Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 2
2 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR VESTMANNAEYJAR Fjölskylda í Vest- mannaeyjum fékk óvænta heim- sókn á aðfangadagskvöld þegar labradorhundurinn Brjánsi bauð haftyrðli heim í jólastemming- una. Hundurinn, sem vanur er að hjálpa til við að ná og sleppa lunda- pysjum hafði farið út að viðra sig með eiganda sínum þegar örþreyttur haftyrðill varð á vegi þeirra. Þreyta fuglsins gerði það að verkum að hundurinn átti auð- velt með að fanga hann og það án þess að særa nokkuð. Haftyrðlar eru alfriðaðir, sjald- séðir og minnstir fugla af ætt svartfugla. Verpa þeir aðeins mjög norðarlega og til Íslands berast þeir helst sem flækingsfuglar frá Grænlandi. Þeir lifa á rækjum og smákrabbadýrum en húsráðendur í Eyjum áttu ekkert slíkt góðgæti til og gáfu gestinum þess í stað lýsi. Allir á heimilinu gerðu sitt til að bjarga fuglinum og má með sanni segja að þessi litli fugl hafi stöðv- að jólahaldið á heimilinu enda ekki á hverjum degi sem jólagjöf kemur af himnum ofan. Samkvæmt ráðum Kristjáns Egilssonar, safnvarðar Náttúru- gripasafnsins í Vestmannaeyjum, var fuglinum svo sleppt í sjóinn í Viðlagafjöru. - ovd Haftyrðill heimsótti fjölskyldu í Vestmannaeyjum á aðfangadagskvöld: Lítill fugl stöðvar jólahaldið LÖGREGLUMÁL Þrír unglingsstrák- ar voru staðnir að verki við innbrot í Snælandsskóla í gærmorgun. Þeir reyndu að komast undan á hlaupum þegar lögregla kom á staðinn, en einn þeirra náðist. Lögregla tók af honum skýrslu í gær en hinna er leitað. Að sögn lögreglu settu dreng- irnir öryggiskerfi í gang með því að spenna upp glugga á skólanum. Þeir voru að tína til tölvur og myndvarpa þegar lögregluþjónar og öryggisverðir komu á vett- vang. Þá tóku piltarnir til fótanna. - sþs Brutust inn í Snælandsskóla: Innbrotsþjófar staðnir að verki ÓVÆNT JÓLAHEIMSÓKN Haftyrðillinn vakti áhuga allra á heimilinu. MYND/ÓSKAR Keith, eruð þið ekki að dansa á línunni? „Nei, en við erum að hugsa um að gera það á næsta ári.“ Guðsþjónustan í Lindarsókn var með kántríblæ í gær. Þekkt jólalög voru leikin í kántrístíl og tónlistarmennirnir voru í kúrekaklæðum, en enginn línudans var að þessu sinni. Keith Reed er organisti og söngstjóri Lindarsóknar. LÖGREGLUMÁL Vélsleðamaður ók á vegg á sveitabæ nálægt Selfossi um klukkan hálf fimm í gær. Hann fór með annan fótinn í gegnum rúðu og skarst talsvert, samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Selfossi. Hann var fluttur á slysadeild í Reykjavík til aðhlynningar. Slysið varð þegar maðurinn, sem var óvanur á vélsleða, gaf í í staðinn fyrir að hægja á sér þegar hann ætlaði að leggja sleðanum undir veggnum. Vélsleðinn skemmdist töluvert við áreksturinn. - sþs Óvanur vélsleðamaður: Gaf óvart í og keyrði á vegg LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók síðdegis í gær þrjá menn um tvítugt sem stolið höfðu vélsleða úr Skútuvogi í Reykjavík. Þegar eigandinn varð þess var að sleðinn var horfinn rakti hann slóð sleðans út úr bænum og upp í Mosfellsdal, þar sem hann fann mennina að leik á sleðanum. Hann hringdi þá á lögreglu, sem var stödd skammt frá og kom og handtók mennina. Þeir voru færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu. - sh