Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 38
30 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is SNORRI HJARTARSON SKÁLD LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1986. „Ég hjúfra mig í hálsakoti móður, þar hló ég barn, þar er ég sæll og góður.“ Snorri Hjartarson var listfengt ljóðskáld. Hann hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs árið 1981 fyrir ljóðabók- ina Hauströkkrið yfir mér. Þennan dag árið 1985 réðust hryðjuverkamenn á tvo flug- velli í Evrópu samtímis: ann- ars vegar á flugvöllinn í Róm og hins vegar í Vínarborg. Í Róm hófu vígamennirn- ir skotárás á farþega við inn- ritunarborð hins ísraelska flugfélags El Al. Árásirn- ar hófust á nálægt því sama tíma, klukkan rúmlega átta um morguninn. Mikil ringul- reið varð í þær fimm mínút- ur sem árásin í Róm stóð og farþegar köstuðu sér til jarð- ar til að forðast kúlnahríð- ina sem dundi úr byssum hryðjuverkamannanna þriggja. Í Austurríki voru víga- mennirnir einnig þrír og köstuðu þeir handsprengj- um að farþegum á leið til Tel Aviv. Alls létust átján manns í árásunum og 120 særðust. Í fyrstu var talið að PLO, frelsissamtök Pal- estínu stæðu fyrir árásinni en leiðtogi þeirra, Jasser Arafat, fordæmdi árásirnar. Líklegt er talið að Abu Nidal hafi verið heilinn á bak við ódæðin, en hann yfirgaf PLO árið 1974 og fór meðal annars fyrir Fatah-hreyfingunni. Hann fannst látinn við dularfullar aðstæður í Írak árið 2002. ÞETTA GERÐIST: 27. DESEMBER 1985 Hryðjuverk á flugvöllum í Evrópu MERKISATBURÐIR 1831 Breska skipið „Beagle“ leggur af stað í leiðangur, m.a. til Galapagos-eyja. Meðal leiðangursmanna er Charles Darwin. 1927 Söngleikurinn „Show Boat“ er frumsýndur á Broadway. Höfundar eru Kern og Hammerstein. Frægasta lagið er „Old Man River“. 1956 Lög um bann við hnefa- leikum á Íslandi eru stað- fest. 1968 Apollo 8 snýr aftur til jarðar eftir að hafa farið umhverfis tunglið. 1979 Rússar taka völdin í Af- ganistan. 1988 Fyrsta númerið í nýju kerfi er sett á bíl dómsmálaráð- herra, Halldórs Ásgríms- sonar. Það er HP 741. Á jóladag voru hundrað og tuttugu ár liðin frá vígslu Hvalsneskirkju í Kjalar nes prófastsdæmi. Hún ber aldur inn vel enda fáar kirkjur á Íslandi byggðar úr varanlegra efni. Það er grágrýtis steinn sem var fleygaður úr klöppum skammt frá. Sóknar prestur í Hvalsneskirkju frá 1998 er sr. Björn Sveinn Björnsson. Hann segir marg- ar kirkjur hafa staðið á þessum stað gegnum aldirnar en þær hafi fokið hver af annarri. „Það var ekkert guðs- hús sem stóðst stórviðrin sem geisa hér við ströndina,“ lýsir hann og grein- ir síðan frá sögu þeirrar kirkju sem nú stendur. „Ketill Ketils son, bóndi í Kotvogi í Höfnum, var eigandi Hvals- nesjarðarinnar árið 1864. Hann hafði verið við fermingar guðsþjónustu í kirkjunni þar sem fólk hafði þurft að standa úti vegna plássleysis. Það rann honum til rifja. Hann kvaðst ekki geta til þess hugsað að kirkjugestir hefðu ekki þak yfir höfuðið. Í annan tíma komu tveir menn innan af Nesi og sögðu honum að kirkjan væri farin að leka. Þá á þessi stórhuga bóndi að hafa sagt: „Nú veit ég hvað ég geri. Ég ætla að byggja nýtt musteri úr steini sem getur staðið um ár og aldur.“ Hann stóð við það. Yfirumsjón með byggingunni var í höndum Magnúsar Ólafssonar tré- smíðameistara en Magnús Magnús- son, múrari frá Gauksstöðum í Garði, annaðist steinsmíðina. „Það var sá sami og sá um steinsmíði Njarðvíkur- kirkju á sínum tíma og Alþingis- hússins. En það sorglega gerðist að Magnús drukknaði áður en byggingu Hvalsneskirkju lauk og þá tók Stefán Egilsson frá Reykjavík við verk- inu,“ segir sr. Björn. Stórviðir eins og súlur í kór eru úr rekaviði af fjörunni að sögn sr. Björns og meira að segja predikunar stóllinn sem er úr mahóní. „Það kom upp vandi þegar átti að fara að smíða predikunarstólinn því menn vissu ekki hvert þeir ættu að sækja við. En þá rak þennan fína drumb frá Suður-Ameríku úr besta fáanlega viði. Það var hvalreki fyrir Hvals- neskirkju.