Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 18
18 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR Á rið 2007 er ár öfga í rafheimum. Blogg- fyrirbærið náði nýjum og áður óþekktum hæðum í íslensku netsamfé- lagi á sama tíma og einstaka blogg- arar náðu nýjum og blessunarlega til þessa áður óþekktum lægðum. Mogginn gekk fjölmiðla lengst og lagði netþjóna sína undir holskefl- ur stórkostlegra og á tíðum absúrd samsuða bréfa til blaðsins og Vel- vakanda. Fjármálafyrirtæki tók upp á því að greiða götu sína gegn- um götótt siðferðisprinsipp nokk- urra ofurbloggara – blogg fæddust og hurfu, bloggarar birtust og dóu – sumir hverjir bókstaflega og við miklar vinsældir. Annar hver Íslendingur virðist hafa skrúfað sjálfviljugur orwelskt firðtjald á vegginn sinn og opinberar sig nú af djöfulmóð hverjum sem horfa vill. Aldrei fyrr hafa víxlverkandi hræringar kjöt- og netheima verið jafn afgerandi. Hræringarnar draga að einhverju leyti dám af þeirri einföldu (en þó á tíðum lúmsku) staðreynd að karlmenn nota netið myndanna vegna en konur vegna orðanna. Safaríkustu útnes og afdalir íslenskra netheima eru enda runnin undan ísköldum rifjum kvenna, karla sem þykjast vera konur, karla sem hafa látið breyta sér í konur eða karla sem hreinlega hefðu átt að fæðast konur til að byrja með. Það er skemmtileg írónía að þetta ár skyldi einmitt hafa hafist með áróðursherferð SAFT þar sem börn voru brýnd um að gæta orða sinna á netinu. Kallaðu vin þinn fávita og CNN mun gera fréttaauka um málið. En maður kemur í manns stað og því betur sem börnin hög- uðu sér – þeim mun verri urðu for- eldrarnir. Andlát ársins Uppgangur svokallaðra hetju- blogga var áberandi í lok síðasta árs en náði hápunkti á þessu. Til- finningaþorsti netverja magnaðist við hvert tár sem þeir felldu meðan þeir fylgdust af kappi með raun- tímafréttum af lyfjameðferðum og dauðateygjum. Tilfinningahitinn varð mælan- legur á Celsíus-kvarða þegar úthverfin virtust standa í æ ljósari logum eftir því sem bænakertunum fjölgaði og í raun er mesta furða að nokkur hafi fest svefn á tímabili, svo mörgum þurfti að koma fyrir í kvöldbænunum. Netstjarnan og maður ársins á undan, Ásta Lovísa, lést og með henni dó mesti sjarm- inn af hetjubloggum. Þau höfðu óþægilega tilhneigingu til að enda illa. Upprisa ársins Hringrás netlífsins lætur ekki að sér hæða og áhugi almennings var fljótur að færast frá dauðanum til upprisunnar. Kraftaverkahundur- inn Lúkas, pyntaður á dögum Helga hundingsbana, skjalfestur, dáinn og horfinn, reis á þriðju viku aftur upp frá dauðum í Glerárdal – þeim sem voru á leið á pósthús með milt- isbrand stílaðan á téðan Helga til mikillar armæðu og undrunar. Helgi tók hins vegar sjálfur að sér að sitja við hægri hönd lögfræð- ings síns til að dæma lifendur og dauða. Ekki sér enn fyrir endann á þeim hundruðum dómsmála sem þeir kumpánar hamast nú við að þinglýsa í heilögum hefndarþorsta sínum. Klám ársins Vart má á milli sjá hvor K-frasinn var notaður oftar á bloggsíðum árið 2007, klám eða Kalli Tomm. Sumir myndu jafnvel kalla þetta samheiti, svo það skiptir kannski ekki höfuð- máli eftir allt saman. Femínistar fóru mikinn og klám- umræðan heyr harða baráttu við trúfrelsisumræðuna í keppninni um heitasta málefni ársins. Tvö mál brunnu sérstaklega á jafnrétt- issinnum í byrjun ársins; annars vegar ásókn erlendra sóðakarla í að efna til stórrar orgíu og svalls í Bændahöllinni og hins vegar mynd af glaðlyndu, frambeygðu ferming- arbarni á forsíðu auglýsingabæk- lings. Ertin háskólakennslukona sem enn var í heilmiklu stuði eftir að dónakörlunum var úthýst, ekki aðeins úr Bændahöllinni heldur borginni líka, ákvað að bregða kynjafræðikyndli sínum á loft og leyfa landslýð að skoða fermingar- barnsmyndina í því ljósinu. Eitt- hvað hafði hún misreiknað stemn- inguna því vopnin snerust í höndunum á henni. Hún fór því að ráði bændanna og skellti bloggi sínu í lás eftir harða atlögu klám- glámskyggnra. Sérstök heiðursverðlaun hljóta þó að falla í skaut Guðmundar í