Fréttablaðið - 09.05.2005, Qupperneq 67
FÆDDUST fiENNAN DAG
1265 Dante Alighieri, höf-
undur Gleðileiksins guðdóm-
lega.
1837 Adam Opel bílasmiður
og framleiðandi.
1918 Mike Wallace frétta-
maður.
1936 Glenda Jackson leik-
kona.
1936 Albert Finney leikari.
„Ég ætla ekki að gefa kost á mér
áfram sem formaður sambands-
ins. Ég er búinn með kvótann og
það er kominn tími til að einhver
annar taki við,“ segir Benedikt
Davíðsson sem hefur gegnt starfi
formanns Landssambands eldri
borgara í átta ár.
Á þeim tíma segir hann að beri
hæst hve virknin sé orðin mikil í
öllum aðildarfélögunum. Einnig
hve mikið hafi unnist í hags-
munamálum sem snúi að stjórn-
völdum. „Það sem kannski helst
er tekið eftir er að umræðan er
orðin miklu meiri um þennan
málaflokk en var,“ segir Benedikt
en hann telur að fyrir átta árum
hafi málaflokkurinn nánast verið
í þagnargildi.
„Við höfum reynt að troða okk-
ur alls staðar að og vera frek og
láta í okkur heyra,“ segir Bene-
dikt sem telur það hafa stuðlað að
mikilli viðhorfsbreytingu, sér-
staklega gagnvart eldra fólki á
stofnunum.
Þá hafi samtökin einnig komið
sér að í nefndum og ráðum. „Til
dæmis eru fulltrúar frá Lands-
sambandinu inni í stjórn fram-
kvæmdasjóðs aldraðra sem ekki
var áður,“ segir Benedikt auk
þess sem fulltrúar frá aðildarfé-
lögum sambandsins um land allt
séu í samstarfsnefndum sveitar-
félaganna. Með því telur Bene-
dikt að hans fólk verði mun sýni-
legra og geti komið beint að mál-
um.
Benedikt segir starfið með
eldri borgurum hafa verið mjög
ánægjulegt. Nú sé hann þó kom-
inn á þann aldur að hann ætli að
verða sjálfselskur og leika sér
svolítið enda að nálgast áttrætt.
„Ég hef í nóg að horfa,“ segir
Benedikt sem er smiður og ætlar
að leika sér í því, auk þess sem
hann mun eyða frítíma sínum í
sumar norður í Eyjafirði. ■
18 9. maí 2005 MÁNUDAGUR
PAUL GAUGUIN (1848-1903)
lést þennan dag
Verðum að vera frek
og láta í okkur heyra
TÍMAMÓT: BENEDIKT DAVÍÐSSON LÆTUR AF FORMENNSKU
„List er annað hvort ritstuldur eða bylting.“
Paul Gauguin var franskur listmálari. Hann var góðvinur Vincent Van
Gogh. Hann eyddi síðari hluta ævi sinnar á suðlægum slóðum.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Páll Pamplicher Pálsson hljómsveitar-
stjóri er 77 ára.
Rannveig Rist, forstjóri Ísal er 44 ára.
Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður
er 32 ára.
Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona
er 31 árs.
Ásthildur Helgadóttir knattspyrnukona
er 29 ára.
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir er 29 ára.
Hin vinsæla bandaríska Buffalo Bill-sýning um villta
vestrið var í fyrsta sinn sett á stokk í Evrópu á þess-
um degi árið 1887. Fyrirmynd Buffalo Bill, maður
að nafni Cody, hafði 15 árum áður orðið lands-
þekktur í Bandaríkjunum þegar hann var gerður að
hetju í bókum Edward Judsons, en Cody vann sem
bufflaveiðimaður. Judson var einnig sá er sann-
færði Cody um að taka þátt í sýningum byggðum á
bókunum.
Viktoría drottning Englands var meðal gesta þegar
fyrsta sýningin í Evrópu var sett upp í Earls Court í
London. Sýningin vakti mikla lukku og varð síðar
heimsþekkt. Hún var sett upp um alla Evrópu og
var meðal annars sýnd í Mongólíu.
