Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 6
6 21. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR Framhald barnaklámsmála: Sumarlöng leit í tölvum LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðj- an mánuðinn. Sigurbjörn Víðir Eggertsson að- stoðaryfirlögregluþjónn giskar á að um hálfur mánuður geti liðið þar til mál manns á fertugsaldri sem kærður hefur verið fyrir ofbeldi gegn fjórum stúlkum á aldrinum þriggja til þrettán ára verður sent til saksóknara. Maðurinn tók meðal annars myndir af stúlkunum og vistaði í tölvu með öðru barnaklámi sem hann hlóð niður af netinu. Ekki er vitað til þess að hann hafi dreift myndum af stúlkunum. Þá er lögregla enn að fara yfir tölvubúnað 32 ára manns sem hand- tekinn var eftir alþjóðlegar aðgerð- ir Europol gegn barnaklámhringi í þrettán löndum. Átta tölvur voru gerðar upptækar hjá manninum, auk diska og myndbanda. „Það er mikil vinna að fara yfir þetta,“ segir Sigurbjörn Víðir og útilokar ekki að sumarið fari í þá rannsókn. „En við reynum að flýta þessu eins og við getum.“ -óká Verðhækkun þotueldsneytis: Flugfargjöld hækka ekki MILLILANDAFLUG Bandaríska flug- félagið Delta hækkaði flest far- gjöld í flugi yfir Atlantshafið 15. júní vegna hækkunar á þotuelds- neyti síðustu mánuði. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni. „Við höfum verið að taka þennan kostnað á okkur,“ segir Birgir Jónsson, framkvæmda- stjóri Iceland Express, sem á í harðri samkeppni í lágfargjalda- fluginu. „Við viljum ekki hækka fargjöldin.“ Hann á þó ekki von á lækkun fargjalda á næstunni. „Það er ekkert sérstakt á döf- inni hjá okkur hvað það varðar,“ segir Guðjón Arngrímsson, upp- lýsingafulltrúi Icelandair, um hækkun fargjalda. Guðjón segir alþjóðlega samkeppni á flug- markaði vera mjög virka og bendir líka á að flugfélög noti mjög ólíkar aðferðir til verðlagn- ingar. Það sé ekki sjálfgefið að hækkanir á eldsneytisverði skili sér út í fargjöldin. Þ o t u e l d s - neyti hækk- aði um 45 p r ó s e n t frá mars til apríl, en lækkaði aftur í maí. Almennt hefur verðið hækkað og sér ekki fram á lækkun á næstunni. ■ Stjórnarandsta›an bar sigur úr b‡tum Stórtí›indi ur›u í líbanskri stjórnmálasögu á sunnudaginn flegar ands‡rlensku flokkarnir sigru›u í flingkosningunum. Allt útlit er fyrir a› Saad Hariri fylgi í fótspor fö›ur síns og ver›i forsætisrá›herra landsins. LÍBANON Líbanska stjórnarandstað- an sigraði í þingkosningunum í landinu en fjórða og síðasta umferð þeirra fór fram í fyrradag. Þar með snarminnka ítök Sýrlendinga í land- inu. Lokaumferðarinnar í líbönsku kosningunum hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu en þá var kos- ið í norðurhluta landsins. Eftir fyrsta hlutann 29. maí virtist allt stefna í auðveldan sigur andsýr- lensku flokkanna en gott gengi Hiz- bollah í öðrum hlutanum og óvænt velgengni gamla byltingarleiðtog- ans Michel Aoun í þriðja hlutanum hleypti mikilli óvissu í spilið. Framan af kjördegi var kjörsókn nokkuð dræm en eftir ákall Saad Hariri, leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, kom kippur í aðsóknina. Þeg- ar yfir lauk höfðu 48 prósent kjós- enda neytt atkvæðisréttar síns, sem er talsverð aukning frá því í kosn- ingunum 2000. Kosningabandalag Hariri þurfti 21 sæti af 28 til að tryggja sér meirihluta á líbanska þinginu en þegar þorri atkvæðanna hafði verið talinn virtist allt stefna í að banda- lagið fengi öll sætin 28. Í gærmorg- un viðurkenndi Suleiman Franjieh, leiðtogi bandamanna Sýrlendinga í Líbanon og fyrrverandi innanríkis- ráðherra, að þeir hefðu beðið lægri hlut. Mikil fagnaðarlæti gripu um sig í Trípólí, höfuðstað norðursins, og eins veifuðu margir fánum og þeyttu bílflautur í höfuðborginni Beirút. Allt útlit er fyrir að Saad Hariri myndi nýja ríkisstjórn og verði for- sætisráðherra, rétt eins og Rafik faðir hans, sem ráðinn var af dögum fyrr á árinu. Hans bíða þó ærin verkefni, til dæmis að lagfæra bág- borinn efnahag þjóðarinnar, aðstoða Sameinuðu þjóðirnar við rannsókn á morðinu á föður hans og verða við kalli samtakanna um afvopnun skæruliðahópa, sérstaklega Hiz- bollah. Enn fremur mistókst kosninga- bandalagi hans að ná tveimur þriðju þingsætanna og getur því ekki gert neinar breytingar á stjórnar- skránni. Það þýðir að ekki verður hróflað við Emile Lahoud forseta, sem er dyggur bandamaður Sýrlendinga, en hann lét á síðasta ári lengja kjör- tímabil sitt um tvö ár fyrir atbeina stjórnvalda í Damaskus. Lahoud mun