Fréttablaðið - 23.09.2007, Page 102
„Að sjálfsögðu er ég ánægð með
hann. Hann tók þetta alveg upp
hjá sjálfum sér og er mjög sjálf-
stæður ungur drengur. Hann
er með mikla réttlætiskennd og
fannst að Randveri vegið.“
„Ég hef alltaf haft ákveðnar hug-
myndir og skoðanir á því hvernig
svona þættir eiga að vera. Þetta er
vissulega gamall draumur að ræt-
ast,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson, sem stjórna
mun nýjum spjallþætti á föstudags-
kvöldum á Stöð 2 í vetur. Þátturinn
hefur fengið nafnið Logi í beinni og
verður sendur út í beinni útsendingu.
Logi er þekktur fyrir léttan húmor
sinn sem sannast á því að hann hefur
lengi verið vinsæll veislustjóri.
Hann býst við því að þau persónu-
einkenni sín smitist út í þáttinn. „Ég
tek hlutina ekkert of alvarlega, verð
ekkert að rembast. Þetta snýst bara
um að vera með skemmtilegt fólk í
þættinum og leyfa því að vera það
sjálft. Svo verður auðvitað tónlist í
þáttunum,“ segir sjónvarpsmaður-
inn. Hann segir erfitt að líkja þættin-
um við aðra þætti en telur þó að
helsta fyrirmyndin sé Michael
Parkinson í Bretlandi.
Logi vinnur nú hörðum höndum
að undirbúningi þáttanna. Í þeirri
vinnu hefur hann meðal annars
notið leiðsagnar góðvinar síns, Gísla
Marteins Baldurssonar borgarfull-
trúa. „Við Gísli erum náttúrlega
mjög góðir vinir. Við höfum áður
talað um svona hluti og hann hefur
gefið mér góð ráð.
Það er ekki slæmt að geta leitað
til Gísla, sem er frábær sjónvarps-
maður og gerði svona þátt í mörg ár.
Þó ekki væri nema til að hann geti
sagt mér að einhver sé ömurlegur
viðmælandi,“ segir Logi og glottir. Á
þeim nótum er Logi spurður hvort
hann sé byrjaður að bóka viðmæl-
endur í þáttinn. „Ég veit alla vega
hverja ég vil fá þótt ég sé ekki
byrjaður að bóka neinn. Eina krafan
sem ég geri er að fólk sé skemmtilegt
þannig að ef ég vil tala við einhvern,
þá geri ég það. Sumir eru alltaf að
kvarta yfir því að í svona þáttum sé
alltaf sama fólkið, bara popparar
sem eru að gefa út plötur eða þess
háttar. Það er nú einmitt ástæðan
fyrir því að talað er við þetta fólk,
það er ekkert sniðugt að tala við fólk
sem er ekki að gera neitt.“
Fyrsti þátturinn af Logi í beinni
fer í loftið 19. október næstkomandi.
Stjórnandinn segist spenntur fyrir
þessu verkefni og sérstaklega því
að vera í beinni útsendingu. „Já, það
hentar mér mjög vel. Þá er líka ekk-
ert vesen og ekkert verið að draga
hlutina með upptökum. En um leið
er enn meiri pressa á að þetta gangi
allt,“ segir Logi. Hann er að síðustu
spurður hvort hann telji sig nógu
skemmtilegan til að stjórna svona
þætti. „Nei, það held ég nú ekki. Það
góða er að ég skipti engu máli, það
eru gestirnir sem eiga að vera
skemmtilegir. Það er ekki eins og ég
ætli að byrja alla þættina á einhverri
einræðu.“
Ingvar E. Sigurðsson hefur tekið að sér hlutverk ráðs-
mannsins í óperunni Adriane eftir Richard Strauss
sem frumsýnd verður 4. október. Áhorfendur fá þó
ekki að njóta sönghæfileika Ingvars en hann fer með
eina talhlutverkið í uppfærslunni.
„Strauss skrifaði þetta svona og þetta þykir mjög
sérstakt,“ segir Ingvar en til að aðgreina hann enn
frekar frá óperusöngvurunum talar leikarinn íslensku
en söngurinn fer fram á þýsku. „Ég held að þetta verði
bara skemmtilegt og vona að þetta gangi bara upp,“
segir Ingvar. Ingvar er sjálfur ekki mikill óperu-
unnandi en viðurkennir þó að hann eigi nokkrar
óperur á geisladisk heima hjá sér og segist hafa unun
af fallegum söng.
