Fréttablaðið - 24.05.2006, Síða 13

Fréttablaðið - 24.05.2006, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. maí 2006 13 Á ESSO STÖÐINNI Fyrir fólk á ferðinni Komdu við í Nesti því nú bjóðum við enn meira úrval af hollum og ferskum skyndi- réttum, samlokum, nýbökuðu brauði, bakkelsi og ilmandi kaffi. Sæktu þér orku í dagsins önn eða komdu við á leiðinni heim og náðu í það sem upp á vantar. Fossvogur – Ártúnshöfði – Háholt – Borgartún – Stórihjalli Lækjargata, Hafnarfirði – Geirsgata – Gagnvegur – Selfoss F í t o n / S Í A Svöng? ÍRAK, AP Setning nýrrar ríkisstjórn- ar Íraks þýðir að ekki er lengur þörf á vopnaðri uppreisn Íraka, og besta leiðin til að losna við erlenda hermenn úr landinu er ef heima- menn hætta vopnaskaki sínu. Þetta kom fram í máli breska forsætis- ráðherrans, Tony Blair, í Írak á mánudag, en hann var þar staddur til að sýna nýjum forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, stuðning. Á fundi með al-Maliki sagði Blair að brottflutningur erlendra hermanna réðist af öryggisástandi landsins. Íraksher og lögreglusveit- ir landsins gætu jafnvel byrjað að taka við stjórninni í júní og að í framhaldi af því gætu erlendir her- menn tekið að yfirgefa landið. „Það er ofbeldið sem heldur okkur hér. Friður myndi heimila brottför okkar,“ sagði Blair. En í gær voru minnst 18 Írakar drepnir, og virðist sem langt sé í land með frið. Stjórn al-Malikis tók völd á laug- ardag og er Blair fyrsti erlendi ráðamaðurinn sem sækir hana heim. Þó Blair neitaði að setja dag- setningu á brottflutning erlendra hermanna frá Írak, sagði einn sam- starfsmanna hans að vonast væri til þess að honum gæti verið lokið árið 2010. Um 8.000 breskir her- menn eru í Írak, og um 132.000 bandarískir hermenn. - smk Breski forsætisráðherrann Tony Blair í Írak: Erlendur her burt árið 2010 FORSÆTISRÁÐHERRAR Breski forsætisráð- herrann Tony Blair, t.v., heilsar forsætis- ráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, í Bagdad á mánudag. SVEITARSTJÓRNARMÁL Umhverfis- ráðherra hefur staðfest aðalskipu- lag Álftaness. Að sögn Sigurðar Magnússonar, oddvita A-listans sem er í minnihluta, náðist viðun- andi niðurstaða um aðalskipulagið en miklar deilur standa um deilu- skipulag miðsvæðisins. Um 700 manns höfðu safnað undirskriftum til að mótmæla deiliskipulaginu og hefur fram- kvæmdum við það verið frestað fram yfir kosningar. Sigurður segir þetta helsta kosningamálið á Álftanesi en Guðmundur Gunnars- son bæjarstjóri er ósammála. „Kosningarnar snúast um margt annað en þetta,” segir hann. - jse Skipulagsmál á Álftanesi: Aðalskipulag samþykkt DÓMSMÁL Sálfræðingurinn Gunn- ar Hrafn Birgisson krefst 20 millj- óna króna í miskabætur af Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfa- syni, fyrrverandi ritstjórum DV, vegna umfjöllunar blaðsins um störf hans. Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavík- ur á mánudag. Fyrir dómi kom fram að Gunn- ari fannst að sér vegið í umfjöllun blaðsins og krefst áðurnefndra miskabóta auk þess að ákveðin ummæli verði dæmd dauð og ómerk. Jónas og Mikael krefjast sýknu en dóms í málinu er að vænta innan fjögurra vikna. - sh Sálfræðingur í mál við DV: Krefur ritstjóra um 20 milljónir Bæjarstjórn 2002-2006 Hansína Ásta Björgvinsdóttir B-lista Ómar Stefánsson B-lista Sigurbjörg Vilmundardóttir B-lista Gunnar I. Birgisson D-lista Ármann Kr. Ólafsson D-lista Gunnsteinn Sigurðsson D-lista Sigurrós Þorgrímsdóttir D-lista Halla Halldórsdóttir D-lista Flosi Eiríksson S-lista Sigrún Jónsdóttir S-lista Hafsteinn Karlsson S-lista Meirihlutasamstarf er með Framsókn- arflokki (B) og Sjálfstæðisflokki (D) SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2002 Fjöldi íbúa á kjörskrá: 17.580 Fjöldi greiddra atkvæða: 13.786 (78,4%) Fjöldi auðra og ógildra seðla: 261 Listar við kosninguna: Listi Framsóknarflokksins (B) 3.776 atkv., 3 fulltr. Listi Sjálfstæðisflokksins (D) 5.097 atkv., 5 fulltr. Listi Samfylkingarinnar (S) 3.821 atkv., 3 fulltr. Listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (U) 831 atkv., 0 fulltr. FRAMBOÐSLISTAR FYRIR KOSNINGARNAR 2006 B-listi Framsóknarflokks 1. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi 2. Samúel Örn Erlingsson íþróttastjóri 3. Una María Óskarsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur 4. Linda Bentsdóttir lögfræðingur 5. Andrés Pétursson skrifstofustjóri D-listi Sjálfstæðisflokks 1. Gunnar I. Birgisson, verkfræðingur og bæjarstjóri 2. Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri og bæjarfulltrúi 3. Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og forseti bæjarstjórnar 4. Ásthildur Helgadóttir, verkfræðingur 5. Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþingismaður og bæjarfulltrúi S-listi Samfylkingar 1. Guðríður Arnardóttir jarðfræðingur 2. Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi og skólastjóri 3. Jón Júlíusson íþróttafulltrúi 4. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi og húsasmiður 5. Ingibjörg Hinriksdóttir þjónustufulltrúi V-listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs 1. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir 2. Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur 3. Emil Hjörvar Petersen háskólanemi 4. Lára Jóna Þorsteinsdóttir sérkennari 5. Mireya Samper, myndlistar- og kvikmyndagerðarkona 19.350 manns eru á kjörskrá núna og hefur fjölgað um 10,1% síðan 2002. KÓPAVOGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.