Byrginu sem gaf tóninn einstak- lega vel fyrir árið með óvæntri útgáfu kvikmyndanna Lille ven og IronMaster. Þótt söguþráðurinn væri ekki sérlega beysinn virtist inntak myndanna falla netverjum í geð og seinni útgáfan gerði leik- stjórann að smástirni yfir nótt. Frumspekipælingar ársins Ekki létu allir narra sig á bólakaf í forina í umræður um klám og annan óþverra. Sumir kusu að liggja á bakinu í ræsinu, litu til stjarnanna og veltu fyrir sér æðri máttarvöld- um. Kergjan milli trúleysingja, með félagsskapinn Vantrú í broddi fylkingar, og trúaðra, undir öruggri leiðsögn Jóns Vals Jenssonar og annarra andans manna, átti eftir að stigmagnast eftir því sem leið á árið. Skápahomminn með viðeigandi nafnið, Chambers, kom til landsins og boðaði kynvillingum lækningu – auk þess sem réttlæting fóstureyð- inga var til umræðu um stutt skeið. Þjóðkirkjan og aðrir boðendur hóf- samrar barnatrúar lentu á milli steins og sleggju, allt þar til hin hræðilega, siðlausa klíka trúleys- ingja fór yfir strikið og vildi banna börnunum að koma til Jesú. Þeir fóru að berja á biskupnum sem sá enga ástæðu til að bjóða fram hinn vangann heldur kýldi miskunnar- laust á móti. Kynbætur ársins Nátengt trúmálunum var rifrildið um rasisma. Gildi arfleifðar Muggs var véfengt og bloggsam- félaginu öllu til mikillar furðu stefndi allt í að af útgáfubókum Skruddu þetta árið yrði bók um tíu litla negrastráka vinsælli en þroskasaga ofurbloggarans Ágústs Borgþórs. Ágúst tók frétt- irnar nógu nærri sér til að hóta að hætta að blogga tækist honum ekki að selja 350 eintök af meist- araverki sínu. Mitt í fárinu tóku sig til nokkr- ar mannvitsbrekkur, sem þóttust hafa höndlað nýjan og merkileg- an sannleik í nasisma, og opnuðu með viðhöfn síðu tileinkaða hugðarefnum sínum. Fljótlega var það orðið kappsmál öllum þeim bloggurum sem höfðu pólit- íska réttsýni að leiðarljósi að fá aflausn allra sinna netsynda með því að komast inn á óvinalista þeirrar vefsíðu. Afhjúpun ársins Nafnleysingjar á Netinu hafa lengi verið stór og beittur þyrnir í augum ýmissa málsmetandi blogg- ara sem telja engar skoðanir verð- ar viðlits nema þær séu settar fram undir nafni sem finna má í skrám Mannanafnanefndar. Sumir notuðu árið mjög samviskusam- lega í hysterískar tilraunir til að fletta ofan af stærstu rotnu eplun- um í flokki nafnleysingja. Einkaspæjaraheilkennið náði líklega hámarki í leitinni að skap- ara Mengellu. Í ágúst opinberaði Gísli Ásgeirsson rannsóknir sínar sem bentu til þess að undirritaður ætti þar hlut að máli. Fólk var samt langt frá því að vera sann- fært eða tilbúið til að gefa þennan spennandi leik upp á bátinn. Í nóvember dró aftur til tíð- inda, Mogginn hljóp á sig og birti uppspuna og þvælu. Skáld og aðrir sakleysingjar drógust niður í hringiðuna og fatlaða systir Moggans tók sig til og batt enda á farsann með loforði um vegleg verðlaun handa hverjum þeim sem flett gæti ofan af skrímslinu. Þau verðlaun hafa enn ekki skilað sér. Bloggið blómstraði Mikið gekk á í netheimum á árinu. Bloggið sprakk út en sumar rósirnar báru hvassa þyrna og aðrar voru heldur daunillar. Ólafur Sindri Ólafsson, maðurinn á bak við hið umtalaða bloggkvendi Mengellu, gerir hér upp árið. INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2007 En maður kemur í manns stað og því betur sem börnin höguðu sér – þeim mun verri urðu foreldrarnir Ólafur Sindri Ólafsson er 24 ára áhugamaður um kynlega kvisti samfélagsins. Fyrir hendingu tókst honum á árinu að verða landsþekkt- ur bloggari og deilir einnig titlinum „þekktasti karlmað- urinn til að stunda Barnaland“ með Sigfúsi Sigurðssyni. Honum þykir vænt um einbúakrabba og á einn slíkan fyrir gæludýr. Innlendir vendipunktar 2007 Fréttablaðið gerir nú upp árið með greinum um innlenda vendipunkta eftir landskunna Íslendinga. Vend- ipunktarnir snúast um markverðar fréttir á árinu, sem eiga það samm- erkt að vera fréttir um eitthvað nýtt sem gerðist eða breytingar sem hafa áhrif til frambúðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.