Tíminn - 24.10.1980, Page 6

Tíminn - 24.10.1980, Page 6
6 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurósson. Ristjórnarfuli- trúi: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri Kristinn Haligrimsson. Aug- iýsingastjóri: Steingrlmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Slóumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsímar blaóamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20: 86387. Veró I lausasölu kr. 280. Áskriftargjald kr. 5500 á mánuöi. Prentun: Blaöaprent. Lagður grunnur Það tók á sinum tima rikisstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins undir forsæti Geirs Hallgrimssonar þrjú ár að ná verulegum og marktækum árangri i baráttunni við verðbólguna. Ástæðan til þess að svo langan tima tók að ná verð- bólgunni niður i u.þ.b. 26% á ári var sú, að rikis- stjórnin vildi ekki stofna atvinnu- eða byggðaöryggi landsmanna i hættu. Hið sama á við um núverandi rikisstjórn. Hún setti sér i upphafi það mark að ná verðbólgunni á þremur árum niður i svipað stig og tiðkast i ná- grannalöndum. Og ástæðan er aftur hin sama: Það er andstætt stefnu rikisstjórnarinnar að vega að at- vinnuörygginu eða stefna i stórfellda byggðaröskun með harkalegum samdráttaraðgerðum. Án þess að rýrð sé varpað á samstarfsflokka er óhætt að minna á það að i báðum þessum rikisstjórn- um hefur það verið skilyrði Framsóknarmanna að þannig yrði staðið að málum að þessi grundvallar- atriði væru virt. Og i þessum anda var hin svo kallaða niðurtalningarstefna Framsóknarflokksins sett fram, andstætt leiftursókn meirihluta forystu- liðs Sjálfstæðisflokksins. Með þetta i huga hafa stuðningsmenn rikis- stjórnar dr. Gunnars Thoroddsen að sjálfsögðu ekki miklar áhyggjur af þvi að stjórnarandstæðingar eru farnir að reyna að gera veður út af þvi að verð- bólgan er ekki horfin eins og dögg fyrir sólu á þessu hausti. Upphrópanir stjórnarandstöðunnar um þetta efni eru marklausar. í rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar tókst hins veg- ar ekki að ná jafnvægi á rikisfjármálin, enda var árangur stjórnarstarfsins brotinn niður með harð- vitugustu pólitiskum stéttaátökum sem efnt hefur verið til á siðari áratugum hér á landi. í núverandi rikisstjórn hefur það hins vegar verið mikilvægt stefnuatriði að leggja þegar i upphafi áherslu á jafnvægi i rikisfjármálunum, og jafnvel Alþýðubandalagið hefur fallist á þetta mikilvæga sjónarmið og Ragnar Arnalds fjármálaráðherra starfar samkvæmt þvi. Jafnvægi i rikisfjármálunum er ákaflega mikil- vægt ef árangur i efnahagsmálunum á að verða varanlegur. Reynslan hefur sýnt okkur að það er létt verk að drepa öllu á dreif ef vandanum hefur verið velt yfir á skuldareikninga rikissjóðs. Ekki alls fyrir löngu var gert nýtt samkomulag i bankakerfinu um miklu harðari aðgerðir en áður i þvi skyni að koma á jafnvægi innlána og útlána. Þetta jafnvægi er ekki siður mikilvægt til þess að árangur náist, en sem kunnugt er hefur það löngum reynst afar örðugt að ná fullkomnum tökum á þró- un lánamálanna i þjóðfélaginu. Á þvi sviði er hæg- ara um að tala en i að komast, einkum þegar haft er i huga hversu allar aðhaldsaðgerðir hljóta, beint og óbeint, að bitna á atvinnulifinu sem var hart leikið fyrir af verðbólgu, sölutregðu og öðrum erfiðleik- um. Á þessu sviði er varla ofmælt að það er vand- ratað einstigi fram undan. Með þessum aðgerðum á sviði fjármála og lána- mála er ekki sist lagður traustur grunnur að þeirri gjaldmiðilsbreytingu sem verður um áramótin og menn vænta sér mikils af. JS \ Föstudagur 24. október 1980. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Forsetaefnin eru ósam- máia um utanrflösniál Þess mun gæta I sjónvarpseinvigi þeirra Carter á kjösendafundiaö svara fyrirspurnum. ÞAÐ hefur nú veriö ákveöið, að þeir Carter og Reagan heyi sjónvarpseinvlgi næst- komandi þriðjudag. Margir fréttaskýrendur telja, að þaö kunni að ráða úrslitum i forsetakosningunum. Þaö hefur jafnan veriö ósk Carters aö þreyta kappræðu við Reagan einan, en Reagan hefur verið ófús til þess. Hann féllst hins vegar strax á sjónvarpsumræöu þremenn- inganna,þ.e. hans, Carters og Andersons. Henni hafnaði Carter. Eftir það var ákveöiö af Reagan og ráðunautum hans að hafna einvigi við Carter einan. Fylgismenn Carters hafa notað þetta til áróöurs gegn Reaganog borið honum kjark- leysi á brýn. Þessi áróöur virðisthafa fengið hljómgrunn og þvf