Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 72

Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 72
 21. september 2006 FIMMTUDAGUR36 ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Við tökum þetta! Drengurinn er sjóðheitur! Sjáðu hlunkinn! Það er blóðbragð í munninum á honum! Já, hlunkur- inn tekur þetta! Það er harkan í dag, vett- lingarnir eru farnir af. Og sömuleið- is gleraugun! Hina áttina hlunkurinn þinn, hina áttina! Loksins þegar við vorum að taka saman aftur sagði Sara að mömmu hennar fyndist að hún ætti að fara að vera með öðrum strákum. Jamm! Dæs! Enn og aftur er maður í ómögu- legri stöðu! Jamm! Afhverju geta ómögu- legar aðstæður aldrei verið ómögulegar en samt virkað? Ég hef verið að spá í að finna mér starf sem samsvarar pólitískri rétthugsun nútímans betur. Nei! Það kom ekki flass.Barnalán Að mynda börnin! ÞRIÐJI HLUTI Sú hugmynd að mann- skepnan engist undir oki siðmenningar hefur verið lífseig enda hljómar það síður en svo algalið að bæling hins dýrslega í eðli okkar kalli fram alls konar hugarangur og þunglyndi. Hvatalífinu er sniðinn nokkuð þröngur stakkur af boðorðum og bönnum sem eru sjálfsagt fyrst og fremst hugsuð til þess að halda samfélaginu saman á kostnað ein- staklingsfrelsins. Siðferðisvitundin getur því verið býsna þungur far- angur að burðast með en ætli maður sé samt ekki betur settur með þennan klafa en án hans? Auðveldasta leiðin til þess að taka siðferðisvitundina úr sam- bandi er neysla áfengis og það er því hægur vandi að gera tilraunir á sjálfum sér hvað þetta varðar. Flestir sem hafa ítrekað látið það eftir sér að svæfa eða staðdeyfa siðferðisvitundina með þessum meðulum hafa líklega lent í því að gera einhvern fjandann af sér, ekki síst á kostnað annarra, og þekkja þá hinn alræmda „þynnkubömmer“ af eigin raun. Þetta er ekkert sér- staklega skemmtileg tilfinning en æskileg og sjálfsögð refsing enda gæti maður vart flokkað sig sem manneskju ef maður væri yfir það hafinn að sjá eftir gjörðum sínum. Í hinni frábæru skáldsögu Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur vinnur ein persónan, Madame Louise de Roubaix, til þeirra vafa- sömu verðlauna að siðferðisvitund hennar er tekin úr sambandi með skurðaðgerð. Hún upplifir vitaskuld magnaða breytingu á sjálfri sér: „Leyndarmálin voru þarna ennþá en þau voru ekki lengur skí- tug. Þar sem áður hafði verið þján- ing var nú ferskur léttleiki. Hún var hrein að innan og tóm. Innant- óm. Var það þetta sem þau kölluðu Paradís áður en fíkjublöðin komu til sögunnar?“ Þetta virðist í fyrstu vera lúxus en það er hætt við því að meira tap- ist en ávinnist með því að losna undan siðferðinu. Adam var ekki lengi í Paradís en dvölin þar hefði verið einskis virði ef hann hefði ekki séð eftir missinum. STUÐ MILLI STRÍÐA Sofandi siðferðisvitund ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON SÆTTIST VIÐ SIÐFERÐISVITUNDINA. ÞA Ð E RU TIL ÞÚ SU ND LE IÐI R T IL A Ð A UK A A DR EN ALÍ NF LÆ ÐIÐ . Í D AG ÞA RF CH EV CH ELI OS Á ÖL LU M A Ð H ALD A! FRUMSÝND 22.09.06 V in n in g a r v e rð a a fh e n d ir h já B T S m á ra lin d . K ó p a v o g i. M e ð þ v í a ð t a k a þ á tt e rt u k o m in n í S M S k lú b b . 9 9 k r/ s k e y ti ð . 9. HV ER VI NN UR ! SE ND U S MS JA VC K Á N ÚM ER IÐ 19 00 ÞÚ GÆ TIR UN NIÐ M IÐA ! V inn ing ar eru m iða r fy rir 2, · DV D m ynd ir o g m arg t fl eir a MOBILE

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.