Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 48

Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 48
24 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þegar ég bjó erlendis þurfti ég að venjast þeirri tilhugsun að þótt sól skini í heiði, þá mætti ég vera inni. Enginn æpti á mig og krafðist þess að ég færi út að gera eitthvað í góða veðr- inu. Mér finnst sólin reyndar ágæt og þykir sérstaklega gott að njóta hennar í sundi. Ég hef hins vegar komist að því að ég kann ekki að fara í sólbað. Fyrst fer ég með handklæði eða eitthvað þvíumlíkt út á svalir og byrja að sóla mig. Þá fer mér að leiðast. Ég næ í bók, kveiki á útvarpinu, tala í símann en ekkert virkar. Gallinn er nefnilega eftir- farandi: mér finnst ekki nógu skynsamlegt að fara í sólbað. Fyrir utan að vera tímasóun þá er það krabbameinsvaldandi iðja sem getur látið mann líta út eins og gamalt veski. Og ég vil ekki líta út eins og veski. Út af þessu, og frekar ljósum hörundslit, er ég oftast frekar hvít. Þetta virðist hafa áhrif á samskiptahæfni fólks. „Nei, vá hvað þú ert hvít!“ er æpt á mig reglulega. Sumir heimta að fá að bera sig saman við handlegginn á mér í þeim tilgangi að gleðjast yfir eigin brúnku. Fólk hefur bent mér á, með mjúkum og traustvekj- andi málrómi, að mér væri líklega hollast að kíkja í einn og einn ljósa- tíma. Bekkjarkennarinn minn í gaggó var sannfærður um að ég væri með einhvern sjúkdóm og ótrúlegasta fólk hefur fundið sig knúið til að gefa mér sólarpúður. Af því að ég er svo hvít. Fyrst að það er leyfilegt að segja mér hve hvít ég er, má ég þá segja fólki að það sé með of margar hrukkur? Ég gæti borið mig saman við broshrukkur vina og kunn- ingja og galað: „Nei, vá ég er miklu unglegri en þú!“ Eins gæti ég bent fólki á sniðuga lýtalækna sem gæti losað þá við línurnar í kring- um augun. Svo myndi benda þeim á að kaupa retinol-krem í apótek- inu eða telja mér trú um að þau séu með gulu. Af því að þau eru svo agalega brún. STUÐ MILLI STRÍÐA Sólardýrkun HELGA ÞÓREY JÓNSDÓTTIR VILL EKKI LÍTA ÚT EINS OG VESKI Þú ert frábær, Harald- ur! Hihi. Hvað get ég sagt? Ættum við ekki að passa upp á hann þarna? Hann er nógu gamall til að vita hvar mörkin liggja. Smá skemmtun drep- ur hann ekki! Allt í góðu! Hann andar! Þungur! Palli, þetta er frú Vigdís. Þau eiga miða í leikhúsið en barnapían er veik. Getur þú passað? Tvíbur- ana hennar í kvöld? Ha? Segðu henni að orðið „nei“ undir- striki ekki nógu vel svar mitt. Hann er upptekinn. Lalli! Mjási! Þið þekk- ið ekki plágu hinna lifandi dauðu! Hann hefði átt að finna andardráttinn þinn! Hversu þung eru börn? Það er misjafnt. Lóa er um fimm kíló. Hversu þungur er ég? Um fimm- tán kíló. Já, fimmtán er meira en fimm. Ég er viss um að það kemur engum neitt sérstaklega á óvart þegar ég segi að þetta er besta ár okkar til þessa! Bera fataframleiðslan 49,72% 36,30% 69,94% Við stöndum upp úr í nýjustu könnun Capacent Fréttablaðið er með 41% meiri lestur en 24 stundir og 93% meiri lestur en Morgunblaðið Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins samkvæmt nýjustu könnun Capacent Gallup. Fréttablaðið hefur mikið forskot á samkeppnisaðila sína miðað við meðallestur á tölublað hjá aldurshópnum 18–49 á höfuðborgarsvæðinu. Við erum bæði þakklát og stolt og bendum auglýsendum á að notfæra sér þessa vitneskju þegar þeir ákveða hvar auglýsingu þeirra er best borgið. Allt sem þú þarft... ...alla daga Fí to n/ SÍ A Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgina, 18–49 ára. Könnun Capacent í febrúar–apríl 2008.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.