Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 2
2 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma 410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á www.landsbanki.is. Í boði eru kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir út með lítilli gjöf. 410 4000 | www.landsbanki.is Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld Fyrirlestur í útibúi Landsbankans á Akranesi, fimmtudagskvöld kl. 20 - Efnahagsmál í upphafi árs - Hvar liggja fjárfestingatækifærin? ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 10 26 02 /2 00 6 Bruni í bíl Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins var kallað út í gær vegna elds í bíl á bílastæði við Kennaraháskóla Íslands. Ekki var mikill eldur í bílnum og gekk vel að ráða niðurlögum hans. LÖGREGLUFRÉTT ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� LÖGREGLUMÁL Ungur maður hefur gert sér það að leik undanfarnar vikur að senda vinalegan póst á netföng stúlkna í Verslunarskóla Íslands og hótar þeim svo öllu illu hafi þær ekki áhuga á samskiptum við hann. Hefur Sölvi Sveinsson skóla- stjóri beint þeim tilmælum til nemenda sinna að láta loka fyrir öll hotmail netföng sín en það er á vefsíðum nemendafélags Verslun- arskólans sem þau netföng liggja fyrir augum allra sem þangað inn fara. Nemendur margir geyma enn fremur símanúmer sín þar og Fréttablaðið hefur heimild fyrir að í allavega eitt skipti hafi við- komandi maður ekki látið svívirð- ingar á netinu nægja heldur einnig hringt í eina stúlkuna og haft í frammi hótanir við hana. - aöe SÖLVI SVEINSSON Skólastjórinn sendi viðvörun til nemenda vegna manns sem áreitir ungar stúlkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Verslunarskóli Íslands: Maður áreitir ungar stúlkur SPURNING DAGSINS Elín, var Óli Geir ljótur strákur? „Eigum við ekki að segja að hann hafi verið óþekkur.“ Elín Gestsdóttir, framkvæmdastjóri fegurð- arsamkeppninnar Herra Ísland, þótti Ólafur Geir Jónsson ekki vera til fyrirmyndar og svipti hann titlinum. VINNUMARKAÐUR Formenn lands- sambanda innan ASÍ hittust í gær til að ræða ákvörðun Launanefnd- ar sveitarfélaga um að heimila 24- 32 þúsunda króna blandaða launa- hækkun til þeirra lægst launuðu hjá sveitarfélögunum. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri ASÍ, segir að nið- urstaða fundarins hafi verið sú að halda áfram greiningu og skoðun á því hvaða áhrif ákvörðunin hefur og jafnframt að óska eftir fundi með atvinnurekendum til að fara yfir þá stöðu sem komin er upp og leggja mat á hana. Það er ljóst að það er og verður umræða í gangi í okkar hreyfingu um þetta,“ segir hann. Væntingar eru hjá fólki innan ASÍ að hækkun lægstu launa hjá sveitarfélögunum nái líka til launþega á almennum markaði og starfsmanna hjá ríkinu. „Það þarf að ræða þetta og greina hvernig það geti gerst. Fyrsta skrefið er að funda með Samtökum atvinnulífsins en jafn- framt þarf að eiga sér stað fund- ur með stjórnvöldum. Málið er ekki einfalt. Það er ekki sjálfgefið hvernig það verður gert.“ S t a r fs g r e i n a s a m b a n d i ð , stærsta sambandið innan ASÍ, mun fjalla um ákvörðun Launanefndar á formannafundi í næstu viku. - ghs Formenn innan Alþýðusambands Íslands ræddu ákvörðun Launanefndar: Óska eftir viðræðum SA FORMENN INNAN ASÍ FUNDA Niðurstaða formannafundar landssambanda ASÍ í gær var sú að fara yfir stöðuna með atvinnurekendum og óska eftir fundi með stjórnvöldum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA VINNUMARKAÐUR Aðeins tvær starfsmannaleigur höfðu tilkynnt sig á vef Vinnumálastofnunar síðdegis í gær. Þetta eru íslenska starfsmannaleigan 2b og norska starfsmannaleigan Holtan Ind- ustrier. Holtan Industrier hafði ekki gefið upplýsingar um neinn starfsmann og hefur ekki haft neina starfsemi hér svo vitað sé en 2b tilkynnti um pólskan starfs- mann. Talið er að vel á annan tug starfsmannaleigna séu starf- andi hér á landi með hundruð eða þúsundir starfsmanna og má búast við að þær hafi gengið frá skráningu í gærkvöld en sú stærsta, Epalmo Europe, sem að sögn Halldórs Grönvold, aðstoð- arframkvæmdastjóra ASÍ, hefur vel á annað hundrað Portúgala starfandi hér, hafði ekki skráð sig síðdegis í gær. Halldór segir að starfsmenn ASÍ fari strax í dag að bera saman bækur sínar við lista Vinnumála- stofnunar og láta stofnunina vita af þeim starfsmannaleigum sem starfandi eru og hafa ekki skráð sig. Í framhaldinu býst hann við að stofnunin sendi leigunum bréf, bendi þeim á skyldur sínar og gefi þeim frest til að uppfylla þær. „Við gerum kröfu um að gengið verði fast eftir því að fylgjast með lögunum í framkvæmd þannig að þessar reglur skipta máli. Nú eru komnar heimildir sem skipta máli sem ekki voru til áður. Heimild til að stöðva starfsemi er kannski það mikilvægasta,“ segir Halldór. „Ef starfsemi starfsmanna- leigu er stöðvuð og lögreglan kannski látin stöðva 10-20 starfs- menn sem kunna að vera á hennar vegum þá eru miklir hagsmunir í húfi. Þessir hagsmunir eru meiri en sektarheimildir því að menn geta skotið sér undan að greiða þær. Þetta er því langmikilvæg- asta verkfærið.