þótt rétt af Reagan og ráðunautum hans að láta undan og falla frá fyrri af- stöðu sinni. Það á vitanlega þátt I þessu, að Carter hefur verið að vinna á undanfarið og bilið milli hans og Reagans að minnka. Ráöunautar Reagans hafa því talið nauðsynlegt að sýna, að Reagan væri hvergi smeykur. Fyrir Carter er það viss ávinningur að hafa knúiö Reagan á þennan hátt til undanhalds. Endanlega verður þetta þó ekki til ávinn- ings fyrir hann, nema hann beri hærri hlut i gh'munni við Reagan. Yfirleitt er þvi spáð, að Reagan muni koma betur fyrir i sjónvarpseinvíginu en Carter, en Carter muni reynast honum ofjarl í mál- flutningi og það geti ráðið úrslitum. Carter er vegna forseta- starfs sins betur inn I málum en Reagan, hefur gott minni og skýra framsetningu. Reagan þykir hins vegar ekki sterkur á svellinu, hvað þetta snertir. ÞAÐ MÁtelja öruggt, að utan- rikismál muni ekki bera siður á góma en innanrikismál i einvlgi þeirra Carters og Reagans. Sá málflutningur Carters hefur fundið hljómgrunn, að vigbúnaðarfyrirætlanir Reagans muni auka strlðs- hættuna. Ýmsir telja, aö Carter hafi stundum skotið yfir markið I þessum áróðri, en skoðanakannanir benda eigiaðsiður til, aö Carter hafi tekizt að gera Reagan tortryggilegan i augum margra,ekki sizt kvenna. Carter hefur mjög beitt þeirri aðferð aö tilfæra ýmis fyrri ummæli Reagans máli sinu til stuðníngs. Vörn Reagans hefur verið sú, að þessi ummæli hafi getaö stað- iztá sinum ti'ma, þótt þau geri það ekki nú. Trúlegt er að þetta efni veröi verulegur þáttur i kappræðu þeirra og Carter reyni aö koma Reagan i vörn og þvinga hann til að segja einhver ógætileg orð, er dragi úr trúnni á hann. Þótt Reagan hafi reynt að draga úr ýmsum fyrri um- mælum sinum, hefur komið fram talsverður munur á afstöðu hans og Carters til ýmissa utanrikismála. Mestur hefur hann verið i sambandi viö afstöðuna til Kina. Carter telur þaö stjórn sinni til framdráttar, að hafa tekið upp stjórnmálasamband við Kina og aukið stórum sam- vinnu við Kinverja. Reagan hefur hins vegar haldið þvi fram, að Bandarikin hafi brugðizt Taiwan meö þvi að slita stjórnmálasambandi við stjórnina þar og hafa aðeins óformlegt samband við hana. Hann hefur gefið til kynna að hann muni breyta þessu. Kinverjar hafa tekið þetta óstinnt upp. ÞÖTT báðir séu þeir Carter og Reagan harðir i afstöðunni til Sovétrikjanna, er nokkur stigsmunur hjá þeim. Gleggst kemur hanri I ljós i sambandi við Salt-2 samninginn. Þegar Rússar réðust inn i Afganistan óskaði Carter eftir þvi að öldungadeildin frestaöi afgreiðslu samningsins og mátti á Carter skilja, að sá frestur ætti að gilda meðan Rússarhefðu her I Afganistan. Nú hefur hann breytt þessari afstööu og sagzt myndu beita sér fyrir þvi, aö samningurinn verði samþykktur á næsta þingi. Jafnframt hafa Banda- rikin nýlega hafið viðræður við Sovétrikin um takmörkun meöaldrægra eldflauga, en Salt-2 nær ekki til þeirra. Reagan hefur hins vegar sagt, að hann muni leggja Salt-2 alveg til hliðar, en hefja viðræður við Rússa á alveg nýjum grundvelli, þar sem gerðar verði strangari kröfur af hálfu Bandarikjanna. Margir virðast óttast, að þetta geti siglt viöræðunum um afvopnunarmál endanlega I strand, því að jafnframt hef- ur Reagan boðaö, að Banda- rikin verði að ná algerum yfir- buröum á hernaðarsviðinu. Hins vegar vill Reagan gefa kornsölu til Sovétrikjanna frjálsa, en Carter stöövaði hana aö mestu, þegar Rússar gerðu innrásina i Afganistan. Bændur hafa unað þessu illa og virðist það ekki bæta úr skák, þótt Carter hafi náð samningum um aukna korn- sölu til Kina. Bændur óttast, að þeir geti misst rússneska markaðinn til langframa. Nokkur munur er h'ka á afstöðu þeirra Carters og Reagans til þróunarlandanna, Reagan leggur minni áherzlu á aö Bandarikin hafi afskipti af mannréttindamálum: Það verði ,,að taka heiminneins og hann er.” Þetta gildi m.a. um latnesku Ameriku. Ekki eigi að stuðla aö þvi að koma vinstri stjórnum þar til valda. Afstaða Reagans er heldur ekki eins hörð gagnvart Suður- Afriku, þótt hann telji að stuöla eigi aðauknum réttind- um svertingja, en það eigi að gera með varfærni. Þá vill Reagan taka upp harðaristefnu gagnvart Kúbu. Afstaöa Reagans og Carters er nokkuð svipuð til Nato, en Reagan leggur þó öllu meiri áherzlu á forustu Bandarikj- anna innan þess. Reagan fagnar iófaklappi að lokinni kosningaræöu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.