Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 FIMMTUDAGUR 27. desember 2007 — 351. tölublað — 7. árgangur HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA ÁRAMÓT VINNUVÉLAR O.FL. Vilhelm og kærastan eyddu eftirminnilegum áramótum með ókunnum rosknum hjónum.Vilhelm Anton Jónsson er í þann mund að leggja mán- aðargamlan frumburð sinn til hvílu þegar hann er truflaður og spurður út í eftirminnileg áramót. Ekki stendur á svari og segist Vilhelm hafa mun meira gaman af áramótum en jólum. „Þegar ég og Kári bróðir minn vorum litlir og bjuggum á Laugum í Reykjadal fengum við alltaf Marúdflögur og ídýfu á gamlárskvöld. Það var algjörlega toppurinn á til- verunni og þannig byrjaði í raun áramótagleðin mín,“ segir Vilhelm. Hann segir þó eftirminnilegustu áramótin án efa þegar hann og Þórdís kærasta hasóttu Þýsk l Berlínar. „Við gistum eina nótt á hóteli og báðum kon- una í afgreiðslunni um að hringja heim til Luise til að fá nákvæmt heimilisfang. Hún gerði það en varð svo frekar skrítin á svip og sagði okkur svo að herra Her- misson hefði verið að reyna að segja mér það þegar ég hringdi að Luise væri í Hollandi yfir jól og áramót. Hann tók það þó fram að við værum hjartanlega vel- komin,“ útskýrir Vilhelm.Vilhelm og Þórdís voru mjög tvístígandi enda vissu þau engin deili á fólkinu. „Við slógum þó til, bönkuð- um upp á og til dyra komu yndisleg gömul hjón. Þau færðu okkur inniskó og í hönd fór frábær tí vorum hjá þeim yfi áhj Dúkkuðu upp í Berlín Vilhelm ætlar að taka því rólega þessi áramót en segist einhvern tímann ætla sér að verða sprengjukarl. Hattar, grímur, skraut og glys tilheyra áramótunum og nú má víða finna slíkt í búðum bæjarins. Í Partý-búðinni má ávallt finna hvað eina sem tilheyrir góðu teiti og verslanir eins og Monsoon og fleiri bjóða upp á úrval af grímum, hönskum og glingri. Skálað er á áramót-um ýmist í áfengum eða óáfengum veigum fyrir nýju ári og hið gamla er að sama skapi kvatt með virkt-um. Mestu skiptir að drykkurinn sé hátíð-legur og fallegur og því er um að gera að skála í fallegum glösum og svo má skreyta með hverju sem er. Ellefu áramóta-brennur verða í Reykjavík um þessi áramót. Þar af verða fjórar stórar brennur en þær verða við Ægisíðu, Geirsnef, í Gufunesi og við Rauðavatn. Kveikt verður í borgarbrennum klukkan hálfníu á gamlárskvöld og eru þær í tveimur stærðarflokkum sem ráðast af aðstæðum á hverjum stað. Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510 Verðdæmi:Leðursófasett áður 239,000 kr Nú 119,900 kr Hornsófar tau áður 198,000 krNú 103,000 kr Hornsófar leður áður 249,000 krNú frá 159,000 kr • Leðursófasett • Hornsófasett • Sófasett með innbyggðum skemli• Borðstofuborð og stólar • Sófaborð • Eldhúsborð • Rúmgafl ar Húsgagna Lagersala ALLTAF BES TA VERÐIÐ OpnunartímiMán - Föstudagar 09 - 18Laugardaga VEÐRIÐ Í DAG VILHELM ANTON JÓNSSON Eyddi áramótum með ókunnugum í Berlín Áramót Í MIÐJU BLAÐSINS Getur staðið um ár og aldir Hvalneskirkja við Sandgerði er 120 ára. Kirkjan ber aldurinn vel enda byggð úr grágrýti. TÍMAMÓT 30 SKAUTAJÓL ..skautaholl.is... s. 5889705 > Markaðurinn Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 27. desember 2007 – 52. tölublað – 3. