Fréttablaðið - 11.10.2006, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.10.2006, Qupperneq 24
[ ]Haustin eru góður tími til helgarferða innanlands. Hægt er að leigja sumarbústaði fyrir sanngjarnt verð eða bregða sér í menningarferð til dæmis til Akureyrar, Ísafjarðar eða Reykjavíkur. Icelandexpress býður upp á skipulagða ferð til Luxemburg dagana 13.-16. október. Föstudaginn 13. október er flogið kl. 15.15 til Frankfurt Hahn, þar sem áæltunarbíll mun flytja far- þega á Hotel Nobilis, fjögurra stjörnu hótel í miðbæ Luxemburg þaðan sem stutt er í verslanir og veitingahús. Laugardag geta ferðalangar nýtt til að skoða sig um í borginni en á sunnudag er boðið upp á sigl- ingu á Mósel með leiðsögumani, Farþegum gefst kostur að skoða bæi á leiðinni. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja smakka á vínuppskerunni. Mánudagur er frjáls en lagt verður af stað til Frankfurt Hahn kl. 17.00 og flogið til Íslands kl. 20.20. Sjá nánar á www.icelandex- press.is Helgarferð til Luxemburg Express ferðir bjóða upp á ferð til Lux- emburg um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Miðasala á Iceland Airwaves hefur gengið vonum fram á erlendum sölustöðvum Ice- landair. Sölumet hefur verið slegið hjá Ice- landair í Skandinavíu, það er Nor- egi, Svíþjóð og Danmörku. Ákvörð- un hefur verið tekin um að senda stærri flugvél til og frá London til að anna eftirspurn. Þá er næstum því uppselt á Airwaves í Banda- ríkjunum. Miðasala hefur aukist í Finn- landi og í fyrsta sinn hefur ferð á hátíðina verið skipulögð í Japan. Sala í Þýskalandi og Frakklandi er aftur á móti svipuð nú og í fyrra. Um það bil helmingur inn- lendra miða hefur þegar selst, en miðað við aðsókn á hátíðina síðast- liðin tvö ár má búast við að þeir seljist upp. Frá þessu er greint á heimasíðu Icelandair, það er www. icelandair.is. Nánar um dagskrána á www. icelandairwaves.com Airwaves eftirsótt Leik- og söngkonan Juliette Lewis kom fram með hljómsveit sinni Licks á síð- ustu Airwaves hátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur kennir flughrædd- um að sigrast á ótta sínum á námskeiðum sem haldin eru á vegum Icelandair. „Flughræðslunámskeiðið er fyrir alla sem upplifa að kvíði truflar þá áður en haldið er í flug,“ segir Álf- heiður Steinþórsdóttir, en hún er einn af leiðbeinendum á námskeið- um sem haldin eru fyrir flug- hrædda. „Þessi kvíði getur verið frá því minnsta yfir í það versta. Allt frá því að vont veður eða töf á flugi veldur óróleika yfir í að fólki kvíðir fyrir flugferðinni margar vikur fyrir og festir varla svefn.“ Á námskeiðunum kennir Álf- heiður fólki að takast á við kvíðann sem fylgir því að fljúga. „Nám- skeiðin eru í raun tvískipt. Ég kenni flughræddum að ná tökum á kvíða og stjórna honum og fer líka í hvernig breyta má ranghugsunum sem fólk hefur varðandi áhættuna við að fljúga. Síðan fer Páll Stef- ánsson flugstjóri yfir allt sem teng- ist sjálfu fluginu. Hann fer yfir hversu mikið vélin þolir, öll þau hljóð sem heyrast, af hverju ókyrrð er aldrei hættuleg þó hún sé óþægi- leg, breytilegt veður og fleira. Páll tekur fyrir ytri aðstæður og ég tek fyrir innri aðstæður.“ Álfheiður segir kvíða fólks oft magnast við aðstæður sem það þekkir ekki til. „Fólk hefur tilhneig- ingu til, af því það er kvíðið og hefur ekki þekkingu á því sem er að gerast, að túlka allt sem gerist á leiðinni sem hættu. Ókyrrð er tengd við eitthvað hættulegt og fólk spyr sig „þolir vélin þetta, hrapar hún?“. Einnig ef fólk finnur einhverja lykt „getur þá verið að það sé kviknað í?“. Ef það er áhyggjusvipur á flug- freyjunni þá veit hún að það er ekki allt í lagi og vélin þarf að nauð- lenda. Allar þessar túlkanir byggj- ast oft á því að maður veit ekki hvað er um að vera.