Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2005 21 HANDBOLTI Dagur Sigurðsson hand- boltakappi tilkynnti að loknum leik Hvíta-Rússlands og Íslands á sunnudag að það hefði verið hans síðasti landsleikur. Að loknum 213 leikjum í íslensku landsliðstreyj- unni skilur Dagur við liðið er það á leiðinni á sitt sjöunda stórmót í röð. Hann segist vera sáttur. „Ég skil við liðið með góðri samvisku. Það er gott að hafa klárað þessa leiki gegn Hvít-Rúss- um,“ sagði Dagur. „En það var kominn tími á þetta hjá mér. Við erum búnir að spila á mörgum stórmótum og það tekur sinn tíma. Ég hef ekki fengið þriggja daga frí í tvö ár og nú verður gott að geta eytt tíma með fjölskyldunni.“ Dagur var ákveðinn að hætta eftir HM í Túnis sem lauk í febrú- ar síðastliðnum en Viggó Sigurðs- son landsliðsþjálfari sannfærði Dag um að halda áfram og klára í það minnsta þessa tvo leiki í júní. En eftir það varð Degi ekki haggað og stendur hann við ákvörðun sína. „Ég er mjög stoltur að hafa fengið að taka þátt í þessu og ég er stoltur af landsliðsferlinum.“ Dagur hefur nú verið að þjálfa austurríska liðið Bregenz í tvö ár og á tvö ár eftir til viðbótar af samningi sínum. Honum líkar þjálfarastarfið vel en allt sé óvíst hvað varðar framtíð hans á þeim vettvangi. „Ég verð eitthvað starfandi á þeim vettvangi þegar ég kem heim. Í hvaða mynd verður bara að koma í ljós.“ En nú sér Dagur fram á góða tíma enda getur hann nú einbeitt sér að vinnunni sinni og fjöl- skyldu. Hann mun þó sakna lands- liðsins. „Það verður eflaust skrýt- ið næst þegar hópurinn verður kallaður saman og maður er ekki á listanum.“ eirikurst@frettabladid.is Keppni allra landsmanna Frítt á leiki og happdrættispottur Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar. Miðar eru afhentir í útibúum bankans. 1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu. Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar. ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 87 62 06 /0 5 UMFERÐ KVENNA þri. 21. júní 20:00 Breiðablik - ÍA þri. 21. júní 20:00 Keflavík - Stjarnan þri. 21. júní 20:00 ÍBV - KR þri. 21. júní 20:00 Valur - FH 410 4000 | www.landsbanki.is VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI |6. Dagur Sigurðsson sáttur við ákvörðun sína: Ég er stoltur af landsli›sferlinum MARK! Dagur Sigurðsson skorar hér sitt næstsíðasta landsliðsmark, gegn Hvít- Rússum. Fréttablaðið/Hari

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.