Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 13

Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 13
FÖSTUDAGUR 28. október 2005 13 DALAI LAMA Trúarleiðtoginn fundaði með hótelstjórum víðs vegar úr heiminum í Nýju-Delí í Indlandi í gær þegar ársfundur alþjóðlegra hótelsamtaka var haldinn. Í samtökunum eru yfir 420 af fínustu hótel- um heimsins. LYFJAVERÐ „Við veitum mjög góðan afslátt á lyfjaverði. Við höfum ekki fellt hann niður í neinu tilfelli, en höfum þurft að minnka hann í ein- staka tilvikum, en svo eru mörg lyf sem halda fullum afslætti.“ Þetta segir Kristín Guðmunds- dóttir lyfsali í Rimaapóteki, sem hún á og rekur sjálf. Umræða um lyfjaverð hér á landi var vakin enn á ný þegar lyfjahópur Samtaka verslunar og þjónustu lýsti því yfir að lækkanir á heildsöluverði lyfja skiluðu sér ekki til sjúklinga. Talsmenn stóru lyfjakeðjanna, Lyfja og heilsu og Lyfju, hafa sagt að lækkunin myndi valda skerð- ingu á afslætti apótekanna á verð- um til sjúklinga og jafnvel yrði að afnema þá með öllu. Kristín segir að áherslur séu aðrar í stóru lyfjasmásölukeðjun- um en hjá apótekum sem rekin séu af einstaklingum. Fjárfest- ar eigi stóru keðjurnar og þeirra markmið sé að græða á rekstrin- um. Markmið einyrkjanna í lyf- sölustétt sé meira að hafa atvinnu af rekstrinum. Í Rimaapóteki sé til að mynda engin yfirstjórn, sem auki rekstrarkostnað. Spurð um áhrif lækkunar á smásöluverði lyfja segir Kristín að búast megi við því að róðurinn þyngist eitthvað í rekstrinum, en afsláttum til sjúklinganna verði reynt að halda sem mest óbreytt- um í lengstu lög. - jss Mismunandi áhrif lækkunar heildsöluverðs á lyfjum í apótekum: Halda afslætti þrátt fyrir verðlækkun RIMAAPÓTEK Einyrkjaapótekin svokölluðu eru sögð lúta öðrum rekstrarlögmálum en stóru keðjurnar og geta því boðið sjúklingum meiri afslátt. RAMALLAH, AP Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnar- innar, sagði á palestínska þinginu á miðvikudag að einungis „guðleg íhlutun“ gæti komið í veg fyrir að þingkosningar yrðu haldnar í Pal- estínu 25. janúar næstkomandi. Hamas-samtökin höfðu áður lýst því yfir að þau teldu vopna- hlé við Ísraela renna úr gildi yrði kosningunum frestað. Í það minnsta fimm fórust og þrjátíu særðust í sjálfsmorðs- sprengjuárás á götumarkaði í ísraelska bænum Hadera í fyrra- dag. Samtökin Heilagt stríð hafa lýst ábyrgð á hendur sér. Kosningar í Palestínu: Abbas heldur sínu striki MAHMOUD ABBAS Segir kosningarnar fara fram í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRUSSEL, AP Evrópudómstóllinn hefur fellt þann úrskurð að feta- ostur sé upprunalega frá Grikk- landi og þar af leiðandi hafi Grikk- ir einkarétt á að framleiða ost undir nafninu „feta“. Enda þótt Ísland sé hluti af Evrópska efnahagssvæðinu telur Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, að áhrif dóms- ins hérlendis séu hverfandi. „Við höfum kallað þetta íslenskan feta. Hvort við verðum neydd árið 2007 til að breyta því höfum við ekki skoðað til hlítar.“ Í nær tvo áratugi hafa þýskir og danskir ostagerðarmenn barist fyrir því að fá að halda áfram að líkja eftir gríska ostinum og kalla þann ost feta. Að þeirra sögn er það tæknin sem notuð er við gerð ostsins sem gerir hann að fetaosti, ekki uppruni hans. - smk Dómur Evrópudómstólsins: Fetaosturinn er grískur HINN EINI SANNI FETA Matvælaframleið- endur óttast að önnur lönd fylgi í fótspor Grikklands, til dæmis að Bretar krefjist þess að cheddar-ostur verði eingöngu framleiddur í Englandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.