Tíminn - 09.09.1977, Blaðsíða 21

Tíminn - 09.09.1977, Blaðsíða 21
Föstudagur 9. september 1977 21 Austui^ bæjar- risarnir: ■HnHHIHHHiHBHi íþróttir ■HHHHI Fram og Valur leiða saman hesta sína Magnús dæmir — bikarúr- slitaleik Vals ogFram Magnús V. Pétursson, hinn kunni knattspyrnudómari úr Þrótti, veröur i sviðsljósinu á Laugardalsvellinum á sunnu- daginn. Nú er búið að ákveða að Magnús dæmi úrslitaleik bikarkeppninnar milli Vals og Fram. Það er ekki að efa að Magnús mun leysa hið erfiöa hlutverk vel af hendi, en hann er margreyndur dómari og hefur dæmt viðs vegar um Evrópu við mjög góðan orðstír. Línuveröir veröa þeir Guðjón Finnbogason, fyrrum landsliðsmaður frá Akranesi, en hann hefur leikið 15 lands- leiki I knattspyrnu, og Einar Hjartarson úr Armanni. — fór skyndilega til Bandaríkjanna í gær, án vitundar Fulham — leika án landsliðsmanna sinna í Reykjavíkurmót- inu í handknattleik George Best kom heldur betur á óvart i gær, þegar sást til hans á Heathrow-flugvellinum i London, þar sem hann var að stiga um borð i flugvél, sem var að fara til Los Angeles i Bandarikjunum. Þetta kom á óvart, þvi að það eru aðeins 6 dagar siðan hann kom til London frá Bandarikjun- um til að leika með Fulham. Best færöist undan aö svara spurning- um, en hann sagði að forráöa- menn Fulham vissu að hann væri á förum. Einn af forráðamönnum Ful- ham vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, þegar hann frétti að Best væri farinn til Bandarikjanna. — Það er mjög einkennilegt, að Best skuli fara svona frá okkur. Best bað okkur ekki um leyfi og lét okkur ekki vita, að hann væri aö fara til Los Angeles. Hinn umdeildi Best átti að leika með Fulham gegn Tottenham á laugardaginn kemur. Það er vit- að að hollenzka félagiö Feye- noord hefur haft áhuga á að fá Best i sinar raðir — nú er spurn- ingin, fer Best til Hollands eftir hina óvæntu Bandarikjaför? — Gamla fyrirkomulagiö hef- ur verið tekiö upp i Reykja- vikurmótinu i handknattleik, þannig að allir leika við alla, sagði Helgi Guðmundsson, formaður Handknattleiksráðs Reykjavikur i stuttu spjalli viö Timann I gær. Helgi sagöi aö það yrðulg leikkvöld, og stæði mótið yfir frá byrjun nóvem- ber til janúar. — Landsliöið verður mikiö á feröinni á þessum tima, þann- ig að félögin leika ekki með landsliösmenn sina i Reykja- vikurmótinu, sagði Helgi. A þessu sést, aö þetta bitnar mest á tveim félögum — Val og Vikingi, sem eiga flesta leikmenn i landsliðinu. Þeir leika ekki með félögum sinum i Reykjavikurmótinu, og verö- ur mótið þvi svipminna, þar sem Valur og Vikingur hafa veriö sterkustu félagsliö landsins undanfarin ár. MAGNÚS V. PÉTURSSON — í bikarúrslitum í Laugardal á sunnudaginn Baráttan um bikarinn fer fram á Laugardalsvellin- um á sunnudaginn, þar sem Austurbæjarrisarnir Fram og Valur leiða sam- an hesta sina, og er það i fyrsta skipti sem þessi gamalkunnu Reykjavíkur- lið mætast i bikarúrslitum í knattspyrnu. Það má búast við mjög fjörug- um leik, eins og alltaf þegar þessi lið hafa leikið saman, en leikir Vals og Fram hafa ávallt verið mjög skemmtilegir og spennandi. Valsliðið