Tíminn - 01.04.1978, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.04.1978, Blaðsíða 2
T Laugardagur 1. april 1978 Bandarikin: Mesti viðskiptahalli sem um getur Reuter-Washington. Bandarikja- stjórnbirti i gær tölur um mesta viðskiptahalla, sem orðið hefur i landinu á einum mánuði frá þvi sögur höfust. Samkvæmt þeim hafði hann aukizt i febrúar um nær helming miðað við janúar- mánuð. Sögðu fulltrúar stjórnar- innaraðhallinn næmi 4.52 ibiilljón dölum i febrúarmánuði, en það er nærri þvi einni billjón dölum meira en hallinn var mestur á siðasta ári, i október, en þá var hann 3.6 billjónir. Árið 1977 var metár hvað varðar heildarviðskiptahalla Bandarikjanna, en hann var þá 2.56 billjón dalir. Þrátt fyrir þetta hefur viðskiptaráðuneytið sagt, að ekki sé ástæða til neinnar svartsýni, þvi breytingar frá ein- um mánuði til annars gefi ekki raunhæfa mynd af þvi hvernig heildin verður, það þurfi minnst fjóra mánuði til. En fréttir af stöðu mála i febrúar voru vissu- lega ekki neinar skemmtifréttir tyrir bandarisk stjórnvöld, og ef þau stefna að þvi, eins og komið hefur fram hjá þeim, að búast megi við að hallinn verði minni i ár en i fyrra hljóta þau að þurfa aðgripa til ráðstafana i þeim efn- um, til að bæta hina tiu mánuðina upp. Bandarikin hafa legið undir stöðugri gagnrýni frá viðskipta- löndum sinum vegna þessa. Hafa viðkomandi lönd kvartað yfir þvi, að afleiðing gengisfalls Banda- rikjadals hafi þau áhrif á Utflutn- ingsvörur þeirra, að þær hækki I verði. Hafi þetta einnig raskað stöðu gjaldeyrismála. Nær samtimis og fréttir um viðskiptahalla Bandarikjanna bárust á gjaldeyrismarkaði i Frankfurt i gær, féll dalurinn enn, og stendur hann nú i 2.0005 þýsk- um mörkum. Það er ótti um efnahag Banda- rikjanna ásamt með þessum mikla viðskiptahalla, sem hefur Framhald á bls. 19. Carter hefur ekki átt sjö dagana sæla sfðan hann settist i forseta- stól. Nú hefur stjórn hans sctt met i viðskiptahalla við útlönd, og er hann m eiri en nokkru sinni frá þvi sögur hófust. Allterþá þrennter! NÝ SMURSTÖÐ við Stórahjalla í Kópavogi 1« Á 8íða8tliðnu ári opnaði Esso nýja og glœsilega bensínstöð og verslun við Stórahjalla í Kópavogi. 2« Einnig var tekin í notkun stórgóð þvottaaðstaða á bifreiðunu 3. Nú laugardaginn 1. apríl kemur 8vo rúsínan, sem er ný smurstöð á sama 8tað. MEÐ ÞESSARIÞRENNINGU ERUM VIÐ STAÐRÁÐNIR ÍAÐ VEITA ÞJÓNUSTU SEM VIÐ ERUM STOLTIR AF OG GERIR ÞIG ÁNÆGÐAN. VERTU VELKOMINN Carter leitar hófanna í Nígeríu um stöðugt oliuverð Reuter-Nigeria. Carter forseti er nú i Lagos i Nigeriu, en þangað kom hann að loknum viðræðum við forseta Venezúela. Með hon- um i förinni er Andrew Young, sendiherra Bandarikjanna hjá Sameinuðum þjóðunum, sem átt hefur mikinn þátt i að marka stefnu Bandarikjastjórnar i mál- efnum Afriku. Bandarikjaforseti mun flytja ræðu i Lagos i dag, og að sögn talsmanna hans, mun hann hvetja Obasanjo hershöfðingja til að vinna að þvi að halda oliuverði niðri. Leitaðist hann til þess sama af forseta Venezúela, Carlos Andres Perez, i viðræðum þeirra fyrr i vikunni, en án árangurs. Nigeria, sem er meðlimur i OPEC (Samtökum oliuútflutn- ingsrikja) er annar stærsti út- flytjandi oliu til Bandarikjanna. Mesta oliu kaupa Bandarikja- menn frá Saudi-Arabiu. Oli'uframleiðsla Nigeriu hefur minnkað undanfarið, og hefur fall dollarans á alþjóðamörkuðum að undanförnu haft áhrif á efnahag landsins. Obasanjo hershöfðingi, tók hús á Carter i Washington i október s.l., þar sem bundinn var endi á ágreining, sem hafði risið milli þjóðann sökum þess að Bandarikin og Nigeria studdu andstæðar hreyfingar i borgar- styrjöldinni i Angóla. Jarðskjálfti skekur Guatemala Reuter-Guatemala City.Jarð- skjálfti fór um miðhluta Guate- mala i fyrradag, en ekki er ljóst hvað hann var sterkur. Heimildir herma, að óttaslegið fólk hafi þotiðút á götur og stræti. Nokkrar byggingar skemmdust. en ekki hefur verið tilkynnt um neina mannskaða. Gifurlegur jarðskjálfti varð i Guatemala i byrjun árs 1976 en þá létust tugþúsundir manna, og borgir og bæir hrundu svo til grunna. Dvöl ísraelskra hermanna get ur orðið löng Skipulögð útþenslustefna Beirút-Reuter. Samkvæmt frétt frá Reuter fréttastofunni leið annar dagur vopnahlésins i Suður-Libanon átakalaust. En að þvi' er palestinskir talsmenn sögðu i gær, eru þeir ekki trúaðir á að Israelsmenn hyggist draga sveitir sinar til sinar til baka þaðan. „Við trúum þvi ekki að þeir ætli sér að draga sig til baka”, sagði háttsettur leiðtogi i PLO, frelsis- hreyfingu Palestinumanna, og það mun álit flestra Palestinu- manna i landinu. — „Þeir ætla sér að vera um kyrrt. Þeir munu koma með s vo mörg skilyrði fyrir brottför sinni, að enginn sjái sér fært að samþykkja þau”. Margir libanskir ráðamenn voru sammála þessu, og sögðu að persónulega álitu þeir, að dvöl israelskra hermanna i landinu sunnan við ána Litani yrði löng. rE í. i '\'X : ð ' &■ Skólasafnafulltrúa Fræðsluskrifstofa Reykjavikur óskar að ráða skólasafnafulltrúa til starfa við miðstöð skólabókasafna i Reykjavik, Laun samkvæmt launakerfi borgar- starfsmanna. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist fræðslu- skrifstofu fyrir 15. april n.k. Fræðslustjóri. v..v g fS úr $ ,y/< ;Vr' p.V: cv< y v > .* . v; Trésmiður - Dalasýsla Búnaðarsamband Dalamanna óskar eftir smið sem verkstjóra i byggingaflokki þar sem notuð verða flekamót. Upplýsingar gefur Jón Hólm Stefánsson, héraðsráðunautur i sima (95)2160. Búnaðarsamband Dalamanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.