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP/CAD/DKK eru fjárfestingarsjó›i í skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› t f l fi FME L d b ki ö l ›ili jó› Ath li DKK 5,6%*Örugg ávöxtun í fleirri mynt sem flér hentar EUR GBP 6,4%*ISK14,0%* Markmið Peningabréfa er að ná hærri ávöxtun en USD 5,1%* www.lausnir.is fi nndu rétta tóninn… Viðskiptamaður ársins 2007 Slæm fyrirmynd Spears-fjölskyld- an óttast um Jamie Lynn. FÓLK 36 ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR Á uppleið í fjár- málageiranum Ný gamanþáttaröð í bígerð FÓLK 46 Kveðjur fyrir ellefu milljónir Stórfyrirtæki nýta sér Skaupið og borga vel fyrir. FÓLK 46 VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, er maður ársins 2007 í íslensku viðskiptalífi að mati tuttugu manna dómnefndar Markaðarins. Í öðru til fjórða sæti eru Björgólfur Thor Björgólfsson, Róbert Wessman og Sigurjón Þor- valdur Árnason í þessari röð. Dómnefndin var einnig beðin um að nefna þau atriði sem stæðu upp úr í viðskiptalífinu á árinu. Atkvæðin skiptust mun jafnar þar á milli en við val á viðskiptamanni ársins. Nefndu flestir sölu fjárfest- ingarfélags Björgólfs Thors á búlgarska símanum BTC, velgengni Icesave, innlánsreiknings Lands- bankans í Bretlandi, og hlutafjáraukningu Baugs í FL Group sem vel heppnuð viðskipti. Flestir voru hins vegar sammála um að kaup og sala FL Group á AMR, einu stærsta flugrekstrar- félagi Bandaríkjanna, hefðu verið verstu viðskipti ársins. Í Markaðnum er að finna fjölda greina eftir helstu forystumenn í íslensku viðskiptalífi. Sviptingar á fjármálamörkuðum eru flestum þeirra hugleiknar. Í þeim felist bæði hættur og tækifæri. - bg / sjá Markaðinn Tuttugu manna dómnefnd Markaðarins horfir yfir árið í íslensku viðskiptalífi: Jón Ásgeir viðskiptamaður ársins LÖGREGLUMÁL Þýskur karlmaður á sextugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 22. desember síðastliðins með rúm- lega 23.000 e-töflur í fórum sínum. Það er næstmesta magn e-taflna sem hald hefur verið lagt á hér- lendis, og það mesta sem ætlað hefur verið á markað hér. Talið er að götuvirði efnanna sé um og yfir sextíu milljónir króna. Maðurinn kom til landsins frá Hamborg eftir millilendingu í Kaupmannahöfn. Efnin fundust við hefðbundið eftirlit tollgæsl- unnar á Suðurnesjum. Á Þorláks- messu var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. janúar. Talið er öruggt að fleiri tengist málinu, þar á meðal Íslendingar. Lögreglan á Suðurnesjum, sem annast rannsókn málsins, verst allra frekari frétta af málinu. Lögregla telur efnið hafa verið ætlað til sölu á Íslandi og hefur þá aldrei áður verið lagt hald á jafn- mikið af e-töflum hér sem fluttar eru til landsins í því skyni. Árið 2001 var Austurríkismaðurinn Kurt Fellner handtekinn við kom- una frá Hollandi með 67.000 e- töflur í fórum sínum. Hann var hins vegar á leið til Bandaríkj- anna með efnið og hugðist aðeins millilenda hér. Maðurinn fékk tólf ára fangelsisdóm í héraðs- dómi en Hæstiréttur mildaði dóminn í níu ár. Fyrr á árinu