“ Sr. Björn segir Hvals- neskirkju helgast af anda sr. Hall- gríms Péturssonar sem var prestur á Hvalsnesi frá 1644 til 1651. „Margt í helgidóminum minnir á hann,“ segir sr. Björn og nefnir fyrst og fremst steininn sem Hallgrímur lagði á leiði dóttur sinnar Steinunnar er hann missti unga og harmaði mjög. „Sorgin var þung og hellan líka, vel yfir hundrað kíló, en sr. Hallgrímur hefur ekki talið eftir sér að ná í hana upp í heiði og höggva í hana letrið,“ lýsir sr. Björn. Hann kveðst vilja halda þeirri kenningu á lofti að sr. Hallgrímur hafi orðið fyrir miklum trúaráhrif- um á Hvalsnesi og að þar gerist hann sálmaskáld. „Steinninn af litla leiðinu var týndur um langan tíma en árið 1964 voru menn að laga til í kringum kirkjuna og rákust þar á hann,“ lýkur sr. Björn frásögninni. „Það var stór- merkilegur fundur,“ bætir hann við. „Margir vilja meina að þetta sé mesti dýrgripur í kirkjum þessa lands.“ gun@frettabladid.is HVALSNESKIRKJA VIÐ SANDGERÐI: HUNDRAÐ OG TUTTUGU ÁRA HELGIDÓMUR Getur staðið um ár og aldur SR. BJÖRN SVEINN SÓKNARPRESTUR Í HVALSNESKIRKJU „Ég vil halda þeirri kenningu á lofti að hér hafi sr. Hallgrímur orðið trúarskáld,“ segir hann. VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS Starfsemi Bjargarinnar – athvarfs fyrir fólk með geðraskanir í Reykjanesbæ, fær góðan stuðning í dag þegar skrifað verður undir fjóra samninga í Íþróttaaka- demíunni í Reykjanesbæ um stuðning við athvarfið. Björgin var stofnuð í febrúar árið 2005 en það voru Reykjanesbær, Svæðis- skrifstofa um málefni fatl- aðra og Sjálfsbjörg á Suður- nesjum sem stóðu saman að rekstrinum. Björgin hefur einnig notið góðs samfélags- legs stuðnings með ýmsum hætti. Starfsemi Bjargarinnar hefur vaxið fiskur um hrygg á þessum rúmu tveimur árum, og hefur sprengt utan af sér bæði húsnæði og mannafla. Nú verða breyt- ingar þar á þar sem sveit- arfélögin á Suðurnesj- um, félagsmálaráðuneytið, Heilbrigðisstofnun Suður- nesja og Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra hafa ákveðið að leggja verkefn- inu lið, eins og kemur fram í þeim samningum sem undir- ritaðir verða í dag. Reykjanesbær verð- ur áfram verndari Bjargar- innar. Bærinn heldur utan um reksturinn bæði fag- lega og rekstrarlega og hefur eftir lit með starfsem- inni. Einnig munu full trúar frá öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum, Svæðis- skrifstofu málefna fatlaðra og HSS eiga sæti í fag- og rekstrarráðum. Björgin studd REYKJANESBÆR Verður áfram verndari Bjargarinnar – athvarfs fyrir fólk með geðraskanir. Ásrún Benediktsdóttir frá Vöglum, Eyjafjarðarsveit, til heimilis að Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ föstudaginn 28. desember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á SÍBS eða Reykjalund. Fyrir hönd aðstandenda, Auður Benediktsdóttir Helga Tryggvadóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þráinn Valdimarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri, Álftamýri 56, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 18. desember. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. desember kl. 13.00. Elise Valdimarsson Hildur Þráinsdóttir Þráinn Þórhallsson Örn Þráinsson Helga Hilmarsdóttir Elfa Arnardóttir Hilmar Arnarson Örn Kári Arnarson Hrafnhildur Sævarsdóttir og langafabörn. Elskuleg systir mín og mágkona, Guðbjörg Stefánsdóttir Dalbraut 27, Reykjavík, sem lést 14. desember síðastliðinn, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 28. desember kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar Soffía Stefánsdóttir Páll Gíslason Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sölvey F. Jósefsdóttir frá Atlastöðum í Fljótavík, Sundstræti 27, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 17. desember. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 29. desember kl. 14.00. Bergmann Ólafsson Árdís Gunnlaugsdóttir Guðmundur K. Ólafsson Stefanía Eyjólfsdóttir Margrét B. Ólafsdóttir Jakob R. Ólafsson Kristín Bekkholt barnabörn og langaömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.