Fréttablaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 46
Völuskrín óskar eftir
að ráða starfsfólk
til framtíðarstarfa í verslun sinni. Vinnutími er
frá 11-18 virka daga og einstaka laugardaga skv.
samkomulagi frá kl. 12-16. Einnig kemur til greina
að ráða tvo starfsmenn sem skipta deginum á milli
sín og starfa frá 11-16 tvo daga vikunnar og 14-18
þrjá daga vikunnar. Þá óskum við eftir bókara í
hlutastarf ca. 1 dag í viku og sölumann í hlutastarf
í heildverslun okkar. Við leitum eftir sjálfstæðum,
drífandi, traustum og ábyrgum einstaklingum sem
hafa gaman af náttúrulegum leikföngum og spilum.
Umsóknir óskast sendar á box@frett.is merkt
“Völuskrín”
eða til Fréttablaðsins.
TRÉSMIÐIR ÓSKAST
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á
íslenskum verktakamarkaði. Hjá
fyrirtækinu starfa um 650 manns,
víðsvegar um landið sem og
erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki
sem var stofnað árið 1970 og
hefur annast ýmis verkefni, svo
sem virkjanir, stóriðjuver, hafnar-
gerð, vega- og brúagerð auk flug-
valla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitar-
félög, fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
Trésmiðir
Vegna aukinna verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða trésmiði til starfa.
Um er að ræða framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja starfsreynslu.
Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.
Næg vinna í boði.