Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 40
Landhelgisgæsla Íslands
leitar eftir áhugasömum og öflugum starfsmanni
Starfssvið:
Vinna við skráningu reikninga
Símavarsla og móttaka
Ýmis önnur verkefni samkvæmt ákvörðun
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skipulagshæfi leikar og þjónustulund er
skilyrði
Stúdentspróf og/eða reynsla af vinnu við
bókhald er æskileg
Kunnátta á Oracle bókhaldskerfi er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í
töluðu og rituðu máli
Góð tölvukunnátta
Landhelgisgæsla Íslands var stofnuð 1. júlí
1926. Helstu verkefni hennar eru:
Löggæsla og eftirlit á hafi nu umhverfi s Ísland
Ábyrgð og yfi rstjórn á leit og björgun á sjó
Aðstoð við björgun og sjúkrafl utninga á landi
Sjómælingar og sjókortagerð
Sprengjueyðing
Hjá Landhelgisgæslu Íslands starfa um 160 manns
með mismunandi bakgrunn í hinum ýmsu störfum.
Nú leitar Landhelgisgæslan að öfl ugum og
jákvæðum starfsmanni til að bætast í hópinn.
Nánari upplýsingar veita Svanhildur Sverrisdóttir starfsmannastjóri (svanhildur@lhg.is) og
Rannveig Friðriksdóttir bókari (rannveig@lhg.is) í síma 545-2000.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, ásamt sakavottorði, skal skilað
til Landhelgisgæslu Íslands, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík fyrir 24. september nk. merktar
„Umsókn – rekstrarsvið“.
SPRON leitar að árangursdrifnum og traustum þjónustustjóra í útibú
SPRON á Skólavörðustíg. Þjónustustjóri á Skólavörðustíg er jafnframt
staðgengill útibússtjóra á vestursvæði útibúa SPRON. Útibú SPRON á
vestursvæði eru Skólavörðustígur, Borgartún og Austurströnd.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Einarsdóttir, útibússtjóri á vestursvæði, í síma 550 1200.
Umsóknir óskast sendar á starfsmannathjonusta@spron.is fyrir 8. október nk. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
SPRON byggir samkeppnishæfni sína á ábyrgu og hæfu starfsfólki
sem nýtur sjálfstæðis í starfi, ávinnur sér traust viðskiptavina og
veitir þeim framúrskarandi lipra og skjóta þjónustu. Í öllu starfi og
samskiptum bæði innbyrðis og gagnvart viðskiptavinum er áhersla
á TRAUST, FRUMKVÆÐI og ÁRANGUR.
Þjónustustjóri /staðgengill
útibússtjóra á vestursvæði
Helstu verkefni:
• Dagleg stjórnun útibúsins og þátttaka
í stjórnun vestursvæðisins
• Markaðs- og sölumál í samvinnu
við útibússtjóra og markaðssvið
• Útlánaverkefni
• Ábyrgð og eftirfylgni á þjónustustefnu
SPRON sparisjóðs
• Samskipti við núverandi viðskiptavini og
öflun nýrra viðskiptavina á ört stækkandi
markaðssvæði
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta,
stjórnunar eða sambærilegt
• Reynsla af stjórnun skilyrði
• Reynsla og/eða áhugi
á markaðs- og sölumálum skilyrði
• Hagnýt reynsla af bankastörfum og
fjármálamarkaði æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum og þjónustulund
• Frumkvæði, kraftur og brennandi áhugi
á að ná árangri í starfi.
AR
GU
S
07
-0
73
2