Fréttablaðið - 09.05.2005, Síða 18
Eru veisluhöld
framundan?
Vantar inn í stellið?
Hafðu samband.
Skipasund 82, 104 Reykjavík – S. 552 – 6255
www.ammaruth.is
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Það ráku ef til vill margir upp
stór augu við áhorf sjónvarps-
þáttarins The Block á Stöð 2
fyrir ekki svo löngu þegar eitt
parið í þættinum, Steven og
Richard, ákváðu að flísa-
leggja ísskápinn sinn í stíl við
eldhúsinnréttinguna. Frétta-
blaðið ákvað að fara á stúf-
ana og athuga hvort þessi
þjónusta sé í boði á Íslandi.
„Það er allt hægt. Maður þarf
bara að nota réttu efnin sem
loða við yfirborðið á því sem
maður er að flísaleggja. Það fer
allt eftir hvernig ísskápurinn er,
hvort brúnirnar séu rúnaðar eða
oddhvassar og annað í þeim
dúr,“ segir Trausti Eysteinsson
sem rekur flísalagningarþjón-
ustuna flisalagnir.is.
„Það er til lím fyrir alla skap-
aða hluti þannig að auðvitað er
hægt að líma ýmislegt á ísskáp.
Ef ég væri beðinn um að flísa-
leggja ísskáp þá myndi ég nátt-
úrulega kynna mér ísskápinn
sem um ræðir og hvernig aðferð
væri best að nota. Það er ekkert
ómögulegt í þessum efnum,“
segir Trausti sem hefur aldrei
lent í því að flísaleggja ísskáp.
„Ég hef verið í þessum bransa í
þrettán ár og það má eiginlega
segja að ég hafi fæðst með múr-
skeið í rassinum – ekki silfur-
skeið eins og sumir. Ég hef ver-
ið beðinn um að flísaleggja loft,
syllur og fleira en aldrei ísskáp.
Það er kannski eitthvað sem á
eftir að komast í
tísku.“
En hvað er í
tísku þessa dag-
ana í flísum? „Það
er margt í gangi
en helstu litirnir
eru kremað og
ljósgráir tónar.
Fólk notar flís-
arnar mjög mikið,
til dæmis til að
ramma inn lagnir
og ég hef verið
mikið í því að
undanförnu að
flísaleggja arna
alveg upp í loft.
Svo hef ég líka
séð heilu húsinu
þar sem flísar eru
notaðar í bókstaf-
lega allt,“ segir
Trausti.
En það er sem
sagt greinilegt að
það er allt hægt að
flísaleggja. Það er
engin ástæða að
nema staðar við ís-
skápinn. Af hverju
ekki að hafa heilt
eldhús í stíl við til
dæmis flísalagt gólf-
ið? Brauðristin,
kaffivélin, ofninn og
hnífapörin gætu ver-
ið í stíl. Það kallar
maður sko að flísa-
leggja heimilið.
lilja@frettabladid.is
]
Allt er hægt að flísaleggja
Sumarblóm
Á meðan von er á næturfrosti er ekki hægt að setja út sumarblómin. Þó er
hægt að koma þeim fyrir í litlum kerum sem hægt er að kippa inn yfir nóttina
til að kuldinn drepi þau ekki og setja þau svo út yfir daginn. [
Flísar bjóða upp á óendanlega möguleika.
Trausti hefur verið að flísaleggja í þrettán ár en hefur aldrei lent í því að flísaleggja ísskáp
eða önnur heimilistæki.
Flísalagður ísskápur
SKÁPAHÖLDUR
Yfir 300
tegundir
á lager
Laugavegi 29
Sími: 552 4320 - www.brynja.is