Fundvís vélsleðaeigandi: Rakti slóð og fann þjófana LÖGREGLUMÁL Landssamband lögreglumanna (LL) og Lögreglufélag Reykjavíkur (LR) boða sameigin- lega til fundar um það sem ritstjórar lögreglublaðs- ins hafa kallað alvarlega bresti í liðsheild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Fundarboðið er til allra lögreglumanna en kveikjan að fundinum er pistill ritstjóra lögreglu- blaðsins í nýjasta hefti þess. „Umfjöllun fór að stað og þetta var eins og ritstjórnin væri að tjá sína eigin skoðun,“ segir Gísli Jökull Gíslason, annar ritstjóra Lögreglu- blaðsins. Hann segir fundinn vera til að kynna að þetta sé ekki þeirra eigin skoðun, „heldur er þetta útbreidd almenn skoðun meðal lögreglumanna“. Fundurinn er næstkomandi föstudag, 28. desember, í BSRB-húsinu og hefst klukkan 16. Gísli reiknar ekki með neinum „stórum sprengjum“ á fundinum heldur segir hann fundinn vera hálfgerða stuðningsyfirlýsingu. Þá verði kynnt hvað þeir hjá lögreglufélaginu ætli sér að gera í framhaldinu, „svo hlutirnir haldi ekki áfram með þeirri þróun sem verið hefur,“ segir Gísli Jökull. Lögreglufélag Reykjavíkur hefur tekið yfir skyldur lögreglufélaga á höfuðborgarsvæðinu eftir sameininguna. - ovd Ritstjóri fullyrðir að lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu séu ósáttir: Boða til baráttufundar VEÐUR Snjór féll á öllu vestan- og norðanverðu landinu í gær. Flestir vegir voru færir, en víða var hálka og skafrenningur. Vegagerðin biður vegfarendur um að sýna fyllstu tillitssemi gagnvart snjómoksturstækjum. Hálkublettir voru á Reykjanes- braut og Hellisheiði, en annars hálka eða snjóþekja víðast hvar á Suðurlandi. Einnig var hált hér og þar á Austurlandi, og skafrenn- ingur á Vestfjörðum. Þá voru Hrafnseyrarheiði og Dynjandis- heiði ófærar. Vegagerðin biður vegfarendur um að sýna aðgát vegna fram- kvæmda við tvöföldun Reykja- nesbrautar. - sþs Vegfarendur sýni aðgát: Snjór og hálka á vegum landsins TSJAD, AP Frönsku hjálparstarfs- mennirnir sex, sem sakaðir voru um að reyna að koma 103 börnum úr Afríkuríkinu Tsjad í október, voru í gær dæmdir til átta ára þrælkunarvinnu. Réttarhöld yfir þeim hófust í síðustu viku en saksóknari hafði krafist þess að þeir yrðu dæmdir til ellefu ára þrælkunarvinnu. Frakkarnir ætluðu að fljúga með börnin frá Tsjad til Frakk- lands, þar sem átti að ættleiða þau. Börnin voru sögð vera munaðarlaus en við eftirgrennsl- an kom í ljós að flest þeirra áttu foreldra. - þeb Hjálparstarfsmenn í Tsjad: Dæmdir til þrælkunar LÖGREGLUMÁL Kona nefbrotnaði og braut tönn í átökum við þrjá karlmenn í samkvæmi í Breið- holti á jólanótt. Konan var gestkomandi í íbúð í fjölbýlishúsi og tilkynnti lögreglu sjálf um átökin. Þegar lögregla kom á staðinn voru þrír erlendir karlmenn í íbúðinni ásamt konunni, sem er íslensk og býr í sömu götu. Allt var fólkið ölvað. Konan var nefbrotin og með brotna tönn eftir áflogin og var flutt til aðhlynningar á slysadeild. Mennirnir þrír voru fluttir á lögreglustöð til yfirheyrslu og sleppt að því loknu. Tildrög áfloganna liggja ekki fyrir. - sh Kona óskaði hjálpar á jólanótt: Nefbrotnaði í átökum við þrjá ÍRAK Stjórnvöld í Írak hafa samþykkt drög að nýjum lögum sem veita munu grunuðum uppreisnarmönnum sakarupp- gjöf. Markmið