Fréttablaðið - 09.05.2005, Page 71
22 9. maí 2005 MÁNUDAGUR
FÓTBOLTI Juventus er komið á topp-
inn í ítölsku knattspyrnunni eftir
1-0 útisigur í stórleiknum gegn
Milan í gær. Leikurinn var
hnífjafn en Juventus tókst að
halda forystunni sem þeir náðu
um miðjan fyrri hálfleik og fóru
því með þrjú stig í farteskinu en
skallamark David Trezuguet
skildi liðin að.
Það virtist stefna í óefni fyrir
Juventus í byrjun því Milan byrj-
aði af miklum krafti og uppskar
snemma tvö góð marktækifæri
sem liðinu tókst ekki að nýta. Það
var því að nokkru leyti þvert gegn
gangi leiksins þegar David
Trezeguet skoraði með skalla eftir
stórbrotna sendingu frá Al-
essandro Del Piero. Milanliðinu
virtist brugðið við þetta mark og
gestirnir náðu tökum á leiknum.
Þjálfara Milan, Carlo Ancelotti
þótti nóg um í hálfleik og gerði
taktíska breytingu ásamt því að
setja Serginho inn á í stað Andrea
Pirlo. Sú breyting virkaði sem
vítamínsprauta fyrir Milan og
skömmu síðar setti hann Filippo
Inzaghi inn fyrir Jon Dahl Tomas-
son. Það leið ekki á löngu þar til
Inzaghi var nálægt því að jafna
metin en honum brást fótafimin í
það skiptið. Eftir þetta skiptust
liðin á að skapa sér marktækifæri
og Del Piero var nálægt því að
koma gestunum í lykilstöðu en
skalli hans fór í slána. Hvað sem
liðsmenn Milan reyndu þá gekk
þeim erfiðlega að brjóta vel
skipulagða vörn gestanna niður
og skora markið sem hefði haldið
þeim í toppsætinu en niðurstaðan
varð sú sem þeir óskuðu sér allra
síst, tap á heimavelli og 2. sætið í
deildinni.
Milan virðist vera í einhverri
lægð og sú lægð kemur ekki á
besta tíma fyrir liðið sem er í bar-
áttu við Juventus um ítalska
meistaratitilinn og framundan er
úrslitaleikur við Liverpool í
Meistaradeild Evrópu. Betur má
ef duga skal hjá Milan sem verða
að hysja upp um sig buxurnar ef
þeir ætla ekki að enda tómhentir í
lok maí. ■
MEÐ AÐRA HÖND Á TITLINUM Leikmenn Juventus féllust í faðma að leik loknum í
gær enda tryggði sigurinn á AC Milan þeim nánast örugga forystu á toppi ítölsku
deildarinnar. Þrjár umferðir eru nú óleiknar. AP
Góð staða Juventus
Juventus s‡ndi styrk sinn flegar li›i› lag›i AC Milan a› velli í uppgjöri toppli›-
anna á Ítalíu í gær.
HÁÞRÝSTIDÆLA
110 BAR
12.490 kr.
Öll helstu merkin í verkfærum.
Ótrúlegt úrval af BMF festingum,
boltum, skúfum og saum.
Sjón er sögu ríkari.
Súperbygg, þar sem þú færð
meira fyrir minna.
Opið mán-fös 8-18 og lau 9-15
Bæjarhaun 8 Hafnarfjörður
Sími: 414-6080
NÝTT Á ÍSLANDI
DEWALT SDS
PLUS BORHAMAR
600W
18.490 kr.
AXA LEX
STORMJÁRN
verð frá 1.096 kr.
VINNUBORÐ
SAMFELLANLEGT
1.389 kr.
VERKFÆRAKASSI
Á HJÓLUM
5.800 kr.
HANDLAUG
Á VEGG 58X46
4.490 kr.
HANDSÖG
JACK 550 MM
699 kr.
SKRÚFUBOX
VERKFÆRABOX
MALARSKÓFLA
verð frá 390 kr. 1.950 kr.
ALLIR
DAG
AR T
ILBO
ÐSDA
GAR
690 kr. pr.stk
HRÍFA,
BEÐAKLÓRA
BEÐASKAFA
Íslendingar erlendis:
Arnar fiór
skora›i
FÓTBOLTI Arnar Þór Viðarsson
skoraði annað mark Lokeren er
liðið mætti Oostende í belgísku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Lokeren vann leikinn 2-0 en mark
Arnars kom á 72. mínútu. Arnar
Grétarsson og Rúnar Kristinsson
voru einnig í byrjunarliði Lokeren
en var báðum
skipt út af í
seinni hálfleik.
Grétar Rafn
Steinsson var í
byrjunar l ið i
Young Boys
gegn Zurich í
svissnesku 1.
deildinni og
skoraði jöfn-
u n a r m a r k
leiksins sem
fór 1-1.
S t e f á n
Gíslason og fé-
lagar í Lyn töp-
uðu gegn Rosenborg, 2-1, í norsku
úrvalsdeildinni. Lið Jóhannesar
Harðarsonar vann góðan sigur á
Odd Grenland, 4-0, á heimavelli.
Jóhannesi var skipt út af á
lokamínútu leiksins.
Aalesund tapaði fyrir Tromsö á
útivelli og spilaði Haraldur Guð-
mundsson allan leikinn fyrir
Aalesund. Lið Árna Gauts Arason-
ar, Vålerenga, vann Bodo/Glimt,
1-0.
Hannes Sigurðsson kom inn á
sem varamaður í byrjun seinni
hálfleiks er lið hans, Viking, tap-
aði á heimavelli fyrir Molde, 3-2.
ARNAR ÞÓR VIÐARS-
SON Skoraði fyrir
Lokeren í gær.
Hver tekur
fyrsta bikar
ársins?
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH og
bikarmeistarar Keflavíkur mæt-
ast í kvöld í Meistarakeppni KSÍ
en leikurinn fer fram á aðalvellin-
um í Kaplakrika.
Hvorugt þessara liða hefur
áður unnið bikarinn þannig að það
er ljóst að nýtt nafn verður ritað á
bikarinn í kvöld. Meistarakeppnin
markar yfirleitt byrjun sumars-
ins og því er um að gera fyrir
knattspyrnuunnendur að skella
sér í Kaplakrika og sjá þessi tvö
lið etja kappi um bikarinn.
FH verður án Tommy Nilsen
sem tekur út leikbann en hann var
úrskurðaður í leikbann eftir
keppnistímabilið í fyrra. Annars
eru flestir leikmenn liðanna klárir
í þennan fyrsta slag sumarsins og
það verður án efa hart barist í
Kaplakrika í kvöld. Dómari í
kvöld er Egill Már Markússon og
honum til aðstoðar verða Einar K.
Guðmundsson og Sigurður Óli
Þorleifsson. Varadómari er Krist-
inn Jakobsson. ■
Wise hættur
hjá Millwall
FÓTBOLTI Dennis Wise er hættur
sem knattspyrnustjóri Milwall en
hann tilkynnti ákvörðun sína í
dag. Dennis Wise sem hefur verið
spilandi knatt-
spyrnustjóri
hjá félaginu
sagði ástæð-
una vera ein-
falda. „Ég fór á
fund með
s t j ó r n a r f o r -
manninum og
hann sagði
mér sína
stefnu og ég
var hreint út
sagt ekki sam-
mála henni,“
sagði Wise.
Ray Wilkins
hefur verið
nefndur til sögunnar sem
eftirmaður Wise. ■
WISE OG PAPHITIS
Þjálfarinn og stjórnar-
formaðurinn sam-
fagna.