Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 86

Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 86
 29. október 2006 SUNNUDAGUR38 HRÓSIÐ … „Þannig var að viku eftir tökur Mýrinnar fór ég að hitta Mugison. Á meðan keyrir vörubíll inn í hægri hliðina á Rammanum mínum og rústar hana,“ segir Balt- asar Kormákur kvikmyndaleik- stjóri. Fréttablaðinu bárust sögur af afar sérkennilegum uppákomum í lífi Baltasars á tímabili. Óhöppum sem margir þeir sem trúa á aðra heima, myndu án nokkurs vafa skrifa á yfirskilvitleg fyrirbæri. Drauga og forynjur. Eftir að gripið var til tiltekinna aðgerða linnti óhappahrotu sem leikstjórinn virt- ist fastur í. Og síðan hefur allt leik- ið í lyndi í lífi Baltasars. Mýrin nú þegar, eftir aðeins viku, orðin fjórða tekjuhæsta kvikmynd Íslandssögunnar frá því að mæl- ingar hófust. Á eftir Englum alheimsins, Hafinu og Djöflaeyj- unni. 30 þúsund áhorfendur hafa þegar séð Mýrina. En áfram af sérkennilegri og dularfullri frá- sögn Baltasars – sem í fyrstu var tregur til að tjá sig af virðingu fyrir hinum látnu, en lét til leiðast. „Við finnum reyndar út úr því hver var þar á ferð og sá var böst- aður. Ég fór í kjölfarið á réttinga- verkstæði sem Ræsir rekur og læt tjónameta bílinn. Skömmu síðar er ég að leggja við Þjóðleikhúsið. Ein- hverjir menn frá konunglega leik- húsinu vildu hitta mig út af Pétri Gaut. Þegar ég er að keyra í gegn- um rafmagnshliðið aftan við leik- húsið í þrjúhundruðþúsundasta skiptið rek ég bílinn illa utan í og risti upp hægri hlið bílsins. Mjög illa.“ Nú var Baltasar hætt að standa á sama. Hann fer enn upp á rétt- ingaverkstæði og lætur meta tjón- ið. Maðurinn þar spyr hvað sé eig- inlega í gangi. Nú er rétt að taka fram að Baltasar hefur aldrei lent í tjóni með bíl sinn. Í tuttugu ár keyrt án óhappa. Skömmu síðar, meðan Baltasar er að aka með börn sín, er hann skyndilega hundeltur og króaður inni við Snorrabraut af fjölda lög- reglubíla. Lögreglumennirnir urðu kindarlegir þegar í ljós kom hver sat undir stýri, margir nýverið lagt honum lið við tökur Mýrarinn- ar. Þeir sögðu honum að þeir hefðu tekið hann í misgripum fyrir konu sem var á samskonar bíl og hafði keyrt um allt og á hvað sem fyrir var. Þeir töldu að hún væri komin á kreik á nýjan leik. Baltasar fór fyrir tilviljun að taka til í hanskahólfi bíls síns, var að leita að pappírum fyrir rétt- ingaverkstæðið, þegar hann sér plastpoka þar, innst inni út við hægri hlið bílsins – þar sem ágjöf- in hafði verið. „Mér bregður við. Fékk algert sjokk. Í pokanum var bein af manni. Spjaldhryggur. Moldugur. Og svo rifjast upp fyrir mér. Þegar við vorum í Hvalneskirkjugarði þar sem við fengum að grafa gröf vegna eins atriðis í myndinni á stað þar sem ekkert leiði var þá komum við niður á mannabein. Ég bað strákana að passa vel upp á þetta því þarna væri um minjar að ræða. Einhver hafði misskilið mig þannig að ég vildi halda upp á þetta sjálf- ur. Pokað beinið og sett í bílinn.“ Baltasar hafði samband við leikmyndagerðarmann sinn, Atla Geir Grétarsson. Og hann fór með beinið aftur á sinn stað, gróf niður og las yfir bæn. „Og síðan hefur ekkert fyrir mig komið nema gott eitt,” segir Baltasar. Sem hefur það alveg á hreinu að þetta verði ekki útskýrt með því að líta til efnisheima einna. Svo virtist sem hinn látni hafi verið farþegi í bíl Baltasars og viljað fá friðinn. jakob@frettabladid.is BALTASAR KORMÁKUR: MÝRIN ÞEGAR ORÐIN FJÓRÐA TEKJUHÆSTA MYNDIN Draugur ofsækir Baltasar Kormák og neitar að vera farþegi hans OFSÓTTUR LEIKSTJÓRI Poki með beinum var fyrir misskilning settur í bíl Baltasars Kormáks. Leikstjórinn lenti í ýmsum skringilegum uppákomum þar til hann komst að rót vandans.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ...fær Nína Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Sequences- listahátíðarinnar sem lauk í gær, fyrir vel unnið verk og að kynna fjöldann fyrir myndlistinni. Hvað er að frétta? Fyrsti geisladiskurinn minn, með Víkingi Heiðari Ólafssyni píanóleikara, var að koma út. Augnlitur: Grágrænn. Starf: Klassísk söngkona. Fjölskylduhagir: Gift og barnlaus. Hvaðan ertu? Ég fæddist í Reykjavík. Ertu hjátrúarfull? Nei, ekki neitt. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég horfi aldrei á sjónvarp. Uppáhaldsmatur: Það myndi vera sjávarréttapaella mannsins míns. Fallegasti staður: Á tindi Snæfellsjökuls. iPod eða geislaspilari: iPod og 500 geisladiskar ... Hvað er skemmtilegast? Að syngja. Hvað er leiðinlegast? Að bíða, án bókar eða iPods. Helsti veikleiki: Fljótfærni. Helsti kostur: Einbeitni. Helsta afrek: Að krækja í manninn minn. Mestu vonbrigðin: Að fá ekki að leika í Jólaævintýri hjá LA þegar ég var fimm ára. Hver er draumurinn? Að vera hamingjusöm. Hver er fyndnastur/ fyndnust? Það er Kristján Þórður Hrafnsson. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Eigingirni. Hvað er mikilvægast? Góðmennska. HIN HLIÐIN: GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR SÖNGKONA Fékk ekki að leika í Jólaævintýri Blaðaútgáfa Íslendinga heldur áfram að stækka og stækka þrátt fyrir að nokkur af rótgrónustu blöðum landsins hafi gengið í gegnum miklar breytingar. Mikil spenna hefur myndast í kringum nýjasta blað Reynis Traustasonar, Ísafold, þar sem sjálf Unnur Birna tjáir sig í „í sínu síðasta viðtali,“ eins og Reynir orðaði það í viðtali hjá DV. Matgæðingar landsins halda jafnframt niðri í sér andanum en nýjasta matarblaðið, Bístró, er væntanlegt úr prentsmiðju á næstu dögum. Öllu hefur verið til kostað við gerð þess og lá ritstjórnin, með þær Nönnu Rögnvaldardóttur og Friðrikku Geirsdóttir fremstar í flokki, lengi yfir því hvernig pappír ætti að vera notaður. Kunnugir segja að blaðið sé með glæsi- legasta móti og minni frekar á matreiðslu- bók en tímarit. Arnbjörg Hlíf Valsdóttir hefur farið mikinn í hlutverki Ronju Ræningjadóttur á fjölum Borgar- leikhússins og hefur sýningin geng- ið fyrir fullu húsi undanfarin tvö ár. Börnin hafa tekið miklu ástfóstri við Ronju og senda leikkonunni aðdáendabréf í gríð og erg. Skipta bréfin tugum ef ekki hundruðum eftir því hver segir frá. Flest þeirra eru send beint til leikkonunnar sjálfrar en einhver munu þó vera stíl- uð á heimilisfang Ronju í Matthíasar- skógi. - fgg FRÉTTTIR AF FÓLKI 22.07.77 Útvarpsmaðurinn sívinsæli Þröst- ur Gestsson, kenndur við 3000, snýr aftur í útvarp eftir árs hlé, en hann hefur verið ráðinn dagskrár- stjóri KissFM 895. „Þetta er fyrsti dagurinn sem ég er í útsendingu og allt að gerast,“ sagði Þröstur kampakátur þegar Fréttablaðið náði tali af honum á föstudag. „Ég er ofsalega kátur, kominn aftur í gamalkunnugt umhverfi með mjög skemmtilegu fólki,“ sagði Þröstur, sem var áður á FM 957, en hann var dagskrárstjóri þeirr- ar stöðvar í þrjú ár. Eftir að hann hvarf úr útvarpi hefur Þröstur verið skemmtanastjóri á Café Victor og Sólon og mun hann sinna þeim skyldum sínum samhliða nýja starfinu. KissFM hefur aug- lýst breyttar áherslur í dagskrá, og Þröstur segist ætla að nostra við útvarpsstöðina. „Ég mun laga það sem upp á vantaði og breyta aðeins til,“ sagði hann. „Dag- skránni hefur nú þegar verið breytt nokkuð, og dagskrárgerð er lengur í loftinu. Hér er fullt af góðri tónlist og góðu fólki,“ sagði hann. „Og svo er náttúrlega fram- kvæmdastjórinn fallegi, Kristján Jónsson,“ bætti hann við, en sá er einnig þekktari undir viðurnefni sínu, Kiddi Bigfoot. „Ég hef skrifað nafnið mitt undir það að Reykjavík hafi aldrei hljómað betur,“ sagði Þröstur um framtíð KissFM. „Hér eiga eftir að heyrast nöfn sem fólk mun reka upp stór augu yfir, fólk á alveg eftir að finna fyrir mér á næst- unni,“ sagði Þröstur áður en hann sneri sér aftur að hljóðnemanum. - sun Þröstur 3000 fer aftur í loftið AFTUR Í LOFTIÐ EFTIR ÁRS HLÉ Þröstur 3000 við hljóðnemann á fyrsta degi í útsend- ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI F í t o n / S Í A VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 40 ár . 2 Pétur H. Blöndal . 3 Egill Ólafsson . Veistu svarið 1. 40 ár 2. Pétur H. Blöndal 3. Egill Ólafsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.