Fréttablaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 32
ATVINNA
13. apríl 2008 SUNNUDAGUR8
• Orkuvinnsla í sátt við umhverfið: Gengið er út frá umhverfismálum í allri starfsemi OR. www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
19
03
0
4/
08
Spennandi atvinnutækifæri
hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is)
og Tómas Oddur Hrafnsson (tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga,
www.capacent.is
Verkefnastjóri fyrir vélbúnað
Svið Nýrra virkjana Orkuveitu Reykjavíkur leitar að
verkefnastjóra fyrir vélbúnað. Stærstu verkefni sviðsins
eru Hellisheiðarvirkjun, stækkun hennar og nýjar virkjanir
við Hverhlíð og Bitru. Verkefnastjóri mun starfa beint
undir staðarverkfræðingi.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Dagleg stjórn byggingarframkvæmda
• Eftirfylgni verksamninga
• Kostnaðargát og greiningar
Hæfniskröfur:
• Vélaverkfræði, framhaldsnám á fagsviðinu
• Reynsla af verkefnastjórn á framkvæmdastað 3 ár
eða lengur
• Mikil þekking á verksamningum og rekstri þeirra
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Eldmóður, frumkvæði og samskiptahæfni
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir
öryggi og vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er. Það er stefna
Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins.
Rafmagnseftirlitsmaður
Heimlagnadeild Dreifingarsviðs Orkuveitu Reykjavíkur
óskar að ráða rafmagnseftirlitsmann til starfa. Megin-
verkefni Heimlagnadeildar er þjónusta við umsækjendur
heimlagna svo og þjónusta við viðskiptavini hvað varðar
tengingar við neysluveitur og gæði vöru.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Spennusetning heimtauga
• Úttektir og eftirlit með mælatengingum
• Mælingar og staðfesting á að öryggisatriði séu uppfyllt
• Önnur þjónusta við rafverktaka og viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við leitum að duglegum og samviskusömum
einstaklingi með mikla færni í mannlegum samskiptum.
• Próf í rafmagnsiðnfræði
• Almenn tölvuþekking og reynsla af innskráningu
upplýsinga æskileg
• Reynsla af þjónustustörfum æskileg
• Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Eldmóður, frumkvæði og samskiptahæfni
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Þjóðgarðsvörður á Skriðuklaustri
VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR
Önnur verkefni þjóðgarðsvarðar eru:
• Að aðstoða svæðisráð við gerð tillögu að
verndaráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði.
• Að koma verndaráætlun þjóðgarðsins til
framkvæmda innan þess fjárhagsramma sem
viðkomandi rekstrarsvæði er ætlaður hverju sinni.
• Að hafa eftirlit með því að farið sé eftir ákvæðum
laga og reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð og að
ákvæði verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn séu virt.
• Fræðsla um náttúruvernd á sínu rekstarsvæði og
um Vatnajökulsþjóðgarð.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu
og þekkingu eru hafðar til viðmiðunar við
val á umsækjendum:
• Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem
nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur
• Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
• Reynsla af almennum rekstri og mannaforráðum
• Reynsla eða þekking á fræðslu til mismunandi hópa
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Fekari tungumálakunnátta er kostur.
Eftirfarandi kröfur um hæfni eru hafðar til
viðmiðunar við val á umsækjendum:
• Tekur ákvarðanir og fylgir þeim eftir
• Sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Er skipulagður og með ríka þjónustulund
• Sýni lipurð í mannlegum samskiptum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött
til að sækja um starfið.
Umsóknir um ofangreint starf skulu hafa borist
Vatnajökulsþjóðgarði Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík,
eigi síðar en 30. apríl n.k.
Upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn
Björgvinsson, formaður svæðisstjórnar
Austursvæðis, eirikur@egillstadir.is og Þórður H.
Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
thordur@vatnajokulsthodargur.is eða í síma 575 8400.
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf þjóðgarðsvarðar á Skriðuklaustri laust til umsóknar.
Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun, sem bráðlega mun taka við rekstri landssvæða sem
tilheyra munu Vatnajöklulsþjóðgarði, og ná yfir u.þ.b. 13.000 km2.
Vatnajökulsþjóðgarður skiptist í fjögur rekstarsvæði: Norðursvæði, Austursvæði,
Suðursvæði og Vestursvæði. Starf þjóðgarðsvarðar á Skriðuklaustri tilheyrir Austursvæði.
Á öllum rekstrarsvæðum starfa svæðisráð sem eru þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til
ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði. Svæðisráðin gera tillögu um ráðningu
þjóðgarðsvarðar á hverju svæði, vinna tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði, sem og
tillögu að verndaráætlun á sínu svæði.
Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðsvörður á
Skriðuklaustri annast daglegan rekstur og stjórn á Austursvæði í samráði við framkvæmdastjóra og
ræður starfsfólk á því svæði.
Tónlistarkennari - organisti
Fjölhæfan tónlistarkennara vantar í fullt starf við Tónlistar-
skóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar næsta skólaár.
Helstu kennslugreinar eru hljómborðshljóðfæri, en einnig
myndi viðkomandi kennari sjá um kennslu forskólabarna
auk tónfræðikennslu.
Einnig vantar organista í hálfa stöðu við Kolfreyjustaðar-
prestakall frá og með ágúst 2008. Möguleiki er á að hefja
störf fyrr.
Æskilegt er að sami aðili gegni báðum störfum, en það er
ekki skilyrði. Umsóknarfrestur er til 11. maí, 2008
Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri tónlistarskólans í
síma 8916035 eða í netfanginu tfs@skolar.fjardabyggd.is