fundust 1.800 e- töflur og fjórtán kíló af e-töflu- dufti auk 24 kílóa af amfetamíni um borð í skútu í Fáskrúðsfjarðar- höfn. Úr duftinu er talið að hægt hefði verið að framleiða um 140 þúsund e-töflur. - sh Tekinn með 23.000 e-töflur í Leifsstöð Þjóðverji á sextugsaldri var tekinn með 23.000 e-töflur við komuna í Leifsstöð. Hann mun sitja í varðhaldi til 14. janúar. Söluvirði efnanna er um 60 milljónir. NORÐAN BÁL - Í dag verður norðan strekkingur eða allhvasst víða um land. Snjókoma eða él með allri norðurströndinni og skaf- renningur en hálf- eða léttskýjað syðra. Frost 0-9 stig, kaldast til landsins vestan til. VEÐUR 4    SNJÓBRÆÐSLA VIÐ MÝRARGÖTU Snjó hefur kyngt niður í Reykjavík um jólin. Sigurður Ingólfsson, íbúi við Mýrargötu, tók til þess ráðs í gær að nota garðslönguna til að bræða snjóinn. Sigurður hefur búið við höfnina um árabil og fylgst með borgarmyndinni breytast. Hann vann í hraðfrystihúsinu skammt frá heimili sínu í 37 ár en nú hefur það verið rifið til að rýma til fyrir nýbyggingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR HEILSA Jólamaturinn sendir nokkra á slysadeild um hver jól. Friðrik Sigurbergsson, læknir á slysadeild Landspítalans, segir saltan jólamat geta haft áhrif á þá sem hafa einkenni hjartabil- unar. „Það ber alltaf eitthvað á þessu, en þetta er ekki sama vandamál og var áður fyrr. Lyfin eru betri í dag en áður,“ segir hann. „Þetta getur samt verið alvarlegt í einstaka tilvikum, þegar hjartabilun versnar.“ Hann segist ekki vita til þess að neinn hafi heimsótt slysadeild vegna ofáts. „Þó að ekki beri mikið á almennri skynsemi held ég ekki að neinn komi hingað af því að hann er of saddur.“ - sþs Saltið fer illa í hjartasjúklinga: Á slysadeild eftir jólamatinn HEILBRIGÐISMÁL Fimm börn fæddust á aðfangadag á fæðingar- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss. Þá fæddust tvö börn á jóladag og fimm í gær, annan í jólum. Minna er um að vera á fæðingar- deildinni þessa jóladaga. „Við erum ekkert að koma börnum í heiminn nema þau vilji,“ segir Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir. Engar fæðingar séu settar af stað þessa daga nema slíkt sé mjög aðkallandi. „Þá eru konur minna að koma og láta kíkja á sig. Fólk heldur sig meira heima,“ segir Guðrún. - ovd Jóladagarnir rólegri á LSH: Tólf jólabörn komu í heiminn NÝJUM ÍSLENDINGUM FJÖLGAR Fæðing- ar á LSH ekki fleiri frá árinu 1993. Brynjar fékk rautt Mikið var um mörk og rauð spjöld í enska boltanum í gær. ÍÞRÓTTIR 42 PAKISTAN, AP Forsetar Pakistans og Afganistans hafa rætt leiðir til þess að berjast sameigin- lega gegn hryðjuverkum og íslömskum öfgamönnum á landamærum ríkjanna. Þeir Pervez Musharraf, forseti Pakistans, og Hamid Karzai, forseti Afganistans, sögðu frá þessu á blaðamannafundi í Islamabad í gær. Á fundinum sagði Musharraf að fólk í báðum löndum þjáðist vegna hryðjuverka og öfgamanna. Forsetarnir hafa lengi deilt um baráttuna gegn uppreisnar- og hryðjuverkamönnum í héruðunum við landamæri ríkj- anna. - þeb Musharraf og Karzai funda: Samstarf gegn hryðjuverkum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.