Fréttablaðið - 11.10.2006, Side 75
MIÐVIKUDAGUR 11. október 2006 31
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í október
í Landnámssetri
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 13. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 14. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 15. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 20. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 21. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 22. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 26. október kl. 20
Síðasta sýning - Uppselt
Stutt ágrip af sögu traktorsins á
úkraínsku hefur náð miklum vin-
sældum í Bretlandi og víðar. Nú er
þessi stutta en skemmtilega skáld-
saga Marinu Lewycka komin út í
kilju á forlagi Máls og menningar
í ágætri þýðingu Guðmundar
Andra Thorssonar.
Hér segir af flóttafólki sem
hefur frá stríðslokum haft búsetu
í Bretlandi. Við andlát móður
þurfa tvær systur að takast á við
föður sinn sem vill kvænast á
nýjan leik og sækir brúður sína til
Úkraínu og fylgir stálpaður sonur
með í ráðahagnum. Dæturnar fá
ekki spornað við ráðahagnum og
sambúð aldraðs föður þeirra og
talsvert yngri brúðar hans fer
brátt að skekja líf þeirra allra.
Sagan er grátbrosleg í háðs-
legri lýsingu á gerólíkum gildum
þeirra sem hafa alla sína tíð lifað
spart og hinna sem hungrar eftir
öllum lífsins gæðum sem vestræn-
ir hættir geta veitt þeim sem hafa
auraráð. Stjúpan vill koma hönd-
um yfir allt. Gamli maðurinn fórn-
ar sparifé sínu fyrir ný brjóst.
Ráðahagurinn er sprottinn af
brýnni þörf til að koma brúðinni
upp nýju ríkisfangi.
Í raun fer þremur sögum fram
innan gamansögunnar: gamli
maðurinn er verk-
fræðingur og
dundar sér við að
skrifa sögu drátt-
arvélanna í heima-
landi sínu og
bregður þannig
upp í leiftrum
sögu heillar aldar
í austurvegi.
Sögumaðurinn,
yngri systirin,
rifjar síðan hægt
og rólega í gegn-
um alla söguna
skelfilegt lífs-
hlaup fjölskyldu
sinnar fyrir
útlegðina í Bret-
landi. Forsaga
foreldra og systur
skýrist smátt og smátt og varpar
ljósi á persónugerð þeirra og
örlög.
Gráglettin sagan er því annað
og meira: þroskasaga nokkurra
einstaklinga á liðinni öld sem vísar
langt út fyrir einkahagi þeirra.
Stutt ágrip er í látlausri og skond-
inni frásögn saga
stórra atburða í lífi
þjóða, vísar á stærri
og grimmari örlög en
virðist við fyrstu
sýn. Hún er hagan-
lega hugsuð og les-
anda er stöðugt
komið á óvart.
Fyndnin er stór-
karlaleg en einkenn-
ist af mildri hlýju.
Þýðandinn hefur
unnið textann af
natni. Stundum örlar
á kunnuglegri til-
gerð stílsnilli Guð-
mundar en það er
meir til gamns en
lýta. Stutt ágrip er
því holl áminning
um hildarleikinn sem skók austur-
veg alla síðustu öld, sterk og
bráðskemmtileg lýsing á ólíkum
gildum og breyskleika sem býr
með okkur flestum.
Páll Baldvin Baldvinsson
Flóttamenn á tvennum tímum
Félagsheimilið Þjórsárver stend-
ur fyrir árvissri Tónahátíð nú um
helgina og gefst Sunnlendingum
og öðrum gestum tækifæri á að
hlýða á fjölbreytta tónlist í flutn-
ingi víðfrægra listamanna.
Á morgun leikur harmonikku-
leikarinn Tatu Kantomaa en á
föstudaginn er von á stórsöngvur-
unum Óskari Péturssyni og
Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni,
sem syngja við undirleik Jónasar
Þóris. Strengjatríóið Guitar
Islancio leikur síðan listir sínar á
laugardaginn.
Félagsheimilið Þjórsárver er á
vesturbakka Þjórsár sunnan þjóð-
vegar númer eitt. Allir tónleikarn-
ir hefjast kl. 21 en húsið verður
opnað hálftíma fyrr. Miðar eru
seldir við innganginn en einnig er
hægt að kaupa þá í forsölu, annað-
hvort hjá umsjónarmanni félags-
heimilisins eða í Hljóðhúsinu í
Kjarnanum á Selfossi. - khh
Tónahátíð á Suðurlandi
SUNNLENDINGAR FRÁ GÓÐA GESTI Nú brestur á með Tónahátíð í félagsheimilinu
Þjórsárveri.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
OKTÓBER
8 9 10 11 12 13 14
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.30 Á fyrstu hádegistónleikum
Háskóla Íslands í vetur flytja Auður
Gunnarsdóttir sópransöngkona og
Jónas Ingimundarson píanóleikari
íslensk sönglög í hátíðarsal skólans í
Aðalbyggingu. Aðgangur er ókeypis
fyrir nemendur skólans.
