Fréttablaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 76
Það hefur lengi staðið til að gera
kvikmynd eftir hinni frábæru
skáldsögu Douglas Adams, The
Hitchhiker’s Guide to the Galaxy,
og margir leikstjórar hafa verið
orðaðir við verkefnið. Það kom að
lokum í hlut breska nýliðans Garth
Jennings að koma þessari geggjuðu
sýn Adams á hvíta tjaldið og það
verður að segjast eins og er að hann
skilar vandasömu verki með mikilli
prýði. Það munar sjálfsagt mest um
það að myndin er öll mjög bresk.
Allir helstu leikarar eru Bretar og
eins og bresk bíólög gera ráð fyrir
verður því áherslan á persónurnar
og söguna frekar en tæknibrellurn-
ar sem þó eru ómissandi í þessum
geggjaða óð til alheimsins.
Myndin hefst á því að hinn væru-
kæri Arthur Dent kemst að því að
það stendur til að eyða Jörðinni þar
sem hún stendur í vegi fyrir lagn-
ingu hraðbrautar í gegnum vetrar-
brautina. Vinur hans sem er geim-
ferðalangur sem skrifar fyrir
Handbók puttaferðalangsins um
vetrarbrautina kippir honum með
sér út í geim augnabliki áður en
Jörðinni er eytt og þá hefst ótrúlegt
ferðalag jarðarbúans um alheiminn
en vitleysan þar er öll eins og á
Jörðinni, bara milljón sinnum um-
fangsmeiri og fáránlegri.
Martin Freeman, best þekktur
sem Tim úr The Office, fer ákaflega
vel með hlutverk Arthurs og nýtur
þess að vera umkringdur eðalleik-
urum í minni og stærri aukahlut-
verkum. Stephen Fry ljær leiðbein-
ingarriti puttalingsins þíða rödd
sína og Mos Def gerir Ford prýðileg
skil. Alan Rickman fer á kostum
sem rödd þunglynda vélmennisins
Marvins, sem er án efa skemmtileg-
asta persóna myndarinnar, og Bill
Nighy og John Malkovich klikka
ekki í sínum hlutverkum. Þá er Sam
Rockwell gersamlega óþolandi sem
Zaphod Beeblebrox, forseti vetrar-
brautarinnar, en það vill svo vel til
að Zaphod er óþolandi persóna.
Myndin er hvorki jafn fyndin né
jafn skemmtileg og bókin en stend-
ur þó fyllilega fyrir sínu og þótt
ýmsar breytingar á sögunni muni
fara í taugarnar á heittrúuðum að-
dáendum Adams liggur styrkur
myndarinnar ekki síst í því að hún
höfðar til allra og getur, ekki síður,
skemmt þeim sem ekki hafa lesið
bók Adams. Hinir ólesnu hafa jafn-
vel forskot á hina innvígðu og fá
meira fyrir sinn snúð í þessari
fantasíu sem minnir um margt á
geimdelluna The Fifth Element eft-
ir Luc Besson. Þórarinn Þórarinsson.
Kostulegur heimsendir
THE HITCHHIKER’S GUIDE TO THE
GALAXY
LEIKSTJÓRI: GARTH JENNINGS
AÐALHLUTVERK: MARTIN FREEMAN, MOS
DEF, ZOOEY DESCHANEL,
SAM ROCKWELL
NIÐURSTAÐA: Myndin er hvorki jafn fyndin né
jafn skemmtileg og bókin en styrkur myndar-
innar liggur ekki síst í því að hún höfðar til allra
og getur, ekki síður, skemmt þeim sem ekki
hafa lesið bók Adams.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
ÁSKRIFT: 515 6100 | WWW.STOD2.IS | SKÍFAN | OG VODAFONE
ÍSLENSKIR MÁNUDAGAR
Strákarnir í kvöld kl. 20
Skómarkaðurinn
Glæsibæ
S: 693-0997
SKÓMARKAÐURINN
GLÆSIBÆ
Athugið lokavika
Allt á að seljast
Ótrúleg verð
Töskur og skór frá kr. 500.-
Opið mánudag - föstudags 10-18