Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 2
Ferðaáætlun Brottför frá Reykjavík: □ Allaþriðjudagaogannanhvem laugardag. ■ Alla fimmt'udaga. D Annanhvernfimmtudagog laugardag. a Annan hvem laugardag. o Alla þriðjudaga ð Annan hvern þriðjudag. iiÉÉþiithgáfv: . SuðureyricD-. Flateyri Þingeyn o. Ólafsvík q .Ci Kaufarhofr Norðuri^ig^ V^gh, J \ l^'D' afti^Husavik ^v, SauAárkr Akureyri Akranes< . □ Reykjavik Raufarhöfn I>ón>höfn Bakkafj. Vopnafj. Borgarífj % PSeydisfj. tjóifj. Nesk.st. jtoðvarfj. ipivoRur Homafjörður Vestmannaeyjar ■ Örugg þjónusta um allt land Vörumóttaka/ vöruafhending I vöruafgreiðslu Ríkisskipa við Grófarhryggju, Reykjvík (gamla höfnin). Mánudaga — fimmtudaga kl. 08.00 — 11.50 og 13.00 — 16150 Föstudaga kl. 08.00 - 11.30 og 13.00 - 16.50 Tekið er á móti vitrurn til kl. 16.50 daginn fyrir brotlför, nema i laugardagsferðir, þá til kl. 11.30 föstudaginn fyrir brottför. Beinn slmi vöruafgreiðslu 17656. Þjónustumiðstöð vöruafgreiðslu opin kl. 08.00— 17.00 alla virka daga. Kreditkort. Heimkeyrsla i Reykjavík og nágrenni. AHar viðkvæmar vörur fluttar í gámum. Plasthjúpum vörur á pöllum. Tilboð i stærri flutningaverkefni. Lægri flutningskostnaður — lægra vöruverð. Hafið samband og reynið viðskiptin. RIKISSKIP Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík, sími 91-28822 2 Tíminn Dóttur- fyrirtæki Tímans GUNNAR MAGNÚSSON, ritstjóri: Vona að ég geti gefið út tvö blöð í viðbót. (Tímamynd: Pétur) Óvænt jókst við lið blaða- manna Tímans er fannst á býli austur í Hrunamannahreppi sér- útgáfa blaðsins, en útgáfa þess hófst á árinu. Ritstjóri Tímans í Hreppum er 11 ára gamall og heitir Gunnar Magnússon. Hann sér jafnframt um efnisöfl- un og er eini blaðamaðurinn. Hann sér sjálfur um umbrot og upplímingu, en blaðið er ljós- prentað á Selfossi, að sögn hins unga blaðamanns. Blaðamenn Tímans hittu blaðamann „Tímans í Hreppum“ er hann var við smíð- ar með föður sínum skammt austan við Flúðir, en þar reisa þeir feðgar sér þak yfir höfuðið. „Mönnum fannst ekki nógu frumlegt að ég skyldi kalla blað- ið mitt í höfuðið á Tímanum og þess vegna breytti ég nafninu í Gunnfara, því að sjálfur heiti ég Gunnar.“ Dótturfyrirtæki dag- blaðsins Tímans mun því hafa nafnaskipti við næstu útgáfu blaðsins, en reykvískum blaða- mönnum var leyft að mynda síður úr næsta tölublaði Gunn- fara. „Ég veit ekki hvort ég verð blaðamaður þegar ég verð stór. Mér finnst verst að vera búinn að fá áhugann svona snemma, því að ég er hræddur um að vera búinn að missa hann þegar ég verð stór. Ég hefði frekar viljað fá áhugann seinna. En ég ætla að halda áfram að geta út blöð, ef ég get. Ég er í skólanum á Flúðum en hann er búinn núna. Þarergefið út skólablað, en ég var ekki í ritnefndinni í vetur. Það getur vel verið að ég verði í henni næsta vetur!“ En hvað með sjálfstæðan blaðarekstur? „Ég er búinn að gefa út Tímann, en ég vona að Gunnfari komi út alla vega tvisvar í sumar.“ Og við það kvöddu blaða- menn Tímans blaðamann Gunn- fara, Gunnar Magnússon og óskuðu honum allra heilla á fjölmiðlabrautinni og í braut- ryðjendastarfi hans í Hreppum, en sjálfur skundaði hann af stað með hamar í hendi til aðstoðar föður sínum. Þjóðbraut á sjó til 35 hafna Sunnudagur 8. júní 1986 - Gunnar Magnússon, 11 ára blaðamaður og ritstjóri spjallar við Tímamenn / ' MZr- tf»IW,,M88íí itRO. iVe v m bílör,p,lontip. krornrdtur o,- r. HEItl'' OCSEIWtR: blaftBÍtu 6- 't 9u«ílah*ttír.bla y »ET» EI.I.D! ASIERICA S TAttR *»AKK í Hreppum Forsfða Tímans í Hreppum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.