Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.02.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 23.02.2007, Qupperneq 38
BLS. 8 | sirkus | 23. FEBRÚAR 2007 Árið 2007 ætlar að verða gott ár fyrir rokkarann Eirík Hauksson. Hann verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Helsinki í maí eins og flestum er kunnugt og í apríl mun hann byrja að búa á nýjan leik með konunni sem hann byrjaði með í kjallaratröppum leikfimisalarins við Vogaskóla fyrir rétt tæpum 32 árum. Sirkus settist niður með Eiríki og konu hans Helgu Guðrúnu og ræddi um ástina sem aldrei slokknaði. „Ég held að hún Helga sé humarinn minn,” segir Eurovision-farinn Eiríkur Hauksson um konu sína Helgu Guðrúnu Steingrímsdóttir en þau hafa fundið ástina á nýjan leik eftir skilnað og önnur sambönd þar sem þau komust að því að grasið er ekki alltaf grænna hinu megin við lækinn. Þessa speki hefur Eiríkur eftir Phoebe í þáttunum Friends. „Hún var með þessa setningu: „Þú ert humarinn minn“ og skýrði það út þannig að humarinn velur sér maka til lífstíðar. Þegar sá maki fellur frá þá lifir humarinn, hvort sem hann er karl- eða kvenkyns, einn til æviloka. Nákvæmlega þannig líður mér,“ segir Eiríkur. Einn koss var nóg Eiríkur og Helga Guðrún kynntust sem unglingar í Vogahverfinu og hafa verið nánast óaðskiljanleg undanfar- in 32 ár. „Við kynntumst í gegnum sameiginlega vini í partíum og ef ég man rétt þá var það 10. mars í kjallaratröppunum við leikfimissal- inn í Vogaskóla sem ég stundi upp „bónorðinu“ og spurði hvort við ættum ekki bara að vera á föstu,“ segir Eiríkur og Helga hlær. „Ég held að hún hafi stunið upp já og ég hafi sagt: „Sjáumst á morgun“ og farið,“ segir Eiríkur og Helga bætir við hlæjandi að þetta hafi verið á mánudagskvöldi. Aðspurð um allra fyrstu kynni segir Helga þau hafa verið í Tónabæ síðla árs 1974. „Ég var á dansgólfinu ásamt vinkonum mínum og þá kemur Eiríkur labbandi yfir dansgólfið úr hinum enda salarins, kyssir mig beint á munninn og labbar síðan burtu. Þar með var ég fallin fyrir honum. Hann var alveg rosalega sjarmer- andi,“ segir Helga. Eins og stráka er siður var það útlitið og brjóstin hennar Helgu sem heilluðu Eirík fyrst. „Það var með mig eins og allra aðra stráka. Mér fannst hún sæt og svo var hún með fagran barm. Þegar ég fór að kynnast henni þá var hún glaðlynd týpa og við áttum mjög vel saman. Við höfum aldrei rifist eins og hundur og köttur en til þess að vera ekki bara að gorta af því, þá hefur þögnin stundum verið okkar óvinur,“ segir Eiríkur. Rólegheit í Noregi Helga og Eiríkur eiga tvær stelpur, Hildi, sem er 26 ára, og Eyrúnu Helgu sem er 19 ára. Þau giftust árið 1981 og eftir viðburðarík ár þar sem Eiríkur sló í gegn sem poppsöngvari með lögum eins og Gaggó vest og Gull fluttu þau til Noregs árið 1988. „Það var skrítið tímabil og við hættum að fara út saman. Eiríkur var alls staðar stoppaður og fékk hvergi að vera í friði. Á vissan hátt var gaman að því en það var yndislegt að flytja út í rólegheitin til Noregs,“ segir Helga. Eríkur og Helga fluttu til Gressvik, sem er lítill bær rétt utan við Fredrikstad, og hafa búið þar síðan. „Þetta er rólegur og vinalegur bær þar sem okkur hefur liðið vel. Annars hefðum við varla ílengst þar,“ segir Helga og hlær. Hún hefur starfað sem kennari í bænum en Eiríkur hefur sinnt tónlistinni og unnið á meðferðar- heimili fyrir börn. Gleymdu að rækta hjónabandið En Noregsdvölin hefur ekki bara verið dans á rósum því Eríkur og Helga skildu árið 2001. Eftir 25 ára samband virtist vera komið að leiðarlokum hjá parinu sem allir töldu vera hið fullkomna par. „Þetta var mikið áfall fyrir vini okkar og fjölskyldur. Við komumst að því að margir höfðu haft okkur til fyrirmyndar í sínum samböndum, enda vorum við góð saman. Á þessum tímapunkti vorum við hins vegar komin í vandræði sem við gátum ekki leyst úr,“ segir Helga og Eiríkur bætir við að skilnaðarferlið hafi tekið langan tíma. „Þetta var ekki nein skyndiákvörð- un. Við unnum í þessu allan seinni hluta ársins 2000 og síðan áfram þar til 1. mars 2001 þegar ég flutti út. Það sem gerðist var fyrst og fremst þetta klassíska. Við misstum sjónar á því ÁSTFANGIN Það má glöggt sjá að Helga Guðrún og Eiríkur eru ástfangin upp fyrir haus. SIRKUSMYND/ANTON BRINK EIRÍKUR HAUKSSON OG HELGA GUÐRÚN STEIN- GRÍMSDÓTTIR BYRJUÐU SAMAN FYRIR 32 ÁRUM „ÁSTIN HEFUR ALDREI SLOKKNAГ GÓÐ JÓLAGJÖF Dæturnar Hildur og Eygló Helga gáfu foreldrum sínum myndatöku í jólagjöf árið 2005. Hér sést fjölskyldan bregða á leik í þeirri myndatöku. MYND ÚR EINKASAFNI „ÁSTIN HEFUR ALDREI SLOKKNAÐ SÍÐAN VIÐ KYNNTUMST FYRST. HÚN LAGÐIST Í DVALA UM HRÍÐ EN SLOKKNAÐI ALDREI. OG GERIR ÞAÐ EKKI ÚR ÞESSU.“ Eiríkur um Helgu „Hún er frábær mamma og ég veit að dætur okkar taka undir það. Hún er þolinmóð. Hún hefur sitt skap og ég hef stundum kallað hana Steingrím litla en pabbi hennar heitir Steingrímur og er mjög ákveðinn maður. Hann getur verið fastur fyrir. Hún er þó fyrst og fremst ljúf og glaðlynd. Hún laðar að sér fólk frá fyrstu kynnum. Síðan er hún mjög falleg, sem er kostur. Ég er nú bara einu sinni strákur. Hún er góður vinur og afskaplega skemmtilegur elskhugi. Það sem er mikilvægast fyrir mig er að hún þekkir mig út og inn, sem gerir það að verkum að ég get ekki verið með neina stæla. Ég verð bara að vera eins og ég er því það sést í gegnum mig í þessu sambandi.“ FRAMHALD Á SÍÐU 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.