“ Námskeiðið sjálft tekur fjögur kvöld og endar á flugferð til ein- hvers af áætlunarstöðum Ice- landair í Evrópu. Með í ferðinni eru Álfheiður og Páll og þau leiðbeina fólki alla ferðina. Farið er yfir þau hljóð sem heyrast og annað er teng- ist vélinni og Álfheiður æfir með flughræddum að bregðast við kvíða. „Eftir þessa flugferð eru nemendurnir orðnir sérfræðingar í flugi,“ segir Álfheiður. „Það er áberandi hvað fólki líður miklu betur með að ferðast eftir þessi námskeið. Margir tala meira að segja um sem þeir séu að öðlast nýtt frelsi.“ Næstu námskeið verða haldin 16., 19., og 24. október og 1. nóvem- ber. Flugferðin er farin 3. nóvem- ber. Skráning á námskeiðin fer fram á skrifstofum Icelandair. johannas@frettabladid.is Tökum náð á flughræðslu Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur segir flughræðslu vera þungan bagga að burð- ast með, en sem betur fer er flughræðsla eitthvað sem má ná tökum á. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Norðurljósin seld TÍMARITIÐ ASTRONOMY Í BANDARÍKJUNUM ER BYRJAÐ AÐ AUGLÝSA NORÐURLJÓSAFERÐIR TIL ÍSLANDS Í MARS Á NÆSTA ÁRI. Eitt stærsta stjörnufræðitímarit heims, Astronomy, stendur fyrir norðurljósaferðum til Íslands í mars á næsta ári. Fólkið kemur til landsins 16. mars og dvelur hér í 5 nætur. Innifalið í ferðinni er flug til og frá landinu, rúta og fimm nætur á Hótel Nordica í Reykjavík og er morgunmatur innifalinn en ferðin kostar alls 150 þúsund krónur. Farið verður í dagsferð um borgina, Bláa lónið og Gullfoss, Geysir og Þingvellir skoðaðir. Þá mun fólkið hlýða á stjörnufræðifyrirlestra og fara út fyrir bæinn til að skoða norður- ljósin. Þá er bara að vona að það verði heiðskýrt þegar ferðalangana ber að garði. - jóa Tímiritið Astronomy auglýsir ferðir til Íslands þar sem megintilgangur- inn er að skoða norðurljósin. Ferðafélagið Útivist hefur ákveðið gjaldskrá í skálum félagsins fyrir árið 2007. Almennt gistiverð í skálum Útivist- ar í Básum, Strúti og á Fimmvörðu- hálsi verður 2.000 krónur á næsta ári en 1.700 krónur í skálunum við Sveinstind, í Skælingum og við Álftavötn. Verð til félagsmanna í Útivist verður 1.200 krónur fyrir nóttina í öllum skálum. Miðað er við að tekjur af skálum standi straum af rekstri þeirra og að áfram sé hægt að sinna góðu við- haldi þeirra en rekstrarafkoma sé sem næst núlli. Töluverð aðsókn er að skálum Útivistar yfir vetrartímann. Sér- staklega er vert að benda á skálann við Strút sem hentar sérlega vel hvort heldur ferðast er á jeppum, vélsleðum eða á gönguskíðum. Búið er að undirbúa skálana fyrir vetur- inn og læsa þeim en þeir sem hyggj- ast nýta þá í vetur geta bókað gist- ingu á skrifstofu félagsins og er þeim þá afhendur lykill að viðkom- andi skála. Skálavarsla verður hins vegar í Básum til 15. október en vegna mik- illar aðsóknar er ferðamönnum bent á að bóka gistingu. Síminn á skrif- stofu Útivistar er 562 1000, hún er opin frá 10-17 alla virka daga. Skálar Útivistar til útleigu í vetur Skálinn við Strút hentar þeim sem ferðast á jeppum, vélsleðum eða gönguskíðum yfir veturinn. til Würzburg s: 570 2790 www.baendaferdir.is Þýskaland er land jólamarkaðanna og bjóðum við nú jólaferð til Würzburg sem er einstaklega heillandi borg og skartar sínu fegursta í desember. Hrein upplifun er að fara á jólamarkaðina sem geyma ótal jólagjafahug- myndir; bragða á jóladrykknum „Glühwein“ og jólastemmingin eykst á hverju horni. Úrval veitingastaða er gott, hótelið þægilegt og staðsett miðsvæðis. Spennandi skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber. í Þýskalandi 30. nóvember - 3. desember 2006 7. - 10. desember 2006 14. - 17. desember 2006 Verð kr. 64.900 á mann í tvíbýli Innfalið: Flug, skattar, gisting í tveggja manna herbergi á 3* hóteli með morgunverði í 3 nætur, ferðir milli flugvallar og hótels, skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber og íslensk fararstjórn. K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.