laganna er að föngum sem haldið hefur verið án ákæru verði sleppt en mikil fjölgun fanga er rakin til hertra hernað- araðgerða í Írak. Er nú svo komið að fjöldi fanga í haldi Bandaríkja- hers og hers Íraka er talinn vera um 50 þúsund manns. Undirbúningur laganna hefur tekið nokkra mánuði en þau eru talin mikilvægt skref í sáttum milli hópa Súnnía og Shíta. Fréttavefur BBC greindi frá. - ovd Írösk stjórnvöld undirbúa lög: Ný löggjöf um sakaruppgjöf FRÁ ÍRÖSKU FANGELSI 50 þúsund fang- ar eru í fangelsum í Írak. JÓL Tivoli-útvarpstæki var í jóla- pakkanum hjá starfsmönnum fjögurra íslenskra fyrirtækja af tólf sem Fréttablaðið skoðaði. Starfsmenn Símans, Vodafone, EJS og Glitnis fengu allir útvarps- tækin vinsælu í jólapakka sína. Þau kosta upp undir tuttugu þús- und krónur í verslunum. Þorsteinn Daníelsson, eigandi T.H. Danielsson ehf. sem flytur inn útvarpstækin, segir það ekki koma sér á óvart að tækið sé vin- sælasta jólagjöfin í ár. Hann hafi selt hátt í sex þúsund slík fyrir þessi jól. „Þetta er einföld gjöf og eftir- minnileg, og það hlusta allir á útvarp. Á móti eru sumar gjafir eins og matarkörfur oft rándýrar og skilja lítið sem ekkert eftir sig,“ segir hann. Sagt var frá því í norskum fjöl- miðlum fyrir skömmu að jólagjöf- um fyrirtækja til starfsfólks og viðskiptavina færi sífellt fækk- andi. Þeim hefði fækkað um fjórð- ung á síðustu þremur árum. Þar er ástæðan sögð ótti fyrirtækja við spillingarstimpil. Það er greini- lega ekki uppi á teningnum hér- lendis, því mikið var um dýrar og veglegar gjafir hjá þeim fyrir- tækjum sem skoðuð voru. Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna gaf til að mynda vasa eftir Alvar Aalto, Íslensk erfðagreining gaf þrjátíu þúsund króna gjafabréf hjá Icelandair og Actavis gaf öllum 550 starfsmönnum fyrirtækisins og dótturfyrirtækja hundrað þús- und króna peningagjöf. Starfsmenn tölvuleikjafyrir- tækisins CCP fengu viðeigandi jólagjöf í ár, en í pakkanum var PlayStation 3-leikjatölva. Hún kostar á milli 40 og 50 þúsund krónur úti í búð. „Við erum trúir okkar umhverfi og viljum halda fólki við leikja- geirann,“ segir Jón Hörðdal fram- kvæmdastjóri. Hann segir gríðar- lega ánægju hafa verið með gjöfina meðal starfsmanna, sem eru rétt tæplega þrjú hundruð talsins. salvar@frettabladid.is/stigur@frettabladid.is Tivoli-tæki undir jólatré starfsfólks Tivoli-útvarpstæki voru vinsæl gjöf frá fyrirtækjum til starfsmanna þessi jól. Einföld gjöf og eftirminnileg, segir innflytjandinn, sem seldi sex þúsund tæki. Aðrar fyrirtækjagjafir voru allt frá vasa eftir Alvar Aalto til beinharðra peninga.FJÖR Í SNJÓNUM Kristjana Signý dregur Jönu Katrínu á snjóþotu í snjónum í gær. LÖGREGLUMENN AÐ STÖRFUM LL og LR boða til fundar á morgun klukkan 16. TIVOLI-JÓL Gjafir nokkurra íslenskra fyrirtækja Actavis 100.000 krónur Apple Gjafabréf í Kringluna CCP PlayStation 3-leikjatölva EJS Tivoli-útvarp Glitnir Tivoli-útvarp IceBank Marimekko-rúmföt Íslensk erfðagreining 30.000 króna gjafabréf frá Icelandair Kaupþing Stafræn myndavél Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna Alvar Aalto-vasi Síminn Tivoli-útvarp SPRON Bókin um Kjarval Vodafone Tivoli-útvarp SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.