Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 27
 dögum AFMÆLI Inga J. Backman sópransöngkona er 58 ára. María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, er 34 ára. Huldar Breiðfjörð rithöfundur er 33 ára. FÆDDUST fiENNAN DAG 1688 Alexander Pope skáld. 1953 Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætis- ráðherra Pakistana. 1967 Nicole Kidman leikkona. 1973 Juliette Lewis leikkona. Þennan dag árið 1982 fæðist prins- inum og prinsessunni af Wales, Karli og Díönu, lítill drengur. Fæðingin tók sextán tíma á sjúkrahúsi St. Mary í London. Drengurinn var nefndur Vilhjálmur og varð þar með annar í röðinni að konungstigninni á eftir föður sínum. Margmenni hafði safn- ast saman fyrir framan spítalann og beið frétta af fæðingunni. Blóm bárust liðlangan daginn og var farið með þau inn á sjúkrahúsið. Nokkur þúsund manns söfnuðust einnig saman fyrir framan Buckingham-höll þar sem tilkynnt var um fæðinguna. Elísabet drottning hélt áfram venju- bundum skylduverkum sínum en var þó að sögn í skýjunum yfir fæðing- unni. Vilhjálmur prins var fyrsti konungs- erfinginn sem fæddist á sjúkrahúsi. Bróðir hans Harry fæddist 15. sept- ember tveimur árum síðar. Átta ára gamall var Vilhjálmur sendur í skóla í Wokingham og þrettán ára hóf hann nám í hinum virta skóla Eton. Síðar stundaði hann listasögunám í elsta háskóla Skotlands, St. Andrews. Vilhjálmur hefur þurft að þola ýmis- legt í gegnum tíðina, bæði skilnað foreldra sinna og válegan dauða móður sinnar í ágúst 1997. ÞETTA GERÐIST N‡r erfingi í konungsfjölskyldunni 21. JÚNÍ 1982 Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á 70 ára afmæli mínu hinn 7. júní sl. með gjöfum, söng og hljóðfæraleik. Enn fremur dætrum mínum og fjölskyldum þeirra. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Jóna Norðkvist 19ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2005 sem íslenskir listamenn áttu á mið- öldum. „Fálkaorðan er mér hvatn- ing til að ljúka þessu verki og hraða mér,“ segir Guðbjörg, sem stefnir á að klára það að mestu í sumar. Í október verður sett upp sýning á nokkrum verkum Kjarvals en í ár eru 120 ár liðin frá fæðingu hans. Sýnd verða verk úr safni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur sem eiga merkt Kjarvalssafn sem síðast var sýnt fyrir 20 árum á 100 ára afmæli Kjarvals. „Það er því full ástæða til að sýna þau aftur,“ segir Guðbjörg. Milli þess sem hún setur upp sýningar í Gerðarsafni og klárar rannsóknarverkefni sitt ætlar Gerður að fara í útilegur í sumar ásamt fjölskyldu sinni. Hún getur ekki gert upp á milli staða á Íslandi en heldur þó mikið upp á Hóla í Hjaltadal, þar sem hún er fædd og uppalin. „Það er næstum því sama hvar maður er á Íslandi, ef maður bara fer að ganga úti finnur maður alltaf eitthvað fallegt,“ segir Guð- björg, sem meðal annars hefur fengið launalaust orlof frá Gerðar- safni til að klára rannsóknarverk- efni sitt á bókasöfnum erlendis. ■ Í GERÐARSAFNI Forseti Íslands sæmdi Guðbjörgu Kristjánsdóttur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðar- daginn 17. júní.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.