Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 16
T
he Sopranos var fyrst
sýndur í bandarísku
sjónvarpi í janúar árið
1999 á HBO-kapal-
sjónvarpsstöðinni.
Áhorfendum var þá
snarlega kippt inn í heim ítalsk-
ættaðs mafíósa, Tony Soprano, sem
var þá á barmi taugaáfalls og riðaði
til falls sökum ofsakvíðakasts.
Tony leitar til sálfræðingsins dr.
Jennifer Melfi og upp frá því má
eiginlega segja að hin margslungna
og flókna saga Sopranos-fjölskyld-
unnar hefjist. Of langt mál væri að
útskýra allar þær hliðargötur og
skuggasund sem Tony og félagar
hans í New Jersey hafa stútað
manni og öðrum í enda er The
Sopranos fyrst og fremst þroska-
saga manns sem leitar að tilgangi
lífsins í miðri hringiðu skipulagðra
glæpa.
„Í Bandaríkjunum ríkir hálfgert
æði yfir endalokum The Sopranos.
Allir vilja vita hvernig sagan endar,
hver deyr og hver lifir af,“ sagði
Michael Imperioli, sem leikur
Christopher Moltisani í þáttunum í
viðtali við Fréttablaðið þegar hann
var staddur hér á landi vegna
kvikmyndarinnar Stóra planið. Þá
lýsti Imperioli því yfir að hann
myndi sakna þáttanna en væri
vissulega feginn að þeim væri
lokið. „Við erum ekkert að teygja
lopann eins og svo mörgum hættir
til.“
Hinn 10. júní rann stóra stundin
upp þegar síðasti þátturinn fór í
loftið og talið er að tæplega tólf
milljónir manna hafi horft á
endalokin um mafíufjölskylduna.
Lokaþátturinn fékk misjafnar
viðtökur. Sumir gagnrýnendur
sögðu að höfundar þáttanna hefðu
svikið áhorfendur en öðrum fannst
lokaþátturinn hafa verið í anda The
Sopranos. Eitt er þó víst, að margir
áhorfendur áttu erfitt með að
kveðja fjölskylduna.
Til að kóróna allt saman voru
þættirnir útnefndir þeir bestu í
bandarísku sjónvarpi árið 2007 á
Emmy-verðlaununum og þar með
var sagan öll. Íslenskir aðdáendur
þáttanna geta vart beðið eftir
lokakaflanum en hafa endur-
sýningar á þriðjudagskvöldum á
RÚV til að stytta sér stundir
þangað til.
The Sopranos er fyrst og fremst
hugarfóstur handritshöfundarins
og skaparans David Chase. Hann
hefur vafalítið ekki grunað að áhrif
þáttanna yrðu svona gríðarleg en
þeir eru taldir hafa breytt
bandarísku sjónvarpi. Forsvars-
menn annarra sjónvarpsstöðva
voru agndofa yfir því hugrekki
sem handritshöfundar þáttanna
sýndu þegar þeir gáfu frat í
pólitíska rétthugsun. Þeir létu
sögupersónur ekki fara leynt með
fordóma í garð minnihlutahópa,
sýndu blóðugt ofbeldi og breyska
aðalpersónu.
Hugmyndunum sem fyrir lágu
hjá stærstu sjónvarpsstöðvunum
var umsvifalaust ýtt út af borðinu
og hafist var handa við að
reyna að skapa eitthvað í
líkingu við The
Sopranos. Pollyönnu-
tímabilið hafði runnið
sitt skeið í Ameríku og
þættir á borð við 24 og
The Shield litu dagsins
ljós. Hvorki Jack
Bauer né Vic Mackey
væru til ef ekki hefði
verið fyrir Tony
Soprano.
Chase hefur aldrei
farið leynt með að upp-
spretta The Sopranos
sé meistaraverkið Goodfellas eftir
Martin Scorsese. „Sú mynd er ein-
hvers konar Kóran fyrir mér,“ lét
Chase einhvern tímann hafa eftir
sér en fjöldi leikara hefur komið við
sögu í báðum þessum verkum.
Þeirra frægust eru sennilega Lorra-
ine Bracco sem leikur sálfræðing-
inn Jennifer Malfi í Sopranos en
eiginkonuna Karen Hill í Goodfell-
as og svo áðurnefndur Imperioli
sem er Moltisanti í sjónvarpsþátt-
unum en hinn ólánsami Spider í
Goodfellas.
En það er ekki bara mafíumynd
Scorsese sem hefur orðið Chase
innblástur því Guðfaðir Coppola
kemur einnig töluvert við sögu.
Mikið af tilvísunum í kvikmyndina
er í þáttunum og þegar sonur Tony
þjáist af einhvers konar sál-
arkreppu er ástæðan sú að eft-
irlætisatriði Tonys er föðurhefnd
Michael Corleone í Guðföðurnum.
