Fréttablaðið - 20.10.2005, Síða 40
2 ■■■ { Hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Dagskrá Hansadaga
FÖSTUDAGURINN 21. OKTÓBER
16:30-17:10
Setning Hansadaga í verslunarmiðstöðinni Firðinum. Helga Braga og
Steinn Ármann kynna dagskrá. Englakórinn syngur. Forseti Íslands
setur Hansadaga. Þýska hljómsveitin Freiheit spilar. Þýskubíllinn.
19:30-20:00
Vígsla á göngu- og hjólastíg. Opnun á Hansaborgasýningu og ljós
tendruð á stígnum. Flugeldasýning verður og að henni lokinni
verður skrúðganga með lúðrasveit Hafnarfjarðar í broddi fylkingar
að Íþróttahúsi Strandgötu.
20:00-21:30
Fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu Strandgötu. Bæjarbúum boðið að
hitta forsetahjónin.
LAUGARDAGURINN 22. OKTÓBER
13:00-16:00
Hátíðarhöld í Firði: Bein útsending á Rás 2. Tilboð og matarkynn-
ingar. Þýskubíllinn verður við verslunarmiðstöðina Fjörðinn. Dregið
í getraun um Hansaborgir í beinni útsendingu á Rás 2 kl. 15:45.
Freiheit spilar.
14:00-16:00
Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að koma á fyrirlestra í Byggða-
safni Hafnarfjarðar, Pakkhúsinu, Vesturgötu 8.
SUNNUDAGURINN 23. OKTÓBER
10:00-13:00
Fótboltamót í Risanum, knattspyrnuhúsi við Kaplakrika, 5. flokkur
drengja og stúlkna. Þýskubíllinn. Sýning í kaffistofu Hafnarborgar
með ljósmyndum Bernt Schlüsselburg frá Cuxhaven, vinabæ Hafnar-
fjarðar.
13:00
Verðlaunaafhending og slit Hansadaga.
Tilbúinn að jóðla í Týrólabúningi
Jón Arilíus, bakari og eigandi Kökumeistarans í Firðinum, lofar fjörlegri og fjölbreyttri
þýskri stemningu á Hansadögum.
Það verður margt um að vera í
Samkaupum í Hafnarfirði meðan á
Hansadögum stendur. Verslunin
mun bjóða upp á fjölbreyttar
kynningar og ýmis tilboð á þýsk-
um vörum.
,,Búðin mun hafa á boðstólum
framandi þýska rétti sem hingað til
hafa ekki verið algengir í íslensk-
um innkaupaverslunum, til dæmis
súrsaða svínaskankar og súrkál,“
segir Gísli Gíslason, rekstrarstjóri
Samkaupa. Þýska tríóið Freiheit
mun einnig mæta á svæðið og
taka lagið. Freiheit mun spila
klukkan 17:00 á föstudeginum og
klukkan 14:00 á laugardeginum.
Búðin verður skreytt á þýskan máta
og Gísli lofar góðri stemningu.
Jón segir að fólk megi eiga von á
ýmsum kynningum og tilboðum í
bakaríinu á meðan á Hansadögum
stendur. Hann segir að boðið verði
upp á fjölbreytt úrval af bæði
þýsku brauði og dýrindis sæta-
brauði. Jón nefnir þar helst
Blechküchen, Münchenar-brauð,
Svartaskógartertu, pretzel, þýsk
sveitabrauð og bóndabrauð, apfel-
strudel og margt fleira. Jón segist
ekki ætla að þröngva Týrólabún-
ingum upp á starfsfólkið sitt en
segist heita því að ef einhver mæti
með slíkan fatnað muni hann
klæðast honum.
,,Ef einhver er tilbúinn að kasta
smá aurum í hattinn get ég jóðlað
eitthvað líka,“ segir hinn hressi
bakari Jón Arilíus að lokum.
,,Hansakaupmenn voru mjög öflug-
ir í Hafnarfirði og hér voru þeirra
höfuðstöðvar. Þorvaldur Daníels-
son hjá Hópbílum fékk þá hugmynd
að sækja um í Hansasmtökunum,
sem 169 borgir eru aðilar að og all-
ar eiga sögu tengda Hansakaup-
mönnum. Í kjölfarið af inngöngu
okkar þar datt okkur í hug að hafa
Hansadag, hálfgerða þýska daga.