eflaust reynast Hariri óþægur ljár í þúfu. sveinng@frettabladid.is RARIK Ólafsfirði: Bilun í rafkerfi ORKUMÁL Rafmagnstruflanir stóðu í um klukkustund í Ólafsfirði frá klukkan fimmtán mínútur gengin í tólf á sunnudagskvöldið. Helgi Jónsson, verkstjóri hjá RARIK á Norðurlandi, segir há- spennustreng fyrir hitaveitudælur hafa bilað og því hafi slegið út. „Það fór einn fasi af kerfinu, en hinir voru inni,“ segir hann, en vægur straumur var á. Hann segir rafmagnstæki viðkvæm fyrir sveiflum af þessu tagi og þótt enn hafi ekki heyrst af skemmdum vegna þessa útilokar hann ekki að einhver eigi eftir að reka sig á brokkgeng rafmagnstæki. -óká Ólöglegt vinnuafl: Tæplega 50 ábendingar ATVINNULÍF Alþýðusambandi Íslands hafa borist tæplega 50 ábendingar um erlenda starfsmenn sem hugs- anlega eru starfandi hér á landi án tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa. Öll slík mál eru könnuð ofan í kjölinn en sérstöku átaki gegn ólög- legu vinnuafli var hleypt af stokk- unum fyrir tveimur mánuðum. Að sögn starfsmanna ASÍ hafa enn sem komið er einungis komið upp örfá tilfelli sem krefjast nánari rann- sóknar og í þeim er unnið áfram. - aöe ÍRAN Geta Íslendingar gert betur í jafnréttismálum? SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga Íslendingar að hefja hval- veiðar í atvinnuskyni? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 26,62% 73,38% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Flott og sexí www.heineken.is VINSÆLL Í TRÍPÓLÍ Flokkur Saad Hariri nýtur mikilla vinsælda í Trípólí, stærstu borgar norðurhluta landsins. Stuðningsmenn hans tóku upp á því að þekja VW-bjöllu með myndum af honum en það vildi lögreglan hins vegar ekki sætta sig við og fjarlægði því bílinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P ELDSNEYTISVERÐ Á UPPLEIÐ Íslensku millilandaflugfélögin hyggjast ekki hækka fargjöld á næstunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I UPPTÆKT KLÁMEFNI Um miðj- an mánuðinn var Íslendingur handtekinn í aðgerðum undir stjórn Europol, en þær náðu til 150 manns í þrettán löndum. Framhaldsskólar landsins: Aldrei fleiri n‡skráningar MENNTAMÁL Aldrei hafa fleiri ný- nemar úr einum og sama árgangi skráð sig til náms í framhaldsskól- um landsins, en nýlega fór í fyrsta sinn fram rafræn innritun og gekk hún vel í alla staði. Alls sóttu rúmlega 4.200 nemendur, eða 95 prósent allra nemenda úr tíunda bekk, um skóla- vist. Þrátt fyrir ásóknina munu langflestir nemendur komast að þar sem þeir óska en þó þurfa þrír skól- anna; Kvennaskólinn, Menntaskól- inn við Hamrahlíð og Verslunar- skóli Íslands, að beita takmörkun- um. - aöe ATKVÆÐI ENDURTALIN Íranskir embættismenn hafa ákveðið að telja á ný atkvæði á nokkrum kjör- stöðum í landinu vegna gruns um að brögð hafi verið höfð í frammi í forsetakosningunum fyrir helgi. Umbótasinnum vegnaði illa í kosn- ingunum á meðan harðlínumaður- inn Mahmoud Ahmadinejad náði óvænt öðru sætinu. Kosið verður á milli hans og Hashemi Rafsanjani á föstudaginn. Launakröfur kennara: Borgin s‡kn- u› í héra›i DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur sýknaði í gær Reykjavík- urborg af kröfum heimilisfræði- kennara um vangoldin laun upp á tæpar 700 þúsund krónur. Konan vísaði til samþykktar borgarráðs frá því í júní árið 1981 um að greiða bæri heimil- isfræðikennurum tvær klukku- stundir á viku fyrir matarinn- kaup, en þeir höfðu farið fram á sérstaka þóknun fyrir þann vinnuauka. Með nýjum kjarasamningi árið 2001 féllu þær greiðslur niður og lítur dómurinn svo á að þær greiðslur hafi verið felldar inn í samninginn. Þá átaldi dómurinn að krafa konunnar skyldi ekki koma fram fyrr en árið 2004. -óká DANMÖRK NEITAÐI AÐ GEGNA HERÞJÓN- USTU Hæstiréttur Danmerkur dæmdi í gær 32 ára gamlan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að neita að gegna herþjón- ustu. Árið 1989 var maðurinn fyrst kallaður í herinn en hafði hann boðið að engu. Í kjölfarið hófst svo málarekstur sem nú hefur verið til lykta leiddur. INNFLYTJENDUR ÓHÆFIR Ný rannsókn sem sagt var frá í dagblaðinu Politiken sýnir að allt að helming allra danskra innflytjenda úr þriðja heimin- um skortir nauðsynlega mennt- un og reynslu til að geta tekið þátt í dönsku atvinnulífi, jafn- vel í störfum sem krefjast lítill- ar menntunar. Þetta þýðir að þeim gæti reynst erfitt að finna störf, sem aftur mun halda þeim í fátæktargildru á jaðri samfélagsins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.