Fréttablaðið - 22.06.2006, Side 32
[ ]Jibbí sólin er farin að skína og því loksins hægt að nota sandalana, bandaskó eða aðra sumarlega skó í vinnunni. Leggjum stígvélin til hliðar rétt á meðan veðrið leyfir.
Verslunin Mona á Laugavegi
66 selur hágæða tískufatnað
frá ýmsum löndum, auk þess
að vera með umboðssölu fyrir
fjölmarga íslenska hönnuði.
Í Versluninni Mona á Laugavegi í
Reykjavík kennir ýmissa grasa.
Leðurvörur frá Serbíu, skart úr
íslenskum kindahornum og hand-
unnar ullarvörur eru meðal þess
sem þar má finna. Búðin hefur
verið starfandi í rúmt ár og að
sögn Sigríðar Elfu Sigurðardóttur,
sem er ein þeirra fimm kvenna
sem reka verslunina, gengur vel.
„Við erum með ákaflega vandaðar
vörur og búðinni hefur verið vel
tekið. Hér fæst líka ýmislegt sem
ekki má fá annars staðar, til dæmis
þessar skemmtilegu leðurvörur
frá Serbíu sem kallast Mona,“
segir Sigríður. „Ein okkar er frá
Serbíu og þekkti þetta merki
þaðan en það hefur verið mjög
vinsælt á Balkanskaganum.“
Auk þess að selja leður- og
textílvörur frá Serbíu leynast í
versluninni fallegar vörur frá PS
Collection í Belgrad, danskur fatn-
aður frá 2-Biz og þýsk föt frá MP
by Style. Í haust er síðan von á enn
fleiri vörur frá öðrum löndum.
„Við seljum líka hönnun eftir
nokkra íslenska hönnuði. Þetta eru
ullarvörur frá SES-design, silki-
sjöl eftir Önnu Guðmundsdóttur,
handmálaðar silkislæður eftir
Buddu, kimonokragar eftir Elínu
Öglu og skartgripir eftir þrjá
hönnuði – þær Dýrfinnu Torfa-
dóttur, Ritu Freyju og Snúllu,“
segir Sigríður og bætir því við að
hægt sé að panta vörur hjá hönn-
uðunum eða koma með óskir um
eitthvað sérstakt sem síðan er
búið til fyrir viðskiptavininn.
Sigríður segir að vörurnar í
búðinni henti konum á öllum aldri.
„Aðalaldurshópurinn er 30 ára og
upp úr en hér versla líka ferming-
arbörn. Þetta eru ólíkar vörur og
flestir ættu að geta fundið eitt-
hvað sem þeim líkar,“ segir
Sigríður.
Falleg og sígild hönnun
Leðurjakki frá Mona, pils úr ull og silki frá
SES-design og silkislæða eftir Buddu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS ERLA ÁGÚSTSDÓTTIR
Hvítur leðurjakki frá Mona, pils frá PS collection, undirpils frá MP by style og silkislæða eftir
Önnu Gunnarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS ERLA ÁGÚSTSDÓTTIR
Bleikur módelkjóll út ull og silki frá SES-design. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS ERLA ÁGÚSTSDÓTTIR
Sigríður er ein þeirra sem reka verslunina.
Hún selur líka eigin hönnun undir merkinu
SES-design. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
������������������� ������������������������������
�
�
��
�
�
�
�
��
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
��
�
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
��
��
�
�
�
�
��
�
�
�
Frískandi og mildir
hreinsiklútar fyrir
augn- og andlitsfar›a.
Fást í verslunum um land allt.
Trind handsnyrtivörur alltaf no. 1
Nú Nýtt
Nail Antibite til að For Girls Only Traveling set
Hætta að naga neglur. Aðeins fyrir stelpur ferða sett
Sa
m
kv
. d
ag
bó
ka
rk
ön
nu
n
G
al
lu
p
ap
rí
l 2
00
6.
Auglýsingasími: 550 5000