20.00 Fimmtíu ára afmæli rokksins
er fagnað með tónleikum í Salnum í
Kópavogi. Söngvarar á tónleikunum eru
Anna Vilhjálms, Berta Biering, Einar
Júlíusson, Fjóla Ólafsdóttir, Garðar
Guðmundsson, Rúnar Guðjónsson,
Sigurður Johnie, Stefán Jónsson í
Lúdó, Þorsteinn Eggertsson og Mjöll
Hólm, Helena Eyjólfsdóttir og Ragnar
Bjarnason.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Rokktóberfest á Gauknum.
Kvöldvaka Capone hefst kl. 22 en húsið
opnar kl. 20.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Kristín Guðmundsdóttir
aðjúnkt við Félagsvísinda- og laga-
deild Háskólans á Akureyri fjallar
um hlutverk atferlisgreiningar á
Félagsvísindatorgi HA í stofu L101 á
Sólborg við Norðurslóð.
■ ■ FUNDIR
20.00 Blaðamannafélag
Íslands fjallar um leiðtogafundinn í
Reykjavík árið 1986 á opnum fundi
í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Guðmundur Magnússon sagnfræð-
ingur, Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins, Katrín Pálsdóttir
fréttamaður Sjónvarpsins, Þórir
Guðmundsson, varafréttastóri á NFS og
Jón Hákon Magnússon almannatengill
flytja erindi. Fundarstjóri verður Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir, varaformaður
Blaðamannafélags Íslands.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Myndlistarkonan Þórdís
Aðalsteinsdóttir sýnir verk
sín í Listasafni Reykjavíkur,
Kjarvalsstöðum. Sýningin ber yfir-
skriftina Því heyrist þó hvíslað að
einhverjir muni komast af og geymir
málverk og vídeóverk.
11.00 Í Galleríi húnoghún,
Skólavörðustíg 17b, standa yfir
tvær sýningar. Manuela Gudrun
Rozvitarsdottir sýnir skartgripi úr gulli,
silfri og eðalsteinum en Þuríður Helga
Jónasdóttir og Sif Ægisdóttir sýna
ljósmyndir og silfurgripi. Sýningunum
lýkur 15. október.
Kópavogsbær skipuleggur kan-
adíska menningarhátíð sem hefst
um næstu helgi og er dagskráin
unnin í samvinnu við lista- og
menningarstofnanir í Kópavog og
kanadíska sendiráðið.
Þetta er í þriðja sinn sem Kópa-
vogsbær stendur fyrir viðlíka
menningarhátíð en Björn Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
tómstunda- og menningarsviðs
Kópavogsbæjar, útskýrir að áður
hafi verið leitað til Suður-Evrópu
og lengst norður til Rússlands en
nú sé komið að frændum okkar í
Vesturheimi. „Þar er jú stærsta
þjóðarbrotið og fjöldi íslenskra
afkomenda sem við höfum verið í
góðum tengslum við.“
Von er á fjölda góðra gesta í
tengslum við hátíðina, sem hefst
næstkomandi föstudag og stend-
ur til 22. október. „Hátíðin hefst á
opnun þriggja sýninga í Gerðar-
safni en þar verða þrjár glæsileg-
ar myndlistarsýningar á list
frumbyggja eins og hún er séð í
nútímanum,“ útskýrir hann og
bendir á að þær sýningar standi
reyndar fram í desember.
Fjölbreytt tónlistardagskrá
verður í Salnum á komandi
dögum en hinn heimskunni píanó-
leikari Angela Hewitt heldur þar
tvenna tónleika eftir helgi fyrir
íslenska áheyrendur. Þar
skemmtir enn fremur fjöllista-
hópurinn Red Sky og flytur ævin-
týri úr sagnaheimi Cree-indíána í
dansi, leik og tónum. Þeim til full-
tingis eru tveir barkasöngvarar.
Einnig er von á óperusöngkon-
unni Mary Lou Fallis og meðleik-
ara hennar, Peter Tiefenbach,
sem eignuðust marga aðdáendur
hér á landi í heimsókn sinni í
fyrra en Björn útskýrir að þau
muni nú flytja sannkallaða
skopóperu.
Kanadískar kvikmyndir og
bókmenntir verða í brennidepli í
Bókasafni Kópavogs á meðan á
hátíðinni en einn af gestum henn-
ar er rithöfundurinn Michael
Ondaatje en þekktast verka hans
er skáldsagan The English Patient
sem seinna var kvikmynduð og
vann til fjölda Óskarsverðlauna.
Auk alls þessa verður efnt til
sérstaks málþings um kanadíska
menningu frumbyggja og land-
nema með þáttöku íslenskra og
erlendra fræðimanna. Undir lok
hátíðarinnar verður síðan haldin
kanadísk fjölskylduhátíð í Vetrar-
garðinum í Smáralind þar sem fjöl-
breytt dagskrá verður skipulögð
fyrir listunnendur á öllum aldri.
Nánari upplýsingar er að finna
á vefsvæði Kópavogsbæjar, www.
kopavogur.is.
HÖFUNDUR THE ENGLISH PATIENT
Michael Ondaatje er sérstakur gestur
Kópavogsbæjar á hátíðinni.
ANGELA HEWITT PÍANÓLEIKARI Heldur tvenna ólíka tónleika í Salnum í tilefni af
Kanadískri menningarhátíð.
Afbragðskúltúr frá Kanada
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6