Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 36
36 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
Þingholtsst.
Lindargata
Traðarkotssund
kj
V
egh úsas tíg ur
Vegamótastígur
Smiðjustígur
Vatnsstígur
Klapparst
ígur
Bergstaðastræti
Sk
ól
av
ör
ðu
st
íg
ur
Ingólfsstræti
H
verfisgata
H
verfisgata
H
verfisgata
H
verfisgata
Frakkastígur
Vitastígur
Barónsstígur
Laugavegur
Laugavegur
Laugavegur
Laugavegur
B
ankastræ
ti
Lækjargata
Reiturinn afmarkast af Laugavegi, Vitastíg, Hverfisgötu og Baróns-
stíg.
Hvað stendur til?
Áætlað er að nýbygging Listaháskóla Íslands rísi á reitnum. Vinn-
ingstillaga +Arkitekta gerði ráð fyrir rúmlega 13.500 fermetra bygg-
ingu en samkvæmt breytingartillögu, sem nú liggur fyrir skipulags-
ráði er dregið úr byggingamagni og aukið tillit tekið til eldri húsa á
svæðinu. Í lok síðustu viku var formanni skipulagsráðs, Júlíusi Vífli
Ingvarssyni, færður undirskriftalisti með 350 nöfnum íbúa mið-
borgar ásamt nýlegri samþykkt stjórnar Íbúasamtaka miðborgar.
Þar er byggingu Listaháskólans við Laugaveg mótmælt, byggingin
sögð of umfangsmikil fyrir svæðið og borgaryfirvöld hvött til að
finna skólanum annan viðeigandi stað í miðbænum.
Hvar er málið statt?
Hjálmar Helgi Ragnarsson, rektor Listaháskólans, sagði nýverið
að viðbúið væri að verkefnið myndi frestast og að kennsla hæfist
að öllum líkindum haustið 2012. Samson Properties, félag í eigu
Björgólfs Guðmundssonar, ætlar að fjármagna byggingu hússins
og eiga það. Samkvæmt bréfi til skipulagsráðs eru áform félagsins
óbreytt en lánsfjármögnun er þó ekki tryggð „enda vandfundið
það verkefni að svipaðri stærð, og rétt byrjað í deiliskipulags-
ferli, sem er með trygga lánsfjármögnun“, eins og segir í bréfinu.
Leigusamningur við Listaháskólann, til þrjátíu ára, komi til með að
auðvelda hana.
LISTAHÁSKÓLINN
Reiturinn afmarkast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapp-
arstíg.
Hvað stendur til?
Gert er ráð fyrir sambærilegri byggð og fyrir er á reitnum, íbúða-
byggð í bland við verslanir og þjónustu þar sem verslanir verða
á jarðhæðum og íbúðabyggð á efri hæðum húsanna. Gert er ráð
fyrir að húsið við Laugaveg 23 verði rifið sem og tvö bakhús auk
þess sem húsið við Hverfisgötu 42 verður rifið.
Hvar stendur málið?
„Það er til samþykkt deiliskipulag fyrir reitinn og við hugsuðum
þetta verkefni í framhaldi af Hljómalindarreitnum,“ segir Hanna G.
Benediktsdóttir, fjármálastjóri Festa ehf. sem standa fyrir fram-
kvæmdum á reitnum. Hún segir framkvæmdir því bíða að sinni.
VATNSSTÍGUR – KLAPPARSTÍGUR
Hvað stendur til?
Bygging og rekstur sérhannaðs tónlistar- og ráðstefnuhúss við
svokallað austurhafnarsvæði. Unnið samkvæmt samningi milli
Eignarhaldsfélagsins Portus og Austurhafnar-TR en það síðar-
nefnda er fyrirtæki í eigu ríkisins og Reykjavíkurbogar.
Hvar er málið statt?
Líkur eru á að Austurhöfn taki yfir byggingu tónlistarhússins þar
sem Portus, sem ætlaði að byggja og reka húsið, er komið í þrot
og mun ekki koma frekar að málinu. Viðræður standa yfir milli
Austurhafnar, Íslenskra aðalverktaka, stærsta verktakans sem
kemur að byggingunni, og Landsbankans, aðaleiganda Portus.
Júlíus Vífill Ingvarsson, sem situr í stjórn Austurhafnar, sagði
nýlega að ljóst væri að verkið myndi dragast og að húsið yrði ekki
tilbúið í desember 2009, eins og upphaflega var lagt upp með.
Talið er að kostnaður við að ljúka byggingu hússins verði um
níu til tíu milljarðar. Upphaflega áttu ríkið og Reykjavíkurborg að
leggja 600 milljónir árlega í rekstur hússins í 35 ár. Stefnt er að
því að aðkoma Austurhafnar verði með breyttu sniði og beinu
eignarhaldi.
TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS
Óvissa um framkvæmdir í borginni
Slæm staða efnahagsmála hefur mikil áhrif á framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Blaðamennirnir Olav Veigar Davíðsson og Hólm-
fríður Helga Sigurðardóttir skoðuðu nokkrar framkvæmdir og ræddu við framkvæmdaaðila um stöðu mála.
Hvað stendur til?
Húsið verður fært í sem
mest upprunalegt útlit þótt
stór hluti þess verði end-
urbyggður, risið hækkað
og kjallarinn dýpkaður auk
þess sem byggt verður við
húsið á baklóð. Í húsinu
verður verslunarrekstur og
skrifstofur.
Hvar er málið statt?