Mafíuforingjar eiga á einhvern
undarlegan hátt upp á pallborðið
hjá áhorfendum. Þótt hendur
þeirra séu oftast blóði drifnar og
miskunnarleysi einkenni vald
þeirra virðast
áhorfendur
geta samsam-
að sig þeim
eða dreymir
jafnvel um
þennan heim.
Eflaust spilar
inn í
hversu svalir og miklir töffarar
þeir eru en vinsældir Tonys Sopr-
anos má án nokkurs vafa skýra út
frá því hve mannlegur hann er.
Tony þarf að glíma við drauga úr
fortíðinni, vafasamt uppeldi og
ofbeldisfulla samstarfsfélaga. Síð-
ast en ekki síst þarf hann að kljást
við sjálfan sig og galla sína. Hann
er vondur maður með gott hjarta
sem reynir að finna út úr því hvað
það er sem stýrir tilvist hans.
„Þættirnir innihalda öll helstu
þemu bókmenntasögunnar: feður
sem berjast við syni, kónga í veldi
sínu, svik, hollustu, ást, sektar-
kennd og hefnd,“ segir blaðamað-
urinn Ben Macintyre í samtali við
fréttavef BBC en hann skrifar
fyrir The Times í Bretlandi.
Undir þetta tekur hinn virti
útvarpsmaður Jack Seale. „Mér
finnst í raun erfitt að ímynda mér
að það sé hægt að búa til betri
þætti,“ segir Seale og líkir þeim
við bestu verk Shakespeare. „Þætt-
irnir fást við karlmenn og veik-
leika þeirra. Það að Tony skuli vera
mafíósi styrkir það þema enn frek-
ar,“ segir Seale.
The Sopranos hefur notið gríð-
arlegra vinsælda og þannig horfðu
tæplega fjórtán milljónir á fyrsta
þátt fjórðu seríu. Fyrir upptökur á
annarri seríu mættu yfir þrettán
þúsund manns í áheyrnarprufur
þrátt fyrir að framleiðendur hefðu
lýst því yfir að fæstir ættu þess
kost að sjást í sjónvarpi. Eftir
fjörutíu mínútur var áheyrnarpruf-
unum hins vegar lokið og flestir
beðnir um að senda umsóknir sínar
með pósti.
The Sopranos hefur hins vegar
alls ekki verið allra. Samtök sál-
fræðinga kvörtuðu mikið yfir dr.
Jennifer Melfi og töldu hana brjóta
í bága við allar siðareglur sálfræð-
inga í Bandaríkjunum. Hún kæmi
slæmu orði á stéttina þar vestra.
„Henni yrði vísað úr samtökunum
eftir fimm mínútna fund. Hún er
drykkfelld, hlutdræg og er sífellt
að trufla skjólstæðing sinn,“ sagði
Phil Hodsons, sérfræðiráðgjafi í
sjónvarpi á vegum sálfræðinga.
En líkast til voru það mótmæli
samtaka ítalskættaðra Bandaríkj-
amanna í Chigaco, AIDA, sem fóru
hvað hæst. Málið rataði alla leið til
dómstóla þar sem því var vísað frá
á grundvelli skáldaleyfis sjón-
varpsþáttanna. Samtökin töldu
hins vegar að The Sopranos kæmi
óorði á samfélag Ítala í Bandaríkj-
unum og kynti undir þá skoðun að
þeir væru óumburðarlyndir rasist-
ar sem væru nánast allir í tengsl-
um við mafíuna á einn eða annan
hátt.
Í eitt skipti fettu Íslendingar
meira að segja fingur út í Sopran-
os en í frægum þætti í septemb-
ermánuði árið 2002 birtust
flugfreyjur Icelandair og höfðu
ofan af fyrir Tony og félögum. Ice-
landair sá þann kost nauðugan að
senda frá sér yfirlýsingu í Band-
aríkjunum þar sem kom fram að
fyrirtækið harmaði hvernig
starfsmenn fyrirtækisins voru
sýndir. „Við vissum ekki af þessu
atriði í þáttunum og gáfum enga
heimild vegna málsins. Þetta kom
okkur á óvart,“ sagði Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, á þeim tíma í samtali
við mbl.is.
Þrátt fyrir að The Sopranos hafi
eignast valdamikla óvini er það nú
einu sinni svo að það sem er hatað
er jafn elskað um leið.
Hinsta kveðja The Sopranos
Sjónvarpsþáttaröðin The Sopranos hefur runnið sitt skeið, mörgum til mikillar skelfingar. Af því tilefni pantaði Freyr Gígja
Gunnarsson sér borð á Badabing og blaðaði í spjaldskrám þessarar sögulegu sjónvarpsþáttaraðar sem hefur breytt bandarísku
sjónvarpsefni.