Fréttablaðið - 28.10.2005, Síða 8
8 28. október 2005 FÖSTUDAGUR
������������
��������������
��������������
����������������
���������������������������
�������������������������
������������������������
��������������������
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
�������������������������������
����������
LÖGGÆSLA „Þetta er jafn galið og
að hafa lykilembætti lögreglunar
í Reykjavík út í Viðey og engar
bátaferðir þar á milli,“ segir Geir
Gestsson í bæjarstjórn Vestur-
byggðar um tillögur nefndar á
vegum dómsmálaráðuneytisins
um nýskipan lögreglumála. Þar
er lagt til að lögregluembætti
lögreglan á Patreksfirði samein-
ist þeirri á Bolungarvík og mun
báðar vera undir lykilembættinu
á Ísafirði.
Geir segir að ef tillögurnar
nái fram að ganga verði bak-
vaktir lagðar af á Patreksfirði
sem þýði að á nóttum verði næsti
vakthafandi lögregluþjónn á Ísa-
firði. Þangað er hins vegar ófært
lungann úr vetri .
„Það er alltaf verið að tala
um hvað uppbygging á Ísafirði
sé góð fyrir Vestfirðinga en á
meðan samgöngur eru ekki betri
en þetta njótum við ekki þessarar
uppbyggingar hér á sunnanverð-
um Vestfjörðum nema að litlu
leyti,“ bætir Geir við. Hann segir
alla bæjarstjórn Vesturbyggðar
leggjast harðlega gegn þessum
tillögum.
Sigríður Guðjónsdóttir, sýslu-
maður á Ísafirði, segir að tillög-
urnar miði að því að bæta þjón-
ustuna í minni byggðum en ekki
að draga úr henni. Hún vildi þó
ekki tjá sig frekar um málið.
Fleiri hafa lýst áhyggjum
sínum vegna tillagnanna. Lands-
sambandi lögreglumanna hefur
borist bréf frá lögreglumönnum í
Kópavogi þar sem efasemdum er
lýst varðandi tillögurnar. Að sögn
Páls Winkel, framkvæmdastjóra
sambandsins, hefði lögregl-
an þar frekar kosið að sameina
löggæsluna aðeins í Hafnarfirði
og Kópavogi. Fréttablaðið hefur
einnig heimildir fyrir því að
nokkrir lögreglumanna í Kópa-
vogi hafi sagst munu segja starfi
sínu lausu gangi tillögurnar
eftir.
Páll segir að enn sé lögreglu-
mönnum ekki vel ljóst hvernig
útfærslan verði og því sé ótíma-
bært að tjá sig um tillögurnar.
Þær verði kynntar á fundum sem
haldnir verði með lögreglumönn-
um á næstu dögum og vikum.
Stefnt er að því að þeirri kynn-
ingu verði lokið í byrjun desem-
ber. jse@frettabladid.is
Kópavogslögregla vill
ekki til Reykjavíkur
Patreksfirðingar gætu verið hundruð kílómetra frá næsta vakthafandi lögreglu-
þjóni ef tillögur nefndar um nýskipan lögreglumála ná fram að ganga. Lögregl-
an í Kópavogi vill ekki sameinast embættinu í Reykjavík.
Reykjavík Borgarnes Ísafjörður Akureyri Seyðisfjörður Selfoss Keflavík
Akranes Blönduós Eskifjörður Hvolsvöllur
Stykkishólmur Sauðárkrókur Vestmanneyjar
Húsavík
Hafnarfjörður Búðardalur Bolungarvík Ólafsfjörður Höfn
Kópavogur Hólmavík Patreksfjörður Siglufjörður Vík
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FLÓRÍDA, AP Íbúar Flórída, strand-
héraða Mexíkó og annarra svæða
sem fellibylurinn Wilma gekk yfir
eru í óða önn að taka til eftir ham-
farirnar. Ríkisstjóri Flórídafylkis
Jeb Bush, bróðir Georgs W. Bush,
hefur axlaði ábyrgð á seinagangi
við björgunarstörf vegna eftirkasta
fellibylsins.
„Við höfum ekki náð þeim afköst-
um sem við vildum,“ sagði hann á
blaðamannafundi í Flórída í gær.
Aðstoðin væri ekki nógu markviss.
Langar biðraðir voru við bensín-
stöðvar á Flórída og þúsundir ferða-
manna í mexíkóska ferðamanna-
bænum Cancun biðu þess enn að fá
flug- eða rútufar þaðan. Um 22.000
ferðamenn urðu innlyksa í borginni
og öðrum ferðamannastöðum við
Mexíkóflóann, sem urðu illa úti af
völdum Wilmu. Fellibylurinn hefur
þar með valdið ferðamannaiðnaði
Mexíkó miklum búsifjum.
Að minnsta kosti fimm dauðs-
föll á Flórída voru rakin til Wilmu,
fjögur í Mexíkó, eitt á Jamaíka og
tólf á Haítí.
Wilma var 21. fellibylurinn á
svæðinu í ár, en ekki er vitað til að
svo margir fellibylir hafi myndast
á einu misseri frá því skráningar
hófust.
- aa
Tiltekt hafin í slóð fellibylsins Wilmu:
Þúsundir innlyksa
BEÐIÐ EFTIR BENSÍNI Íbúar á flóðasvæðunum, hér í Cancun í Mexíkó, þurfa að sýna mikla
þolinmæði til að komast yfir eldsneytisdropa á þeim fáu bensínstöðvum sem opnar eru.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EMBÆTTI MEÐ
LÖGREGLUSTJÓRN
LYKILEMBÆTTI
LÖGREGLUSTÖÐVAR ÁN
LÖGREGLUSTJÓRNAR
WASHINGTON, AP George Bush
Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær
að Harriet Miers, sem hann til-
nefndi í embætti hæstaréttardóm-
ara fyrir um þremur vikum, hefði
afþakkað tilnefninguna. AP frétta-
stofan segir að Miers hafi tekið
ákvörðun sína vegna þess mótbyrs
sem tilnefning hennar fékk og
harðrar gagnrýni á hæfi hennar.
Þá er því haldið fram að Miers
hafi ekki talið sig njóta nægilegs
stuðnings í öldungadeild banda-
ríska þingsins, en tilnefningin þarf
að fá staðfestingu þar.
Demókratar sökuðu Bush í gær
um að hafa beygt sig undir vilja
róttækra hægrimanna í Repúblík-
anaflokknum sem höfðu efasemdir
um pólitíska hollustu Miers.
Opinber útskýring Hvíta húss-
ins á ákvörðun Miers var sú að hún
hefði dregið sig í hlé vegna þess
að þingmenn beggja flokka hefðu
leitast við að fá aðgang að innan-
hússskjölum sem tengdust störfum
hennar sem lögfræðilegs ráðgjafa
forsetans en birting þeirra gæti
valdið því að forsetinn ætti erfið-
ara með að fá beinskeytta ráðgjöf
í framtíðinni. - sda
Tilnefndur dómari í hæstarétt Bandaríkjanna dregur sig í hlé:
Bush neyðist til að skipa á ný
MIERS OG BUSH Harriet Miers, hæstarétt-
arlögmaður og lögfræðilegur ráðgjafi Hvíta
hússins, afþakkaði tilnefningu Bush til
embættis hæstaréttardómara.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP