Fréttablaðið - 09.05.2005, Qupperneq 74
MÁNUDAGUR 9. maí 2005
10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Fö 13/5 kl 20
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
- Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 27/5 kl 20
- Síðustu sýningar
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Lau 14/5 kl 14 - UPPS.
Su 22/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 4/6 kl 14
Su 5/6 kl 14, Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14
PURPURI - TÓNLEIKAR FABULU
Margrét Kristín Sigurðardóttir
Fi 12/5 kl. 21:00
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fi 12/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Fi 12/5 kl 20 - UPPS., Fö 13/5 kl 20 - UPPS.,
Lau 14/5 kl 20 - UPPS., Fi 19/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fi 12/5 kl 20 - Aukasýning
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Fö 13/5 kl 20, Lau 14/5 kl 20
- Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Auglýsing um framlagningu
skattskrár 2004 og virðisaukaskatts-
skrár fyrir rekstrarárið 2003
Í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt er
hér með auglýst að álagningu skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem
skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laganna.
Tekin hefur verið saman skattskrá þar sem fram koma barnabætur,
vaxtabætur, tekjuskattur, eignarskattur og önnur þau gjöld sem skattstjóri lagði á
hvern gjaldanda í umdæmi sínu álagningarárið 2004, vegna tekna ársins 2003 og
eigna í lok þess árs.
Einnig hefur, samkvæmt 46. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt verið tekin
saman virðisaukaskattsskrá fyrir rekstrarárið 2003. Tilgreindur er ákvarðaður
virðisaukaskattur eða endurgreiddur virðisaukaskattur virðisaukaskattsskyldra aðila.
Skattskrár og virðisaukaskattsskrár verða lagðar fram í öllum skatt-
umdæmum mánudaginn 9. maí 2005 og liggja frammi hjá skattstjórum í hverju um-
dæmi og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í
hverju skattumdæmi dagana 9. maí til 20. maí 2005 að báðum dögum meðtöldum.
9. MAÍ 2005
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Skreytir me› háu nótunum
Síðustu útskriftartónleikar tón-
listardeildar Listaháskóla Íslands
þetta vorið verða haldnir í kvöld í
Íslensku óperunni. Það er Sólveig
Samúelsdóttir sem lýkur tónleika-
röðinni með því að syngja sönglög
og aríur eftir Purcell, Bizet, Ture
Rangström, Sibelius, Dvorak, Jór-
unni Viðar, Richard Strauss,
Joaquin Rodrigo og Tsjaíkovskí.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20
og meðleikari á píanó verður Ant-
onia Hevesi.
Sólveig hefur heldur betur ver-
ið önnum kafin undanfarið. Auk
þess að æfa sig fyrir útskriftar-
tónleikana syngur hún í óperunni
Apótekaranum, sem sýnd er í Ís-
lensku óperunni þessa dagana.
Fyrir helgi lagði hún svo síðustu
hönd á lokaritgerð sína við skól-
ann.
„Það hefur verið alveg nóg að
gera.“
Lokaritgerðin fjallar um radd-
gerðir kvenna og hvernig hægt er
að aðgreina þær, sem oft vill
flækjast fyrir jafnvel hörðustu
áhugamönnum um klassískan
söng. Flokkarnir eru fleiri en bara
alt og sópran.
„Raddgerðir kvenna eru
óþrjótandi uppspretta vanga-
veltna, og sjálf hef ég lent í vand-
ræðum með að staðsetja mína
rödd. Fyrst var ég sópran, en núna
ber ég heitið messósópran, nánar
tiltekið hár messósópran eða kól-
eratúrmessósópran.“
Messósópranrödd liggur að-
eins neðar en sópranrödd, en Sól-
veig segir þetta ekki svo einfalt að
eingöngu sé farið eftir því hvort
söngkona kemst upp á ákveðinn
tón.
„Sjálf hef ég mikinn hreyfan-
leika í röddinni. Ég kemst hátt
upp, en þarna uppi eru ekki beint
nótur sem ég vil syngja laglínur á.
Ég vil heldur syngja neðar en nota
háu nóturnar til þess að skreyta
með.“
Aðalkennari Sólveigar hefur
verið Elísabet Erlingsdóttir söng-
kennari en auk þess hefur hún
notið leiðsagnar píanóleikaranna
Richards Simm og Antoníu
Hevesi. Í janúar síðastliðnum
kom hún fram sem einsöngvari
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
framhaldi af samkeppni LHÍ og
Sinfóníuhljómsveitarinnar. Sól-
veig tók þátt í uppfærslu Óperu-
stúdíós LHÍ og Íslensku óperunn-
ar á Sígaunabaróni Johanns
Strauss vorið 2004 og fer með
hlutverk Volpinos í uppfærslu Óp-
erustúdíósins á Apótekaranum
eftir Haydn vorið 2005. Sólveig
hefur auk þess komið fram sem
einsöngvari við fjölmörg önnur
tækifæri. ■
SÓLVEIG SAMÚELSDÓTTIR Heldur útskriftartónleika sína frá Listaháskóla Íslands
í Íslensku óperunni í kvöld.
■ TÓNLEIKAR