Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 30
Söngkonan Britney Spears virðist vera að ná áttum eftir áfallið í síðustu viku þegar hún missti forræðið yfir sonum sínum. Hún hitti þá á mánudaginn undir sérstöku eftirliti. Þeir Sean Preston og Jayden James áttu fyrst að hitta móður sína á fimmtudaginn en sá fundur fór út um þúfur þar sem Britney vildi ekki að sérstak- ur réttargæslumaður stigi fæti inn á heimili henn- ar. Aftur var reynt á mánudaginn og þá gekk heim- sóknin betur. Strákarnir tveir mættu heim til móður sinnar í Malibu og samkvæmt The Sun virt- ist Britney eilítið stressuð en kvaddi þá með faðm- lagi og tárum. Britney og móðir hennar hafa nú endurnýjað kynnin en það sló í brýnu með þeim eftir að söng- konan unga sakaði hana um að hafa sofið hjá Kevin Federline, fyrrum eiginmanni sínum. Þá hefur litla systirin, Jamie Lynn, einnig komið systur sinni til bjargar og stóð meðal annars þétt við bakið á henni þegar brjáluð kona gerði aðsúg að þeim úti á götu nýverið. Britney eyddi síðan helginni í að rúnta um hverfið sitt ásamt Jamie en þær voru að sjálfsögðu hundeltar af papparössum. Aldrei virðist þó vera lognmolla í kringum gróu- sögur af Britney og greindi vefmiðillinn tmz.com meðal annars frá því að hún hefði sótt um starf barþjóns á Viceroy-hótelinu í Santa Monica. Þetta hefur þó ekki verið staðfest en ætla mætti að þetta væri ekki rétta starfið fyrir manneskju sem hyggst fá aukinn umgengnisrétt yfir strákunum sínum og hefur þar að auki komist á forsíður blaðanna fyrir slæmar drykkjuvenjur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.