Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 11
10 Tíminn Ástin lók ekki við stjörnuna. Hún stökk ofan af þaksvölum plötufyrirtœkisins Sun og liggur hér örend í strætinu. Táningarnir dóu fyrir átrúnaðargoðið Nú hafa 33 ungmenni fylgt söngkonunni Yukiko Okada í dauðann Hún var átrúnaðargoð japönsku skólaæskunnar. Hún hét Yukiko Okada, 18 ára, og aðdáendur hennar nefndu hana hina japönsku „Ma- donnu“ eftir stöllu hennar í Banda- ríkjunum. f hvert skipti sem þessi gullfallega söngkona hélt konsert þyrptust að þúsundir táninga sem slepptu sér gjörsamlega af hrifningu. Plöturnar hennar voru daglega í útvarpinu og hún átti mörg lög efst á vinsældalistunum. Hún þénaði margar milljónir á hverju ári og hafði öðlast það sem öll japönsk ungmenni dreymir um: Eigið hús í einu besta íbúðahverfi Tokyó, dýran fatnað úr silki og satíni, bíla og rándýra skartgripi. Hún hafði öðlast all, - nema ástina. Hún hafði orðið ástfangin af ung- um leikara, sem þó forsmáði ást hennar. Fyrir vikið hrjáðu hana geðsveiflur, þannig að hún var ýmist ofsakát eða lá við sturlun af þung- lyndi, samkvæmt því sem umboðs- maður hennar, Noburo Mizoguchi segir: „Oft lokaði hún sig inni í Sunnudagur 8. júní 1986 herbergi sínu og grét. Foreldra hennar, vini og aðdáendur grunaði síst að svo væri ástatt um hana. En það var þetta sem um síðir rak hana til að fremja sjálfsmorð hinn 8. apríl sl. Hún fleygði sér niður af þaksvöl- um hljómplötufyrirtækisins Sun og var það um 20 metra fall. Umboðs- maðurinn varð áhorfandi að atvik- inu, en hann var á leið inn í húsið, þegar hann sá einhverja svarta flygsu falla niður með veggnum. Það var Yukiko. Hún lést samstundis. Sjálfsmorð hennar fyllti aðdáendur hennar alls staðar í Japan skelfingu. Múgæði greip um sig á meðal ung- linganna og innan fárra daga höfðu 33 ungmenni fylgt henni sjálfviljug í dauðann. Þrettán ára gömul stúlka í Nagoya stökk niður af þaki á ellefu hæða húsi, fram hjá gluggum for- eldra sinna. Eirv 16 ára stökk út um glugga á fimmtu hæð á hóteli og 14 ára stúlka niður af íbúðarháhýsi í Tokyó. Flestir voru hinir ungu sjálfs- morðingjar stúlkur, sem skildu eftir skilaboð á borð við þetta: „Fyrst Yukiko vildi ekki lifa lengur, hví skyldi ég þá vilja það?“ Tólf ára gömul stúlka í hópi látinna hafði án afláts horft á fréttina um dauða Yukiko af videobandi, áður en hún fargaði sér. En hverju veldur að ungt fólk tekur upp á öðru eins? Japanir hafa oft valdið Evrópu- mönnum furðu með því að deyja sjálfviljugir fyrir alla handa háleit markmið. Nefna má hina gömlu hefð Samurajanna að rista sig á kvið með sverði, en fá svo einhvern góðan vin til þess að stytta dauða- stríðið og höggva af þeim höfuðið. Þetta fyrirbæri „Harakiri" þýðir blátt áfram „Kviðrista". Dæmi er líka að finna á síðari tímum og er þá átt við þá flugmenn sem flugu vélum sínum hlöðnum sprengiefni beint á herskip Banda- ríkjamanna. Þessir flugmenn sem nefndust „Kamikaze" gerðu þetta fyrir föðurland sitt. Enn þann dag í dag er þess krafist af Japönum að þeir gefi sig til fullnustu. Ekki er um að ræða skipu- lagðar sjálfsmorðssveitir, heldur rík- ir í skólum glerharður agi sem ekki Þau fylgdu Yukiko í dauðann. Að ofan er hin 14 ára Kayoko Kaw- ana, sem stökk niður af ellefu hæða húsi, en fyrir neðan er hin 13 ára Kazuko Miyaki, sem stökk ofan af þaki og fram hjá glugga foreldra