hefur leikið mjög góða knattspyrnu undanfarin ár og unnið marga sæta sigra. Fram- liðið hefur aftur á móti veriö i öldudal i sumar, en liðið hefur ávallt sýnt klærnar, þegar mikiö hefur legið viö. Leikurinn á sunnudaginn verö- ur örugglega mjög jafn og spenn- andi og er það spá manna, að það lið sem nær tökum á miðjunni, knýi fram sigur. Þá ræður mark- varzlan miklu, en bæði Fram og Valur tefla fram mjög sterkum markvörðum, landsliðsmark- vörðunum Arna Stefánssyni og Siguröi DagssyniEr beðið i ofvæni eftir úrslitum leiksins á sunnu- dag, en þá veröur sannkallaður bikardagur i Reykjavik. Nú eru liðin 10 ár siðan tvö Reykjavikur- liö léku siðast til úrslita — KR- ingar unnu Vikinga á Melavellin- um (3:0) 1967. Annars hafa úrslit orðið þessi i úrslitaleikjum bikarkeppninnar, siðan byrjað var að keppa um bikarinn 1960. 1960:KR — Fram ...........2:0 1961: KR — Akranes 1962:KR — Fram .. 1963: KR — Akranes 1964: KR — Akranes . 1965: Valur — Akranes. 1966: KR — Valur.... 1967: KR — Vikingur . 1968: Vestm.ey. —KR 1969: Akureyri — Akranes ..1:1 — 3:2 l970:Fram — Vestm.ey.......2:1 1971:Vikingur — Breiðablik ..1:0 l972:Vestm.ey. —FH.........2:0 1973: Fram — Keflavik......2:1 ASGEIR ELtASSON.......fyrirliði Framliösins (t.h.) sést hér nýbúinn aðleika á Bergsvein Alfonsson Val, ihinum spennandileik Fram og Vals.sem lauk með jafntafli—3:3. Tímamynd: Gunnar 1974: Valur Akranes.........4:1 i975:Keflavik — Akranes.....1:0 i976:Valur —Akranes.........3:0 Best kemur enn á óvart! Víkingar og Valsmenn Hvernig komust Fram og Valur í úrslit? Ingi Björn hefur skorað 5 bikarmörk — Hann hefur skorað mörk i öllum bikarleikjum Vals „Frambaninn” Ingi Björn. Ingi Björn Albertsson, sem hefur oft verið kaliaður „Framban- inn”, vegna þesshve mörg mörk hann hefur skorað gegn Fram að undanförnu, hefur veriö a ákot- skónum f bikarkeppninni I knatt- spyrnu. Þessi marksækni leik- maður hefur skorað 5 mörk i þremur leikjum Valsliðsins. Viö ætlum aörifja upp, hvernig Fram og Valur komust 1 úrslit og hvaöa leikmenn hafa skoraö flest mörk liðanna á leið þeirra 1 Ur- slitin. VALSMENN byrjuðu á þvi að vinna sigur (6:1) yfir Þór frá Akureyri i 16-liða úrslitunum. Það voru þeir Guðmundur Þor- björnsson (2), Hörður Hilmars- son.IngiBjörn Albertsson, Albert Guðmundsson og Bergsveinn Alfonsson sem skoruðu mörk Vals. Siðan lögðu Valsmenn Vfking að velli (2:1) f 8-liða úrslit- uiium, og skoraði Ingi Björn þá bæði mörk Valsmanna. Valsmenn léku siöan gegn Vestmanna- eyingum i undanúrslitum og lauk þcim með öruggum sigri Vals — 4:0. IngiBjörn (2), Magnús Bergs og óttar Sveinsson skoruöu þá mörk Vals. FRAMARAIt unnu sigur (3:2) yfir Þrótti frá Reykjavlk I 16-liða úrslitum. Kristinn Jörund- son (2) og Sumarliði Guðbjarts- son skoruðu þá mörk Fram. Slðan léku Framarar gegn KR 1 8-liöa úrslitum og sigruðu 2:0, með mörkum frá Pétri Ormslev og Gunnari Guömundssyni. í undan- úrslitum léku Framarar gegn FH og lauk þeirri viðureign meö sigri Fram — 3:0. Kristinn Jörunds- son, Sumarliöi og Pétur Ormslev skoruöu þá mörk Framliösins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.