðir sem seldar verða í tveimur hlutum
og gert er ráð fyrir að þær verði byggingarhæfar í október
á þessu ári.
Tilboðum í 26 lóðir sem eru í fyrrihlutanum skal skila eigi
síðar en föstudaginn 20. maí 2005 kl. 15:00 og í lóðir í
seinnihlutann eigi síðar en föstudaginn 3. júní kl. 15:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Akralands þar sem allar
nánari upplýsingar eru veittar um lóðirnar.
Fasteignasölurnar Borgir og Eignamiðlun munu einnig
annast milligöngu um sölu lóðanna og geta þeir sem hafa
áhuga snúið sér þangað.
gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu
Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
sími 599 4000, fax 599 4001
Tilboðsfrestur 20. maí
Tilboðsfrestur 03. júní
hz
et
a
www.akraland. is
2.220 BÚA Í SVEITARFÉLAGINU
HORNAFIRÐI
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
Unga fólki› til fyrirmyndar
EFTIRMÁL: UNGLINGARNIR Í MIÐBORGINNI
Orðið erlendis merkir samkvæmt
Orðabók Eddu í öðru landi, í út-
löndum, og gefur til kynna stað-
setningu. Að ferðast erlendis merk-
ir þannig að ferðast í útlöndum, en
ekki að að ferðast til útlanda.
Stundum er orðið notað á sér-
kennilegan hátt eins og um hreyf-
ingu sé að ræða, til dæmis „Nýjar
rannsóknir erlendis frá sýna ...“ eða
„Ég er að fara erlendis í næstu
viku“. Heppilegra er að tala um er-
lendar rannsóknir og að fara til út-
landa eða fara utan. Ekki myndum
við segja „í útlöndum frá“, er það?
magnus@frettabladid.is
ERTU AÐ FARA ERLENDIS?
ÁSTKÆRA
YLHÝRA
TEYGIR Á Susanne teygir á vöðvum í hálsi hestsins og athugar hvort vöðvamisvægi eða
spenna sé í hnakka.
Kynningar á hjálpartækjum ást-
arlífsins eiga auknum vinsæld-
um að fagna meðal ungra
kvenna á Íslandi, að sögn starfs-
manns hjá romantik.is sem býð-
ur upp á slíkar kynningar í
heimahúsum. Algengt er að vin-
konuhópar, saumaklúbbar eða
vinnustaðir taki sig til og fái
kynningu á því sem vinsælast er
í hjálpartækjum og undirfatn-
aði.
Algengast er að konurnar séu
í yngri kantinum, frá 20 til 30
ára, og er þetta ekkert feimnis-
mál í þeirra hugum. Spyrja þær
opinskátt um kosti og galla
hvers tækis en vinsælast þessa
daga eru að sögn romantik.is
egg, titrarar og krem.
Karlmenn hafa hins vegar lít-
inn sem engan áhuga á slíkum
kynningum, en kaupa til jafns
við konur í verslunum hjálpar-
tækja. Hefur sýnt sig að konur
senda oft karla sína til að versla
fyrir sig.
Sala hjálpartækja er árstíða-
bundin. Mest er selt fyrir jólin,
á Valentínusar- og konudag. Er
þetta að verða æ minna feimnis-
mál meðal landans enda fjöldi
ástartækjaverslana rekinn á
höfuðborgarsvæðinu.
Heimakynningar á hjálpartækjum vinsælar:
Konur kynnast
kynlífstækjum
Hestahnykkir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA