Fréttablaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 76
Hvergi annars
staðar en á
Íslandi er gaml-
árskvöld haldið
með sama sniði
og við höldum
það. Nema
kannski í ein-
hverjum sat-
anískum
smábæjum
í Hollandi. Ég
efast meira að segja
um að einhvers staðar annars stað-
ar í heiminum sé fólki leyft að fara
jafn frjálsega með flugelda. Ekki
halda þessir menn virkilega að fólk
sé edrú á meðan það tendrar blysin,
ó nei. Ég efast svo um að einhvers
staðar annars staðar í heiminum
tíðkist áramótaskaup. En það er
kannski það sem einkennir okkur
sem þjóð, það og svið. Sé gamlárs-
kvöldi lýst í smáatriðum gæti það
eflaust orðið góður efniviður í 60
minutes þátt. Því það verða flestir
alveg mígandi fullir á gamlárs.
Meira að segja þeir sem voru þurr-
ir um verslunarmannahelgina, geta
ekki sleppt því að skvetta í sig í lok
ársins. Það er vegna þess að gaml-
árskvöld á að vera rúsínan í pylsu-
enda ársins. Ímyndið ykkur ástand-
ið rétt eftir miðnætti. Steikin, búin.
Skaupið búið, og ef það var ekki
fyndið er allt brjálað. Fólk kjagar
um svo sauðdrukkið að það er á
milli svefns og vöku. Sprengingar
alls staðar. Fullir menn með rakett-
ur. Logandi bál um allar höfuðborg.
Hljómar meira eins og Beirút, held-
ur en partí. En fólk má bara ekki
búast við of miklu. Gamlárskvöld
þarf ekkert að vera jafn rosalegt og
allir vona og vilja. Þeir sem hafa
þegar fattað þetta, sleppa því alveg
að fá sér brennsa á gamlárs og
hrynja í það á nýárskvöld í staðinn.
En það þarf heldur ekki, hafið
engar áhyggjur, það kemur versl-
unarmannahelgi, þorrablót eða ein-
hver svakaleg veisla á nýju ári. Ég
er samt pollrólegur og fæ mér
sterkt á gamlárskvöld. Leyndar-
málið er að byrja bara eftir mið-
nætti og forða sér frá flugeldun-
um.