Framkvæmdir standa yfir og er jarðvegsvinnu í kjallara og á baklóð
hússins að ljúka. Áætlað er að steypuvinna hefjist í byrjun janúar.
„Vonandi fer að leysast úr málum í bankaheiminum en hingað
til höfum við framkvæmt fyrir eigið fé,“ segir Páll Kolbeinsson,
stjórnarformaður og einn eigenda verslunar Sævars Karls sem á
húsið. Hann segir verkið vera á áætlun. „Það hefur ekkert breyst en
maður verður að viðurkenna að maður hefur tekið hvern dag og
hverja viku fyrir sig,“ segir Páll.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2 TIL 4
Hvað stendur til?
Á reitnum eru hús sem
skemmdust mikið í eldi 18.
apríl 2007. Húsin eru í eigu
Reykjavíkurborgar og er
gert ráð fyrir að þau verði
færð til eldra horfs eða
lagfærð. Einnig er gert ráð
fyrir nýbyggingum í eldri
stíl á reitnum.
Hvar er málið statt?
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar verður lögð fyrir í næstu viku
en þá kemur í ljós hversu mikla áherslu borgaryfirvöld leggja á
uppbyggingu á reitnum. Kristín Einarsdóttir, aðstoðarsviðsstjóri
Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, segist búast
við að eitthvað þurfi að hægja á framkvæmdum. Vegna stöðu
efnahagsmála hafi auðvitað allar forsendur breyst. Borgarráð hafi
veitt fjármagni til rannsóknar- og hönnunarvinnu á reitnum. Hún
segir fornleifarannsóknum lokið og nú sé unnið að því að mæla og
kortleggja húsin.
AUSTURSTRÆTI – LÆKJARGATA
Reiturinn afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Smiðjustíg og
Hverfisgötu.
Hvað stendur til?
Á reitnum er gert ráð fyrir sjö hæða hótelbyggingu, verslunum,
veitingastöðum, skemmtistöðum og skrifstofuhúsnæði auk þess
sem opið upphitað torg verður á miðjum reitnum. Rífa á húsin við
Laugaveg 19, 19a og 19b auk húsanna við Smiðjustíg 4, 4a og 6,
Hverfisgötu 26, 28, 32, 32a, 32b og 34. Þá verður húsið við Klapp-
arstíg 30, sem áður hýsti skemmtistaðinn Sirkus, rifið.
Hvar er málið statt?
Fjármögnun framkvæmdanna er ekki tryggð en þær eru á áætlun.
„Við ætluðum okkur alltaf að fá deiliskipulagið í gegn áður en við
færum í að ganga frá fjármögnun,“ segir Hanna G. Benediktsdóttir,
fjármálastjóri Festa ehf. sem standa fyrir framkvæmdunum. Hún
segir deiliskipulag í kynningu hjá borgaryfirvöldum og bindur vonir
við að jarðvinna hefjist næsta haust.
HLJÓMALINDARREITUR
– SIRKUSREITUR
Hvað stendur til?
Húsin við Laugaveg 4 og 6 eru ásamt húsinu við Skólavörðustíg 1a
í eigu Reykjavíkurborgar. Til stendur að gera húsin upp og að útlit
þeirra verði sem næst upprunalegu. Byggt verður á milli húsanna
og þau tengd saman.
Hvar er málið statt?
Kristín Einarsdóttir, aðstoðarsviðsstjóri Framkvæmda- og eigna-
sviðs Reykjavíkurborgar, segir undirbúning framkvæmda við Lauga-
veg 4 og 6 skemur á veg kominn, en framkvæmdir við Lækjargötu
og Austurstræti enda stutt síðan gengið var frá skipulagi fyrir húsin
við Laugaveg. Að sama skapi verði að gera fyrirvara um fjármögn-
un á því verki.
LAUGAVEGUR 4 TIL 6
HORN LAUGAVEGS OG VATNSSTÍGS
Hvað stendur til?
Reiturinn tekur til húsanna við Laugaveg 33, 33a, 33b og 35 auk
Vatnsstígs 4 og bakhúsa. Í fyrstu var stefnt að því að öll húsin yrðu
rifin en Ágúst Friðgeirsson, eigandi ÁF-húsa ehf., segir arkitekt nú
vinna að nýjum tillögum þar sem húsin við Laugaveg fái að standa
endurnýjuð en bakhúsin verði rifin. Á reitnum er gert ráð fyrir
verslunar- og þjónustuhúsnæði auk íbúða.
Hvar er málið statt?
Deiliskipulag er í vinnslu. „Það á eftir að reyna betur á fjármögn-
unina en ég tel það mál vera nokkuð jákvætt,“ segir Ágúst. Hann
horfir til þess að framkvæmdir geti hafist næsta vor, „með betra
ástandi efnahagsmála“.
Hvað stendur til?
Eldra hús var flutt af reitnum og til stendur að byggja nýtt hús í
sama útliti og það eldra á reitnum. Í húsinu verður verslunar- og
þjónusturými auk íbúða á efri hæðum.
Hvar er málið statt?
„Vegna ástandsins og stöðu bankanna er þetta verkefni í bið,“
segir Emil Emilsson, annar eigenda Laugavegs 74 ehf. Hann segir
framkvæmdir hafa stöðvast mánaðamótin júlí/ágúst. „Þetta er bara
ein óvissa og við sjáum ekki að það sé bjart fram undan í þessum
geira,“ segir Emil um framhaldið.
LAUGAVEGUR 74