“ Halldór telur að með lögunum sé búið að kippa fótunum undan starfsemi starfs- mannaleiga á Íslandi en 1. maí taka gildi reglur um frjálsa för vinnuafls gagnvart nýju aðild- arríkjum Evrópusambandsins. Hvað gerist þá veit enginn. „Það eina sem er ljóst er að frjáls för mun taka gildi 1. maí gagnvart aðildarríkjum ESB ef ekkert verður að gert. Það er heimild til að fresta þessu um allt að þrjú ár til viðbótar til að byrja með og svo geta stjórnvöld grip- ið til annarra ráðstafana eins og mörg lönd í kringum okkar hafa gert.“ ghs@frettabladid.is Mögulegt að stöðva starfsmannaleigur Tvær starfsmannaleigur höfðu tilkynnt sig til Vinnumálastofnunar síðdegis í gær. ASÍ mun fylgjast með því að starfsmannaleigur tilkynni sig samkvæmt lögum. Heimild er til að stöðva starfsemi þeirra. NÝJAR REGLUR UM STARFSMANNALEIGUR Starfsmannaleigur eiga að hafa tilkynnt starfsemi sína og fulltrúa sinn til Vinnumálastofnunar frá og með í dag. Tvær starfsmannaleigur höfðu gert það síðdegis í gær, 2b og Holtan Industrier. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGUR Íslenskum skipum hefur verið leyft að veiða 47.219 lestir af loðnu til aprílloka. Til samanburðar lagði Hafrann- sóknastofnunin til 780 þúsund tonna loðnukvóta fyrir ári síðan. Sveinn Sveinbjörnsson, leið- angurstjóri við loðnuleit á skipi Hafrannsóknastofnunarinnar, Árna Friðrikssyni, segir enn verið að mæla loðnustofninn: „Hingað til hefur þetta verið tætingslegt og enginn kraftur í göngunum, þangað til núna að við mælum nóg til þess að hefja vertíðina.“ Sveinn segir að ekki hafi náðst að skoða öll svæði. Kvótinn nú tryggi að ekki verði gengið á hrygningarstofninn. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir skip þegar lögð af stað til veiða. Útgerðarmenn reikni með að kvótinn hækki við frekari leit Hafrannsóknastofnunarinnar. Sjávarútvegsráðuneytið til- kynnti um kvótann í gær og gaf jafnframt út reglugerð sem heim- ilar veiðarnar eingöngu með flot- vörpu innan ákveðins svæðis úti fyrir Austfjörðum frá 6. febrúar. Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra ritar á heimasíðu sína að sjálfsagt sé að menn fái aðlögunartíma vegna takmarkana á notkun flottrolls. Tillagan sé byggð á ráðleggingum Hafrann- sóknastofnunarinnar og hafi verið kynnt á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í haust og á Alþingi. ■ Íslensk skip fá aðeins brot af loðnukvóta miðað við í fyrra: Hrygningarstofninn tryggður ÁRNI FRIÐRIKSSON Loðnuleitarstjórinn segir útlitið ekki svo svart þó að loðnan hafi ekki fundist. Frá árinu 2000 hafi loðnu- torfurnar fundist í janúar eða febrúar. FJÖLMIÐLAR Fjölmargar tilnefn- ingar hafa þegar borist frá les- endum blaðsins vegna samfé- lagsverðlauna Fréttablaðsins, bæði um einstaklinga og félaga- samtök. Steinunn Stefánsdóttir, rit- stjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu og formaður dómnefndar, segir fólk hafa komið með tilnefning- ar í gegnum netið og með pósti. Tilnefningar hafi borist í alla flokkana, sex að tölu. „Ég hvet fólk eindregið til að halda áfram að senda inn tilnefn- ingar,“ segir Steinunn. Tekið verður við tilnefningum til 16. febrúar. - gag Samfélagsverðlaun: Fjölmargar tilnefningar VARNARMÁL Viðræður um varnar- mál milli Íslands og Bandaríkj- anna hefjast að nýju á fimmtudag í Washington-borg. Geir H. Haarde utanríkisráð- herra og Nick Burns, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ákváðu að stefnt yrði að fundinum þegar þeir hittust í Lundúnum í gær. Í grein eftir Val Ingimundar- son, sem birtist í bresku fræði- riti, kemur fram að Bandaríkja- menn hafi viljað að einstök NATO ríki tækju að sér að verja íslensku lofthelgina. Fullyrðir Valur að þeir hafi lagt áherslu á þetta í varnarviðræðunum árið 2004. Ekki náðist í Geir H. Haarde utanríkisráðherra í gær. - gag Varnarsamningurinn: Viðræður hefj- ast á morgun Íkveikja í Skeifunni Kveikt var í ruslagámi fyrir utan Polsen í Skeifunni í gærkvöld. Varðstjóri slökkviliðsins sagði að pappír hefði verið raðaður upp til að kveikja í hurð. Það hefði ekki gengið. Því var kveikt í ruslagámnum. Engin hætta var þó á ferð, þar sem logarnir náðu ekki í húsið. Útköll slökkviliðsins Fimmtíu sjúkraflutningar voru frá miðnætti þriðjudags og að tíu í gærkvöld. Það þykir róleg vakt hjá slökkviliðinu þar sem þeir ná oft fimmtíu flutningum á dagvaktinni einni. SLÖKKVILIÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.