Cody vann við sýninguna næstu 30 árin. Eftir að
sýningin fór á hausinn hélt hann áfram að koma
fram í öðrum svipuðum sýningum þar til tveimur
mánuðum fyrir dauða sinn árið 1917. Yfir 18 þús-
und manns voru viðstaddir útför hans og dregur
leiði hans við Denver enn að sér mörg þúsund
gesti á hverju ári.
9. MAÍ 1887
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1593 Konungur úrskurðar að
innsigli Íslands skuli vera
óflattur, óhöfðaður þorskur
með kórónu konungs.
1855 Prentfrelsi er lögleitt á Ís-
landi.
1945 Bandaríkjamenn hand-
sama Herman Göring.
1955 Vestur-Þýskaland gengur í
NATO.
1974 Rithöfundar sameinast í
eitt stéttarfélag, Rithöf-
undasamand Íslands.
1974 Sverrir Hermannsson talar í
rúmar fimm klukkustundir
á Alþingi til að mótmæla
þingrofi.
Buffalo Bill í Englandi
Ólafur S. Kristmundsson
Austurbergi 8. Reykjavík
er 50 ára í dag.
BÚINN MEÐ KVÓTANN Benedikt segir margt hafa áunnist á þeim átta árum sem hann
hefur gegnt formennsku. Eldri borgarar séu nú orðnir mun sýnilegri en þeir voru áður.
Í dag er Evrópudagurinn en
hann er rakinn til Schuman-yfir-
lýsingarinnar svokölluðu frá ár-
inu 1950. Þá lýsti Robert Schum-
an, þáverandi utanríkisráðherra
Frakklands, því yfir að samruna-
ferli Evrópu væri hafið.
Ákveðið var að hefja náið
samstarf milli Evrópuríkja og
koma stofnun á laggirnar sem
hefði yfirþjóðlegt vald. „Þetta
var gjörbylting, því þótt slíkt
samstarf hafi áður komið til
greina hafði engum dottið í hug
að framselja ákvörðunarvald til
einnar sameiginlegrar stofnun-
ar,“ segir Eiríkur Bergmann
Einarsson, stjórnmálafræðing-
ur.
Upphaflega stóðu sex ríki að
samstarfinu en síðan hefur það
þróast yfir í Evrópusambandið
sem við þekkjum í dag. Eiríkur
er þess fullviss að Evrópusam-
runinn hafi forðað álfunni frá
ófriði.“Eitt af meginmarkmiðum
samstarfsins var að koma í veg
fyrir styrjaldir og það hefur tek-
ist. Í dag er til dæmis óhugsandi
að Þjóðverjar ráðist inn í Frakk-
land og það má rekja til þessa.“
Í Frakklandi er Evrópudagur-
inn haldinn hátíðlega og Eiríkur
vonar að þess verði ekki langt að
bíða að hið sama gerist hér á
landi. „Að mörgu leyti erum við í
Evrópusambandinu þótt við við-
urkennum það ekki.“ ■
Evrópudagurinn er í dag
EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON
ANDLÁT
Katrín Helgadóttir, fv. skólastjóri Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur, er fallin frá.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Magnús Einarsson, bifreiðastjóri frá
Tjörnum, Strandaseli 11, Reykjavík, lést á
Vífilstöðum föstudaginn 6. maí.
Sigurður Eggert Magnússon, Las Vegas,
Nevada Bandaríkjunum, andaðist á
sjúkrahúsi í Las Vegas sunnudaginn 3.
apríl. Bálför hefur farið fram.
JAR‹ARFARIR
15.00 Eyjólfur Kristinn Lemann Al-
freðsson, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
!
"
# !$
%&
'
(!
)*
+ ,
*
-
'
*.'
-/'
!(
#$
)0%
1
*!&
2
3
32
4
$'!$ * 5!
6
*7
8
*
9
*
6
*,$
*:*,
;* *
8 < =
2
7 >?0*? 00+
!
$
1
!% 7 >@00
%&A ?
$1 B
%C
11D1
$
1
* 3
1
&
!
1CE,$
,
F1 6
!
-G!
!# !*?H'!E)F
7G
'!$ I
J-G!
D
@80H*
! % 6
#
,$
(E6
I
* $1
+!I8
(
1!
F"
!
1!$
# -G!
1
#