Fréttablaðið - 24.05.2006, Side 31

Fréttablaðið - 24.05.2006, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 24. maí 2006 9 brúðkaup Með því að skrá sig á www. pantypostman.com má fá reglulegar sendingar af nýjum hátísku nærfatnaði heim að dyrum. Coco Ribbon í London er farið af stað með stór- skemmtilega heim- sendingarþjónustu á nærfatnaði. Á þriggja mánaða fresti bankar nærbuxnapóstþjón- ustan, eða The Panty Post- man, upp á með það nýjasta hátísku nærfatnaðinn í fórum sínum. Hægt er að skrá sig í þessa skemmtilegu þjónustu á www.pantypostman.com. Þannig er hægt að endurnýja nærfata- safnið án nokkurrar fyrirhafnar og aldrei skemmir það fyrir að fá fallegar naríur inn um póstlúg- una. Alison Chow, einn af stofnend- um Cocco Ribbon, segir hugmyndina hafa sprottið út frá anna- sömum lífstíl hennar en svo virðist sem hún hafi ekki fund- ið mikinn tíma fyrir nær- buxna- kaup. Með þessu segist hún vera búin að finna lausn fyrir þá sem vilja sífellt eiga fulla skúffu af splunkunýjum naríum. Naríur í pósti Cocco Ribbon í London sendir nærfötin heim til þeirra sem erfitt eiga með að finna tíma til undirfatakaupa. Par Amour er ný lína frá Clarins fyrir þá sem vilja dekra við sjálfa sig eða aðra. All Rosy! Hair and Body Shower Gel, Real Heart Bath and Shower Cream og Elixir Moisturizing Body Veil eru allt nýjar vörur í Par Amour línunni frá Clarins. Sturtusápan hentar bæði fyrir hár og húð og kremin gera húðina silkimjúka og frísklega. Par Amour eru algjörar dekurvörur og tilvalin gjöf handa einhverjum sem á dekur skilið. Nýtt frá Clarins Par Amour vörurnar frá Clarins eru sann- kallaðar dekurvörur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.