Velgengni Mýrarinnar hefur varla farið framhjá
nokkrum manni en þar er Ingvar í aðalhlutverki.
Hann kvaðst eiginlega vera hálf undrandi á þessu öllu
saman. „Maður batt einhvern veginn allar sínar vonir
við Ísland og þetta hefur því komið þægilega á óvart.“
Ingvar bíður þó enn eftir gylliboðum að utan. „Það
kom mér samt í opna skjöldu að fólk skyldi enn þá
muna eftir manni úr öðrum verkum og það er mjög
gaman að finna að íslenskar kvikmyndir og íslenskir
leikarar séu öðrum minnisstæðir.“
Ingvar í Íslensku óperunni
Franski fiðluleikarinn Gilles Apap
mun sækja landið heim í byrjun
október á vegum Hjörleifs Vals-
sonar. Fiðluleikarinn mun spila á
fimm tónleikum, tveimur á Ísafirði,
einum í Akureyrarkirkju og svo
loks tveimur í
Grafarvogskirkju.
Hjörleifur sjálfur
hefur veg og vanda
af komu hans en
Apap þykir einn
fremsti fiðluleik-
ari heims um þess-
ar mundir og gekk
Yehudi Menuhin
jafnvel svo langt
að kalla hann
„fiðluleikara 21.
aldarinnar“.Apap
þykir um margt
sérstakur en hann
býr við strendur
Kaliforníu og milli
þess sem hann
leikur á strengja-
hljóðfærið sitt
stendur hann á brimbrettinu og
nýtur síns einfalda lífs.
Gott málefni verður haft til hlið-
sjónar á þessum fimm tónleikum
og mun allur aðgangseyrir tónleik-
anna í Reykjavík renna til Ofbeldis-
sjóðs Unifem, málefnis sem er
Hjörleifi sérstaklega hugfólgið en
hann segir kominn tíma til að vekja
athygli á þessu máli. „Þetta er alveg
ferlega dýrt en ég er með breitt
bak,“ segir Hjör-
leifur þegar
Fréttablaðið hafði
tal af honum, en
hann er í barn-
eignarleyfi um
þessar mundir og
nýtur lífsins með
erfingjanum.
„Sjóvá mun
styrkja okkur að
einhverju leyti og
svo hefur flug-
félagið Ernir boðið
fram aðstoð sína,“
útskýrir Hjör-
leifur en það mun
meðal annars
fljúga með tón-
listarmennina til
og frá Ísafirði,
frítt. Sérstakur verndari þessa viða-
mikla verkefnis er Ingunn Werners-
dóttir en hún keypti einmitt
Stradivarius-fiðluna sem Hjörleifur
spilar alla jafnan á.
Góðhjartaðir fiðlu-
leikarar gefa af sér
Endurtekið Eurovisiontap sár vonbrigði
aðalstyrktaraðili:
DAGSKRÁ:
KL. 12 - 14
UMRÆÐA UM
HANDRITAGERÐ
MEÐ OTTÓ G. BORG (ASTRÓPÍA)
KL. 14 - 16
STUTTMYNDAKEPPNI LJÓSVAKALJÓÐA
5-8 VALDAR STUTTMYNDIR SÝNDAR
REGLUR:
ALDUR: 15-25 ÁRA
LENGD: UNDIR 20 MÍN.
MYND EKKI ELDRI EN 1 ÁRS
MYND SÝND Á ÁBYRGÐ KEPPENDA
SKIL:
MINIDV EÐA DVD ÁSAMT
ALMENNUM UPPLÝSINGUM
SENDIST Á ZIK ZAK FILMWORKS,
HVERFISGÖTU 14A, 101 REYKJAVÍK
WWW.LJOSVAKALJOD.IS
SKILAFRESTUR ER ÞRIÐJUDAGINN 25. SEPTEMBER
100.000 KR.
FYRIR BESTU MYND
TJARNARBÍÓI LAUGARDAGINN
29. SEPT KL. 12:00 - 16:00
SKILAFRESTUR
2
DAGAR
ÓKEYPIS AÐGANGUR
STUTTMYNDAKEPPNIN