sinna. gefur kost á neinu persónulegu frelsi. Barnaskóli er í sex ár, þá þriggja ára gagnfræðaskóli, þriggja ára menntaskóli og loks fjögurra ára háskóli. Þessa braut fara um 40% ungra Japana og er þetta ekki ólíkt því sem er í V-Evrópu, nema hvað skólinn sjálfur er með allt öðru sniði. Takasi Ueda, sem starfar við jap- önsku menningarmálastofnunina í Köln segir: „Ekki er hægt að gera sér í hugarlund þá pressu sem börn eru þegar frá fyrsta ári látin lifa undir í Japan. Þau eru í skólanum frá því klukkan átta að morgni til þrjú á daginn og ekki nóg með það: Á kvöldin sækja flest þeirra auka- tíma.“ Flestir atvinnurekendur líta nefni- lega fyrst og fremst á eiginfrumkvæð- ið og metnaðinn. Takasi Ueda segir enn: „Ungling- arnir eiga næstum engan frítíma, því þjóðfélagið lítur aðeins á afköst. Sá sem vill komast áfram verður að láta sér þetta lynda. En jafnframt velja unglingarnir sér það fólk að fyrirmyndum sem getur notið frelsis. Einkum eru það dægurlagasöngvar- ar sem syngja um ást og frelsi til sjálfstjáningar. Yukiko Okada, „Madonna" Jap- ana söng um ástina, - en líka um lífsleiðann. Aðdáendum hennar var ókunnugt um að það var eigin þján- ing sem hún söng um... Hún var átrúnaðargoð japanskrar skólaæsku. Tíminn 11 Þú borðaðir rúmlega eitt hundrað SS pylsur á síðasta ári. SLATURFELAG O =l s cn > SUÐURLANDS Ariö 1985 boröuöu Islendingar hvorki meira né minna en 17 milljónir og eitt hundraö þúsund (17.100.000) SS pylsur. Þaö gera liðlega 100 pylsur á hvert mannsbarn sem náö hefur ,,kiötaldri“. Betri meðmæli eru vandfundin. FYRSTA STARFSÁR HEWLETT- PACKARD Á ÍSIANDI LOFAR CÓÐU UM FRAMTÍÐINA VIÐTOKURNAR SANNA AÐ VIÐ ÁTTUM ERINDI TIL ÍSLANDS Hewlett-Packard er alþjóðlegt fyrir- tæki sem nýtur virðingar og trausts fyrir vandaða framleiðslu og víðtæka þjónustu. Fyrirtækið hóf starfsemi á Islandi 8. maí 1985 og hefur síðan átt góðu láni að fagna. Fjöldi fyrirtækja og stofnana hafa kosið tölvukerfi, búnað og mælitæki frá Hewlett-Packard. Það er ánægjulegt fyrir Hewlett- Packard að eiga drjúgan þátt í upp- byggingu og mótun atvinnulífs, heil- brigðisþjónustu og menntunar á íslandi. Hér eigum við heima. FYRIRTÆKI SEM Á FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR Hewlett-Packard á íslandi er ungt fyrirtæki sem byggir á alþjóðlegri reynslu og þekkingu. Starfsfólkið legg- ur siq fram við að veita lipra, persónu- lega og góða þjónustu. Það hefur trú á vörum Hewlett-Packard og er full- visst um að fyrirtækið eigi bjarta fram- tíð fyrir höndum. Hewlett-Packard er fyrir fólk. rhpi HEWLETT PACKARD HEWLETT-PACKARD Á (SLANDI. CÓÐ TENGSL VIÐ ÍSLENSKT ÞJÓÐUF Hewlett-Packard er traustur bakhjarl íslenskrar tækniþróunar. Samstarfið við hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki á borð við Þróun, Örtölvutækni, Pennann, TOK, VKS, Tölvutæki á Akur- eyri og Samfrost í Vestmannaeyjum skilar íslensku atvinnulífi fram á veginn. Meðal viðskiptavina fyrirtækis- ins eru VSÍ, ASÍ, Samband almennra lífeyrissjóða, Borgarspítalinn, Skyggnir, Pharmaco, Vatnsvirkinn, Norðurstjarnan, Hafrannsóknarstofnun og islandslax, svo fáeinirséu nefndir. Þannig erum við í góðum tengslum við alla þætti íslensks þjóðlífs. HÖFÐABAKKA 9. 112 REYKJAVÍK. SÍMI 91-671000. ÍSUENSKT HUCVTT OC ALÞJÓÐLEC REYNSLA P&Ó/SÍA TRYCGJA CÓÐAN ÁRANCUR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.