Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.02.2007, Qupperneq 65

Fréttablaðið - 23.02.2007, Qupperneq 65
Um áramótin birtist grein eftir mig í Fréttablaðinu þar sem ég færði sterk rök fyrir því að það væri rangt sem ítrekað væri hald- ið fram að hægt væri að kenna veiði umfram ráðgjöf um algjört árangursleysi núverandi kvóta- kerfis við að byggja upp þorsk- stofninn. Rökin voru þau að niðurstöður úr þorskmerkingum Hafrann- sóknastofnunar sem gerðar voru fyrir meira en áratug – en úrvinnslu gagna lauk nú í desem- ber – gefa mjög skýrt til kynna að mun minna hafi verið veitt en 25% af veiðistofni árlega. Ef veiðin hefði verið svo mikil, þ.e. fjórðungur af stofninum, mætti ætla að sama hlutfall af merkjun- um hefði skilað sér inn innan árs, og alls eftir nokkurra ára veiði hefðu um 60% af merkjum átt að skila sér. Niðurstöðurnar úr merkingar- tilrauninni voru allt aðrar en búast mátti við þar sem heildar- skil fiskmerkja á fimm ára tíma- bili voru einungis 14% í stað 60% sem bendir til þess að um 80% af merktum fiski drepist af öðrum orsökum en fiskveiðum. Þessi munur er mjög sláandi og það væri rétt að fram færi rækileg rannsókn á því hvers vegna þessi merkingartilraun gefur allt aðrar niðurstöður en reiknilíkön Hafró gera ráð fyrir. Það sem er einkar merkilegt við þessar niðurstöður er að þær koma heim og saman við gagnrýni frá Jóni Kristjánssyni fiskifræð- ingi og Kristni Péturssyni, fisk- verkanda frá Bakkafirði, á líf- fræðilegar forsendur kvótakerfisins til uppbyggingar þorskstofnsins. Einar Hjörleifsson fiskifræð- ingur á Hafró svaraði því til í grein sem birt var í Fréttablaðinu þann 30. janúar sl. að rökrétt nið- urstaða mín um að miklum mun minna hefði verið veitt en ráðlagt var væri markleysa. Í greininni segir Einar Hjör- leifsson að lausleg greining hans á merkingargögnum Hafró frá síðustu árum gefi það til kynna. Mín skoðun er sú að það geti varla verið sæmandi að greina þessi gögn með lauslegum hætti, sér í lagi gögn sem gefa augljós- lega til kynna að pottur sé brotinn í stofnlíkönum Hafró. Kjarninn í grein Einars er sá að það sé svo mikið merkjatap og vanskil á merkjum að ályktanir mínar séu marklausar. Hann segir að þessir þættir séu áhugaverðir en órannsakaðir. Hvers vegna eru þeir órannsakaðir? Eftir því sem ég kemst næst hefur lítið verið um birtingu nið- urstaðna úr merkingartilraunum þótt Hafró hreyki sér sífellt af umfangsmiklum merkingum. Þess má geta að skýrsla um merk- ingarnar frá 1994 og 1995 birtist ekki fyrr en rúmum 11 árum eftir að merking- um lauk, þá vegna eftir- reksturs míns á Alþingi við sjávarút- vegsráð- herra. Ég lét ósagt í fyrri grein minni um þorsk- merkingar að ég væri nokkuð hissa á ýmsum ágöllum við úrvinnslu umræddr- ar merkingartilraunar Hafró. Í fyrsta lagi eru endurheimtur ekki skoðaðar sem fall af tíma sbr. merkingar Jóns Jónssonar 1948- 1969 þar sem hann fann að heild- arafföll af hrygningarþorski væru um 80% á ári. Þetta sá Jón með því að skoða endurheimtur sem fall af tíma (árafjölda) frá merk- ingu að endurheimtu. Jón kallaði þetta sýndarafföll, innifelur merkjatap. Aðferðin er hins vegar óháð dauða vegna merkingar svo og merkjaskilum sjómanna, sem er mjög mikilvægt. Ekki þarf að nota endurheimtuhlutfall fyrsta hálfa árið, aðferðin byggist á því að mæla hvernig merkin hverfa úr stofninum. Að sjálfsögðu er merkjatap með í því, merki sem losna af fiskinum af einhverjum ástæðum. Þó Jón Jónsson hefði mælt afföllin um 80% á ári voru heildarheimtur merkja ekki nema um 15%. Lágt hlutfall miðað við að í þá daga voru hefðbundnar vertíðarveiðar enn í gangi og sótt var í hrygningarfiskinn af fullum þunga. Það sem er sláandi við þessar niðurstöður Jóns Jónsson- ar sem fram fóru að mestu á sjö- unda áratugnum er að endur- heimtur merkjanna eru sambærilegar við það sem fram fór 25 árum síðar. Í framhaldinu er rétt að spyrja hvort Hafró trúi ekki eigin athugunum. Í öðru lagi eru grunngögn ekki birt svo að erfitt er fyrir aðra að rýna í þau eða mynda sér sjálf- stæða skoðun. Það ætti að vera krafa útgerðar- og sjómanna að þessi gögn séu birt með skýrum hætti en niðurstöður sem hafa nú þegar verið birtar gefa ótvírætt til kynna að miklum mun minna hafi verið veitt en ráðlegt var. Kvótakerfið sem byggir á ráð- gjöf Hafró hefur ekki skilað þeirri uppbyggingu þorskstofnsins sem vænst var en þorskafli nú er helm- ingi minni en fyrir daga kerfis- ins. Það er mjög mikilvægt að veita öðrum en þeim sem hafa ráðið ferðinni undanfarin ár greiðan aðgang að gögnum um fiskmerk- ingar. Þessi gögn geta svipt hulunni af reiknilíkönum Hafró, líkönum sem stangast á við viðtekna vist- fræði. Höfundur er alþingismaður. Trúir Hafró ekki eigin niðurstöðum?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.