Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 40
Átröskun hefur frekar nýlega fengið viðurkenningu sem raunverulegur sjúkdómur. Rætur hans má vanalega rekja til and- legrar vanlíðanar og brýst fram með ýmsum hætti. Margir sem þjást af þessum fjanda einbeita sér að því að borða of lítið eða að ofáti og uppköstum. Sjúklingarnir eiga það einatt sameiginlegt með til dæmis alkóhólistum að afneita ástandi sínu löngu eftir að öðrum er það augljóst. Mikið púður fer í að halda einkennunum leyndum, þykjast borða eðlilega og klæða á sig hold. Allar áhyggjur og afskipti túlkar hinn sjúki hugur sem þving- un og flokkar sem öfundsýki yfir árangri megrunarinnar. anorexíu og búlimíu eru flest ungar stúlkur. Gjarnan duglegar stelpur sem gerðar eru kröfur til og vilja standa undir væntingum. Sjúk- dómurinn byrjar oft sem sakleys- isleg megrun sem þróast hratt í aðalatriði málsins: Stjórnlausa þörf fyrir stjórnun. Einn sjúkling- urinn lýsti því þannig að í höfði hennar byggi harðstjóri sem krefðist af henni æ strangari hegð- unar í tengslum við mat. Ef ekkert er að gert er dauðinn í verstu til- fellunum vís, því aldrei er hægt að fullnægja valdakröfum harðstjór- ans í höfðinu. ber æ meira á umræðu og aðdáun – eða gagnrýni – í garð þeirra sem virðast eiga óendanlega mikla peninga. Þetta eru gjarnan duglegir strákar sem gerðar eru kröfur til og vilja standa undir væntingum. Ferill- inn byrjaði oft sem sakleysislegar tilraunir til að ná árangri í heimi viðskipta og valda. Markmiðið í upphafi er trúlega sjaldan að verða forríkastur af öllum, en skratti er gaman að ná gróðavæn- legum samningum! Með tímanum verða peningarnir eiginlega auka- atriði en aðalatriðið kappleikurinn sjálfur. Þeir sem mestum árangri ná eiga meira en hægt er að hugsa sér en þó aldrei nóg. Unna sér ekki hvíldar, en þvælast um í eirðar- leysi í einkaþotum og sífelldu kappi um að ná völdum yfir bara einhverju. Mikið púður fer samt í að halda einkennunum leyndum og þykjast vera ósköp venjuleg manneskja í daglegu amstri. í höfðinu á sér margar birtingarmyndir. Viður- kenning á græðgi sem sjúkdómi er ef til vill bara spurning um tíma. Með harðstjóra í höfðinu FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR www.toyota.is ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 3 94 92 1 0/ 07 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 Verð frá 2.280.000. kr.* Stundum kemur einn hlutur í staðinn fyrir marga Verso – 30 möguleikar í sætaskipan Ímyndaðu þér bíl sem hentar einstaklingum með fyrirferðarmikil áhugamál jafnt sem sjö manna fjölskyldum. Ímyndaðu þér bíl sem hefur 30 möguleika í sætaskipan. Ímyndaðu þér bíl sem þú segir að sé sjö manna og fólk segir: nei, það getur ekki verið. Ímyndaðu þér að hægt sé að velja um 5 og 7 manna gerðir, beinskiptingu eða MM skiptingu, snarpa bensínvél eða sparneytna og togmikla dísilvél. Hættu síðan að ímynda þér og reynsluaktu Verso. Því stundum verður maður að reyna til að trúa. Verso: ótrúlegur bíll. *Gildir fyrir Verso Terra 1,6 l - 5 manna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.