Tíminn - 16.11.1975, Side 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 16. nóvember 1975.
Reykjavik 14. nóv. 1975.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN:
FóSTRA óskast sem forstöðukona á
dagheimili fyrir börn starfsfólks
spitalans, nú þegar eða eftir sam- ;
komulagi. FóSTRUR óskast einnig
á sama dagheimili til almennra
starfa. Nánari upplýsingar veitir
forstöðukona spitalans.
STARFSSTÚLKA óskast á dag-
heimili spitalans. Upplýsingar veit-
ir forstöðukonan, simi 38160.
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á
öldrunarlækningadeild spitalans
frá 1. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar. Umsóknir er greini
aldur, námsferil og fyrri störf ber að
senda skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 15. desember nk.
FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast á
öldrunarlækningadeild spitalans
helzt frá 1. janúar nk. Nánari
upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar. Umsóknir ber að
senda skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 1. jan. nk.
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast á öldrunarlækningadeild nú
þegar, einnig HJÚKRUNARFRÆÐ-
INGAR OG SJÚKRALIÐAR.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi, 24160.
HJÚKRUNARDEILARSTJÓRI
óskast á Barnaspitala Hringsins nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 24160.
BLÓÐBANKINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast frá 1.
janúar nk. Umsóknir er greini
aldur, námsferil og fyrri störf ber að
senda skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 15. desember nk. Nánari
upplýsingar veitir yfirlæknir Blóð-
bankans.
MEINATÆKNIR óskast helzt frá 1.
desember nk. Upplýsingar veitir
yfirlæknir.
Reykjavik 14/11 1975.
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANN A
EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765
Tímlnner
penlngar
Auglýsitf
i Ttmanum
Páll Dagbjartsson sktílastjóri setur sktílann. Til vinstri féiagar úr kirkjukór Viöimýrarsóknar.
Ljósm. St. Pétersen.
Varmahlíðar-
skóli vígður
Gó-Sauöárkróki. Fyrir skömmu
fór fram vigsluathöfn, og jafn-
framt skólasetning í hinum nýja
grunnskóla I Varmahliö. Að
skólastofnuninni standa 10
hreppar i Skagafjarðarsýslu.
Mikill mannfjöldi viðsvegar aö úr
héraöinu sótti skólann heim viö
þetta hátiöatækifæri, til aö fagna
þessu langþreyða takmarkiaö sjá
skóla og menntasetur risið af
grunni og taka til starfa i Varma-
hliö.
Páll Dagbjartsson skólastjóri
setti samkomuna, bauð alla
viöstadda velkomna og stjórnaöi
siöan. En samkoman hófst meö
helgistund, sr. Gunnar Gislason,
Glaumbæ prédikaði. Kirkjukdr
Viöimýrarsóknar, undir stjórn
Björns Ólafssonar Krithóli,
annaöist söng. Þá talaöi Halldór
Benediktsson formaður
byggingarnefndarskólans, rakti i
stórum dráttum sögu skóla-
byggingarinnar, og minnti á hvaö
baráttan hefði oft verið erfiö og
aödragandinn að þvi oröinn lang-
ur, aö slikt menntasetur, sem
þessi nýi skóli - risi hér i Varma-
hliö. En kveikjuna að skólastofn-
un i Varmahlið taldi Halldór að
mætti rekja allt til ársins 1936, er
nokkrir áhugamenn i héraði
stofnuðu félagsskap — Varma-
hliöarfélagiö — i þeim tilgangi að
beita sér fyrir stofnun héraðs-
skóla I Varmahlið. Aðal hvata-
maöur og fyrsti formaöur þess
félagsskapar var Arni Hafstaö,
bóndi I Vlk. Nú, þegar þessar ára-
tuga vonir væru orönar að veru-
leika, væri þessi dagur sann-
kallaður — sigurdagur.
Margir fleiri ræöumenn komu
fram:
Sigurpáll Arnason, formaður
skólanefndar, Gisli Magnússon,
Helga Kristjánsdóttir, Jóhann
Salberg Guðmundsson og Jóhann
L. Jóhannesson, svo og alþingis-
mennimir Ragnar Arnalds, Páll
Pétursson og Pálmi Jónsson.
Ekki er allt skólahúsnæöiö
fullbúið til starfsrækslu enn sem
komið er, heldur hluti þess, sem
nefnt er A hús, 1436 ferm. og
kjallari B húss, 205 ferm. I A
húsinu, sem tekið var I notkun, er
heimavist, mötuneyti, samkomu-
salur og 2 einstaklingsibúöir
kennara. Alls er skólabyggingin
2654 ferm.
Byggingameistari var
Guðmundur Márusson og yfir-
smiður Eggert Ólafsson,
múrarameistari Haraldur
Hróbja rtsson. Pipulagnir
annaöist Sigurður Ármannsson
Akureyri. Málningu hússins hafa
unnið Haukur Stefánsson og
Jónas Þór. Raflagnir annaðist
Rafall S.V.F. Guðmundur Mar-
teinsson.
Arkitektar voru Hrafnkell
Thorlacius og Njörður Geirdal.
Byrjað var á skólanum
sumarið 1973, og framkvæmda-
stjóri við bygginguna frá byrjun
hefur verið Pétur Pétursson. Að
jafnaði hafa starfað 25 manns við
byggingarframkvæmdirnar, og
hefur hópurinn starfrækt mötu-
neyti, sem Sigriður Márusdöttir
hefur veitt forstöðu.
Skólastjórinn, Páll Dagbjarts-
son flutti nú skólasetningarræðu
og setti skólann. 140 nemendur
verða I skólanum i vetur i 7
bekkjardeildum, þar af 17 i
landsprófsdeild. í heimavistinni
verða 56 nemendur. Or næstu
hreppum er nemendum ekiö i
skólann. Við skólann starfa 6
fastir kennarar, auk skólastjóra,
og 4 stundakennarar. Matráös-
kona er Herfriður Valdemars-
dóttir frá Brekku.
Eins og fyrr segir er það A hús
skólans, sem tekið er i notkun
núna en B hús þar sem kennslu-
stofurnar verða ekki tilbúnar
fyrr en seinna i vetur og aö ári.
Þvi taldi skólastjóri, að nokkur
þrengsli yrðu við kennsluna fyrst
um sinn. Kennt verður i sam-
komusalnum og honum skipt i
tvær stofur og i kjallara B húss.
En kennsla i barnaskólanum fer
fram i félagsheimilinu Miðgarði,
þar sem skólinn hefur verið til
húsa undanfarna vetur.
Að athöfninni i skólahúsinu
lokinni var öllum boðið til kaffi-
drykkju i félagsheimilinu, þar
sem karlakórinn Heimir söng við
stjórn Árna Ingimundarsonar.