Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.10.2006, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.10.2006, Qupperneq 8
8 29. október 2006 SUNNUDAGUR VEISTU SVARIÐ? Réttu hjálparhönd Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir að ráða fólk í heimaþjónustu. Fjölbreytt og gefandi starf með sveigjanlegum vinnutíma. Heilsdags- og hlutastörf. Kynntu þér kjörin, þau koma á óvart! Nánari upplýsingar veita þjónustustjórar heimaþjónustunnar í síma 570 1400. www.kopavogur.is Meginmarkmið Félagsþjónustu Kópavogs er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi Kópavogsbúa á öllum aldri svo þeir fái tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu. Opnun kosningaskrifstofu að Garðatorgi Kæru sjálfstæðismenn Í dag, sunnudaginn 29. október kl.13 opna ég kosningaskrifstofu að Garðatorgi 7 í Garðabæ. Ég vil bjóða þér og þínum að koma við og eiga með okkur skemmtilega stund milli kl 13 15 af þessu tilefni. Boðið verður upp léttar veitingar, ljúfa tóna og skemmtun fyrir börnin. Hlakka til að sjá ykkur. Kær kveðja, 2 Bjarna Benediktsson í 2. sætið Tryggjum trausta forystu Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi fer fram laugardaginn 11. nóv 2006 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI NORÐURLÖND Ríkisstjórnir Íslands og Noregs vilja að Halldór Ásgrímsson verði næsti fram- kvæmdastjóri Norrænu ráð- herranefndarinnar, að því er fullyrt er í frétt finnska Hufvud- stadsbladet í fyrradag. Í fréttinni lýsir Outi Ojala, formaður Finnlandsdeildar Norðurlandaráðs, vonbrigðum með það „leynimakk“ sem Íslendingar hafi sýnt í kring um framboð Halldórs, „á meðan Finnland hefur haft spilin á borð- inu“. Finnar tefla fram Jan-Erik Enestam, ráðherra umhverfis- mála og samstarfsráðherra Norð- urlanda í finnsku ríkisstjórninni, í embættið. Þar sem enginn Finni er sem stendur í háu embætti í stjórnsýslu Norrænu ráðherra- nefndarinnar og Norðurlandaráðs yrðu þeir fyrir miklum vonbrigð- um fái Enestam ekki fram- kvæmdastjórastöðuna. Hins vegar er forsætisráð- herrareynsla Halldórs talin vega þungt, auk þess sem Íslendingur hefur aldrei gegnt stöðunni. Tveir Finnar hafa hins vegar gegnt henni áður. Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður Íslandsdeildar Norð- urlandaráðs, sagði á blaða- mannafundi í gær að búast mætti við að málið yrði útkljáð á fundi norrænu ríkisstjórnarleiðtog- anna á mánudaginn. Sjálf hefði hún hins vegar engar upplýsing- ar um að Halldór væri í fram- boði. - aa HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Forsætisráð- herrareynsla „leynilega“ íslenska fram- bjóðandans er talin vega þungt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Finnar vonsviknir vegna framboðs Íslendinga: Saka Íslendinga um leynimakk SAMGÖNGUR Pétur K. Maack hefur verið skipaður af samgöngumála- ráðherra í embætti flugmála- stjóra frá 1. janúar 2007. Pétur hefur starfað sem framkvæmda- stjóri flugöryggissviðs Flugmála- stjórnar Íslands í tæpan áratug. Reynsla Péturs af flugmálum er víðtæk, hann hefur meðal annars unnið að flugrekstri, flugverndar- málum, rekstri flugvalla og að samstarfi í alþjóðaflugmálum. Pétur er rekstrarverkfræðing- ur með meistarapróf í vélaverk- fræði og doktorspróf í rekstrar- verkfræði frá Danmarks Tekniske Højskole. - jóa Flugmálastjórn: Pétur skipaður flugmálastjóri HVALVEIÐAR Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingar- innar, hvetja stjórnvöld til þess að láta af hvalveiðum í atvinnu- skyni þar sem meiri hagsmunum sé fórnað fyrir minni með veiðunum. Í ályktun frá félaginu kemur fram að slíkar veiðar muni að öllum líkindum skaða verulega ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Ungir jafnaðarmenn telja hvalveiðar ekki vera einkamál Íslendinga og vilja að ákvarðanir um þær séu teknar í samráði og sátt við aðrar þjóðir. Ekki sé heldur öruggt enn hvort ýmsir hvalastofnar séu úr útrýmingar- hættu. - sgj Ungir jafnaðarmenn: Hvalveiðar skaða ímynd Íslands 1. Hvað eru mörg ár síðan lög um jöfn laun kynjanna voru sett? 2. Hvaða frambjóðandi eyddi minnstu í prófkjöri Sjáfstæðis- flokksins? 3. Hver samdi dægurlagið Ég er kona? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 LÍBANON Ísraelsher gæti hafa notað úransprengjur í innrásinni í Líb- anon í sumar. Þetta kemur fram í rannsókn breska dagblaðsins The Independent sem birt var í gær. Í greininni kemur fram að nú þegar liggi fyrir að Ísraelar hafi notað fosfórsprengjur í innrás- inni, þótt þeir hafi neitað því áður, en slík vopn eru bönnuð sam- kvæmt Genfarsáttmálanum. Hins vegar hafi vísbendingar komið fram við rannsóknir á tveimur sprengjugígum frá átökunum um að úranbættar sprengjur hafi verið notaðar. Samkvæmt breskum sérfræð- ingum eru tvær mögulegar ástæð- ur fyrir því að úran fannst í jarð- veginum. Annaðhvort hafi verið um litla kjarnorkusprengju á til- raunastigi eða venjulega sprengju þar sem auðgað úran var notað í stað rýrs úrans. Ljósmynd af fyrri sprengjunni sýnir svartan reyk, sem gæti verið orsök brennandi úrans. Í fréttinni kom fram að Ísraels- her hafi slæmt orðspor þegar kemur að því að segja satt um vopnabúr sitt. Árið 1982 hafi her- inn notað fosfórsprengjur og neit- að því, þar til í ljós kom að það kviknaði í sárum þeirra sem látnir voru þegar súrefni komst í tæri við líkin. - sgj Talið er að Ísraelsher hafi notað ólögleg vopn: Gruna notkun úransprengna BEIRÚT Í STRÍÐINU Grunur leikur á um að úransprengjur hafi verið notaðar í innrás- inni í sumar. FRÉTTABLADID/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.