Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 1
Þor sk veiðibannið: Netabátar almennt í landi GV —Togaraflotinn fer væntan- lega á ufsa- og karfaveiðar, að nokkrum togurum undanskildum, sem verður lagt þessa viku, en bátaflotinn, sem verið hefur á þorskanetum á vertiðarsvæðinu, tekur net úr sjó og verður al- mennt i landi, sagði Agúst Einarsson fulltrúi Landssam- bands islenzkra útvegsmanna um athafnir þorskveiðaflotans i þorskveiðibanninu, sem hefst á hádegi i dag og lýkur á hádegi næstkomandi þriðjudag. Að sögn Agústs fer nokkur hluti netabátaflotans á ufsaveiðar suð- ur undan landinu og eru það aðal- lega Þorlákshafnar- og Vest- mannaeyjabátar. * I þorskveiðibanni: „Sjómannastéttin á ekki að bera allan skaðann ein” GV —Við teljum að þessi fiskfrið- un eigi fullan rétt á sér, en hins vegar teljum við að það sé ekki einungis sjómannastéttarinnar aðtaka á sig þann fjárhagsskaða, sem af þessu leiðir. Þjóðin öll á að taka þátt i þessari kjaraskerð- ingu, en ekkibara sjávarútvegur- inn, sagði óskar Vigfússon, for- maður Sjómannasambands Is- lands, i viðtali við blaðið i gær, er hann var spurður um hug sjó- manna til þeirra fiskfriðunarað- gerða serh hefjast i dag með- þorskveiðibanni. Óskar sagði einnig, að þó að forsvarsmenn Landssambands islenzkra útvegsmanna eigi ekki sök á þorskveiðibanninu, þar sem þetta eru friðunaraðgerðir stjórn- valda, þá brjóti þau umburðar- bréf, sem LÍÚ hefur sent útvegs- mönnum, i bága við kjarasamn- inga og sjómannalög, þar sem segir aðhásetar eigi rétt á minnst sjö daga uppsagnarfresti. — í þessum umburðarbréfum er gef- in heimild til — bókstaflega að henda mannskapnum i land, á meðan á banninu stendur, sagði Óskar. — Það er annað i þessu sem er enn alvarlegra. Sjómenn, sem stunda veiðar á þessu timabili, vita ekki alltaf um hvort þorsk- aflinn sem kemur i veiðarfærin er yfir 15% eða ekki. Þessi afli er siðan gerður upptækurer kemur i land, og rennur andvirði um- framaflans i rikissjóð. Þvi má segja, að undirmenn á skipum taki á sig að vinna þegnskyldu- vinnu, sagði Óskar. Astæöuna fyrir þessu kvað Ósk- ar liggja i lögum um alræöisvald skipstjóra. Skipstjórinn ræður hvar veitt er og hve mikið, og hásetanum gert skylt að gera að aflanum. — Þessilög um alræðis- vald skipstjóra ganga i berhögg við sjómannalögin. Sjómenn eru þvi neyddir i vinnu, sem er lög- brot, sagði Óskar. : ^ "1 # TSm - (Jtvegsbanki lslands viö Lækjartorg. Timamynd GE. Seðlabankinn vill leggj a Ú tvegsbankann niður um rikisins, eru annars vegar þau, að tveir rikisbankar tryggi betur hagkvæmt og traust bankakerfi en þrir, og hins veg- ar þau, aðstaða Otvegsbankans sé orðin svo ótraust, að hún krefjist umsköpunar á banka- kerfi rikisins. Nánar er sagt frá þessu áliti bankastjóranna á bls. 6. Bankastjórar Seðlabanka Is- lands, Davið Ólafsson, Guð- mundur Hjartarson og Jó- hannes Nordal, hafa nýlega mælt með þvi viö Alþingi, að Út- vegsbankinn verði lagður niður og annað hvort sameinaður Búnaðarbankanum eða skipt milli Landsbankans og Búnaðarbankans. Þetta kemur fram i umsögn þeirra um fyrir- liggjandi stjórnarfrumvarp um viðskiptabanka i eign rikisins, en fjárhagsnefnd efri deildar, sem hefur frumvarpið til með- ferðar, óskaði eftir umsögn þeirra um það. Rökin, sem bankastjórarnir færa fyrir þvi að leggja niður einn af þremur viðskiptabönk- Sigurvegarar i SkeifuraUi Hér sjást sigurvegararnir I nýafstöðnu Skeifuralli, (talið frá vinstri) þeir Jóhannes Jóhannesson og Halldór úlfarsson, viö farkost sinn, bll af gerðinni Vauxhall Chevette, frá Véiadeild Sambandsins. Með þcim á myndinni er Jón Þór Jóhannesson framkvæmdastjóri véladeildarinnar. Nánar segir frá keppninni á slðu 18. Tlmamynd Gunnar Loðnuveiðar: 70 þús. lesta metvika GV — Siðastliðna viku öfluðu loðnubátar 69.124 lesta af loðnu og er þetta bezti vikuaflinn frá upphafi vertiðar. Það er óhætt aö segja, að afli föstudagsins vegi þar þyngst á metunum, þvi aö þá fengust tæpar 20 þús. lestir af loðnu, og er það mesti sólarhringsafli til þessa á vertiö- inni. Heildaraflinn frá byrjun vertiðar er nú orðinn samtals 447.603 lestir og samkvæmt skýrslum Fiskifélags Islands er nú vitað um 75 skip er fengiö höfðu afla slðastliðið laugardags- kvöld. A sama tima i fyrra var heildaraflinn samtals 518.319 lest- ir og þá höfðu 81 skip fengið afla. Heildaraflinn nú er þvi um 70þús. lestum minni en hann var i fyrra. Tvö skip hafa nú aflað meir en 15þús. lestaá vertiðinni. Þau eru Börkur NK 122 með 15.867 lestir og örn KE 13 meö 15.098. Loðnu hefur verið landaö á 22 stöðum auk bræðsluskipsins Nor- global. Mestu hefur verið landað á Seyðisfirði, samtals 59.644 lest- um og Neskaupsstað 52.616 lest- um, Vestmannaeyjum 52.565 lest- um og Norglobal 51.182 lestum. A bls. 3 I blaðinu er birt skýrsla Fiskifélagsins yfir þá báta, sem fengið hafa afla á vertiðinni, svo og skýrsla yfir löndunarhafnir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.