Fréttablaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 23. nóvember 2007 13
Í Fréttablaðinu 19. nóvember birtist
frétt um hnúfubak þar sem rætt var
við Gísla Víkingsson, sérfræðing á
Hafrannsóknastofnun. Áréttað skal
að í fréttinni var sagt að tegundin
æti allt að milljón tonn af loðnu og
var það talnaleikur blaðamanns eftir
fyrirliggjandi gögnum. Gísli vill að
eftirfarandi komi fram. „Raunveruleik-
inn er sá að við höfum ekki séð okkur
fært að meta afrán hnúfubaks hér
við land að neinni nákvæmni vegna
skorts á ýmsum upplýsingum sem
mikilvægar eru í slíkum útreikning-
um. Samkvæmt nýjasta matinu voru
hnúfubakar við landið á bilinu 9-30
þúsund einstaklingar (besta mat
14 þús.). Þar sem útreikningar á áti
byggjast á lífþyngd stofnsins skiptir
augljóslega miklu máli hvort miðað
er við 9 þús. eða 30 þúsund dýra
stofn. Þá er lítið vitað um viðverutíma
hnúfubaksins við landið og fæðu-
val er nánast óþekkt eins og fram
kemur í fréttinni. Af þessu má ráða
að jafnvel einföldustu útreikningar
á heildaráti hnúfubaks hér við land
verða mjög ónákvæmir miðað við
núverandi stöðu þekkingar.“
ÁRÉTTING
Rússland
Lugovoi
Andrei Lugovoi, rússneski kaup-
sýslumaðurinn sem bresku lögregl-
una grunar að hafi myrt Alexander
Litvinenko með geislavirku efni í
London á síðasta ári, segir að Lit-
vinenko hafi verið svikari: „Hvernig
er hægt að tala um manninn
sem rithöfund þegar
hann var svikari á
launum hjá bresku
leyniþjónust unni?“
spyr Lugovoi, sem
nú er í framboði til
rússneska þingsins
fyrir þjóðernisflokk
Vladimirs Shirin-
ovskís.
Frakkland
Hætta verkföllum
Járnbrautarstarfsmenn í Frakklandi
samþykktu í gær að hætta verkfalli
sem staðið hefur í níu daga og
lamað samgöngur í landinu. Samn-
ingaviðræður hófust á miðvikudag-
inn og þar var tekin ákvörðun um
það hvernig framhaldi viðræðna
yrði háttað. Að öllum líkindum
fylgja fleiri verkalýðsfélög fordæmi
járnbrautar verkamanna og mæta
aftur til vinnu.
Ísrael
Mótmæltu á nærfötunum
Andstæðingar kjarnorkuvopna
sviptu sig klæðum á ráðstefnu um
kjarnorkuvopn sem haldin var í
Ísrael í gær. Þegar Shimon Peres
forseti gekk í salinn til að flytja
ræðu stóðu mótmælendurnir
á nærfötunum einum saman.
„Ég held þeir ættu að draga úr
loftræstingunni hérna,“ sagði Peres
og hló eftir að mótmælendurnir
höfðu verið
leiddir úr saln-
um. „Ég hafði
svolitlar áhyggjur
af heilsufari
þeirra.“
ERLENT
DANMÖRK Flest bendir til að And-
ers Fogh Rasmussen, forsætisráð-
herra Danmerkur, hyggist stokka
upp stjórn sína. Ráðherrar munu
sem fyrr koma úr Venstre og
Íhaldsflokknum.
Samkvæmt heimildum danskra
blaða á að færa orkumál undir
umhverfisráðuneytið og skapa
þannig öflugt ráðuneyti í loftslags-
málum en alþjóðlega loftslagsráð-
stefnan fer fram í Kaupmanna-
höfn árið 2009. Þykir líklegast að
Connie Hedegaard Íhaldsflokkn-
um taki við því embætti.
Að sögn politiken.dk þarf Lene
Espersen, sem er keppinautur
Hedegaard um „krónprinsessu-
hlutverkið“ í Íhaldsflokknum, þá
líka að fá áhrifameiri ráðherrastól
en dómsmálin, sem hún hefur
gegnt. Þykir sennilegt að hún taki
við í utanríkisráðuneytinu. Lars
Lökke Rasmussen, varaformaður
Venstre, þykir líklegur til að taka
við fjármálaráðuneytinu.
Hið nýkjörna þing kemur fyrst
saman hinn 27. nóvember og Fogh
hyggst hafa kynnt nýja ríkisstjórn
fyrir þann tíma. - aa
Anders Fogh Rasmussen stokkar upp í stjórninni:
Orku- og umhverfis-
mál sameinuð
Við hvern ert þú
að spjalla á Netinu?
N E T S V A Rwww.saft.is