Markmiðið er að efla verslun og
þjónustu í bænum,“ segir Anna
Sigurborg Ólafsdóttir, sviðsstjóri
markaðs- og þróunarsvið Hafna-
fjarðarbæjar, um tilkoma Hansa-
daganna.
Anna segir að dagskráin sé
fjörug og skemmtileg og gleðin
muni bera þessa helgi uppi. Helstu
atburði sem verða í gangi alla helg-
ina segir Anna meðal annars vera
þýskt þema í bókasafni Hafnar-
fjarðar, ýmis tilboð í verslun-
um bæjarins, þýska tríóið
Freiheit spilar nokkrum sinn-
um og einnig lúðrasveit, ljós-
myndasýning frá Cuxhaven
í kaffistofu Hafnar-
borgar, fótbolta-
mót í Kaplakrika
og þýskubíllinn
kynnir HM í fót-
bolta svo fátt eitt sé
nefnt. Setning há-
tíðarinnar verður
afar glæsileg.
„Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Gríms-
son, verður hér í
opinberri heimsókn.
Hann mun setja dag-
ana í verslunarmið-
stöðinni Firðinum.
Að því loknu munu
forsetahjónin taka á
móti bæjarbúum á
fjölskylduhátíð í
íþróttahúsinu Strand-
götu. Þar mun Ólafur
Ragnar meðal annars
veita hvatningu til
ungra Íslendinga og
færa Hafnfirðingum
gjöf.“ Fjölskyldu-
hátíðin er stærsti ein-
staki viðburðurinn á
Hansadögum. Þar
munu meðal annars
koma fram karlakór-
inn Þrestir, Þórunn
Sigþórsdóttir sópran
og hin hressa
h a f n f i r s k a
hljómsveit Jakobínarína.
Fyrr um kvöldið verður
vígsla á nýrri hjóla- og
göngubraut við Fjarðar-
götu og þar verður
einnig opnuð sérstök
Hansaborgarsýning. Síðan
hefst flugeldasýning og síðan
verður marserað í skrúðgöngu
á fjölskylduhátíðina.
Anna vonast til þess að Hansa-
dagar verði að árlegum viðburði.
,,Á næsta ári munum við bjóða, í
samstarfi við Icelandair, upp á ferð-
ir til bæjarins. Það er stór hópur
fólks sem heimsækir Hansaborgir
um alla Evrópu. Þar sáum við
okkur leik á borði til að efla ferða-
þjónustu hér í bænum,“ segir Anna
með bjartsýnistón.
Fjölbreytt og skemmtileg
dagskrá á Hansadögum
Dagana 21.-23. október verðum mikið um dýrðir í Hafnarfjarðarbæ þegar Hansadagar
verða haldnir í fyrsta skipti.
Hansadagar verða í Hafnarfirði um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ólafur Ragnar Grímsson
mun opna Hansadaga.
Þýskuþjálfari á Porsche
Þýskibíllinn er átaksverkefni Háskóla Íslands, stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur, félags þýskukennara og þýska sendiráðsins ásamt nokkrum
styrktaraðilum til að auka hvatann til þýskunáms og reyna að áhuga-
tengja tungumálanámið.
,,Sjálfur þýskubíllinn er Porsche-jeppi en með bílnum er þýskuþjálf-
ari eins og ég kýs að kalla hann. Hann heldur örnámskeið í fótbolta-
þýsku, kynnir heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í Þýskalandi
á næsta ári og fleira. Með í för er einnig mark og þar geta krakkar æft
sig í skotfimi og þeir sem ná að skora fá gefins bol,“ segir Oddný Sverr-
isdóttir, sem er stjórnandi verkefnisins og deildarforseti hugvísinda-
deildar Háskóla Íslands. Bíll-
inn mun vera með dagskrá á
Hansadögum og þar geta all-
ir sem vilja æft sig í knatt-
spyrnu og í leiðinni speytt
sig á þýskunni. Einnig verð-
ur hægt að fá þar bækling
með ýmsum hagnýtum upp-
lýsingum og gögnum tengd-
um þýskunámi.
Þýskt tríó
SAMKAUP TAKA ÞÁTT Í
HANSADÖGUM
Jón Arilíus bakari tekur Hansadögum fagnandi.